Nýir búningar? (uppfært)

Þá er komið að uppáhalds tíma sumra Púllara á hverju ári, eða vormánuðunum þar sem myndir af væntanlegum Liverpool-búningum leka á netið.

Fyrsti lekinn varð í síðustu viku þegar Empire of the Kop birti myndir af þremur treyjum sem þykja líklegar sem búningar næsta tímabils:

Vandamálið við þennan leka er að í gær láku svo myndir af búning sem virðist vera enn meira ekta (er með ClimaCool-merki Adidas sem hinir hafa ekki) og gæti þá verið nýja varatreyjan:

Spurningin er, hvað af þessu er rétt? Ef fyrri þrjár myndirnar eru réttar er ég ekki alveg sannfærður um ágæti rauðu treyjunnar, græn/hvíta treyjan er algjör hryllingur, en ég mun versla gylltu treyjuna daginn sem hún kemur út. Hvíta treyjan sem lak í gær er svo bara nokkuð flott.

Hvað segir sérlegur tískuráðgjafi Kop.is? Einar Örn?


**Uppfært (EÖE)** Empire of the Kop birta nú nýja útgáfu af búningnum, sem mér finnst svona sirka 1800 sinnum flottari:

Ég ætla innilega að vona að þetta sé nær lagi en sá hroðbjóður sem birtist hér að ofan.

56 comments on this post.
  1. Einar Örn:

    Ég fíla ágætlega aðaltreyjuna, fyrir utan þennan kraga sem mér finnst ljótur. Adidas eru þó í tómu tjóni með þessi hálsmál á sínum treyjum (sjá t.d. Bayern). Gullitaði búningurinn finnst mér fínn, en þessi græn-hvíti og þessi neðsti eru verulega slakir.

    Þetta fær ekki háa einkunn hjá mér.

    Thumb up 4
  2. Gunnar Ingi:

    Er Einar Örn Svavar Örn kop.is? Fyndið :)

    Annars fynnst mér þessir búningar allir frekar ljótir, en það gæti líka verið af því að það mun taka smá tíma að venjast nýju auglýsingunni.

    Thumb up 2
  3. Toggi:

    Mér finnst bara ekkert að marka þessa búninga fyrr en maður er búinn að sjá Steven Gerrard í þessu, stífgirtan og útskeifan með fýlusvip. Það gerir oftast lúkkið fyrir mér.

    En í fljótu bragði er þetta frekar ljótt alltsaman.

    Thumb up 30
  4. Hjalti:

    Þessi hvíti neðst er nokkuð töff. Hinir ekki. Vona svo sannarlega að þetta sé bara bull…

    Thumb up 2
  5. einare:

    Vona að þetta sé skúbb, finnst þeir allir lítið fyrir augað. Það má svo alveg fara útrýma þessum græna lit úr Liverpool treyjunni.

    Thumb up 3
  6. ÓliPrik:

    Jaaá ætla rétt að vona að þetta sé ekki treyjunar sem við munum vera í, rauða, hvíta og græna/hvíta eru hörmung..en finnst samt gylta nokkuð töff og ég myndi bókað fjárfesta í þeirri treyju ;)

    Thumb up 1
  7. Kristján:

    Vá var Haffi Haff að hanna þetta ??
    Mun ekki kaupa neitt af þessu ef þetta er það sem á að koma :(

    Thumb up 2
  8. Kiddi Keagan:

    Þessi neðsti teinótti minnir mig á varabúning Þórsara 1985, Hinir 3 fyrir ofan hljóta að vera eitthvað Phjótosjoppað af 13 ára Kanadískum dreng því að það er ekkert flott við þá, nema Liverpool merkið.

    Thumb up 2
  9. Óli Haukur:

    Ágætir búningar en ég er alls ekki að fíla þennan græna og hvíta, gyllti finnst mér allt í lagi og rauða vera ágæt en mætti vera betri. Hvíti og rauði búningurinn finnst mér flottur og vona ég að þetta sé varabúningurinn.

    Þetta sett sem birtist á undan líst mér mun betur á:

    http://www.liverpoolkits.com/others/LFC10H.jpg
    http://www.liverpoolkits.com/others/LFC10A.jpg
    http://www.liverpoolkits.com/others/LFC10T.jpg

    Thumb up 2
  10. Carl Berg:

    Góðan daginn

    Ég hreinlega frábýð mér þá vitleysu að mönnum skuli láta sér detta það í hug, að spila í rauðum pólóbol á næsta tímabili. Ef menn rýna í þennan bol, þá sjást að það eru tölur á honum, og hálsmálið er er slíkt tískuslys að fatalaust fátæktarbarn úti í þriðjaheiminum, myndi hugsa sig um, áður en það færi í hann.
    Ég þarf ekki að segja orð um þennan búning nr 2, nema það eitt að ég ætla ekki að kaupa hann.
    Nr 3 bolurinn, sést kanski ekki nægilega vel á þessari mynd en hann er líklega skástur af þessum þrem.

    Neðsti búningurinn minnir óneitanlega á Þórsbúninginn, sem ég reyndar tel að hafi verið aðalbúningurinn 1985, en ekki varabúningurinn, þó svo að Kiddi hafi kanski rétt fyrir sér.. ég útiloka það ekki. Sem slíkur er búningurinn bara nokkuð flottur, enda hafa norðlenskir Þórsarar ávallt verið flottir í tauinu, innanvallar sem utan ;)
    En ég hefði viljað sjá þennan búning í smá meiri Liverpool retro stíl, og hafa bara ljósgular rendur á honum, og aðalbúninginn þá bara rauðan, með ljósgulum röndum…. já og rauða stafi á auglýsingunni, og þá hvíta á rauðu treyjunni… allt annað er horbjóður.

    Insjallah… Carl Berg

    Thumb up 6
  11. Ívar Örn:

    Þorgrímur Þráinsson sagði fyrir mörgum árum að Liverpool ynni ekki deildina meðan þeir auglýstu áfengi. Þannig að ég fagna þessum búningum bara fyrir það að við eigum loks séns í að vinna deildina. Þá er mér nokk sama hvernig búningurinn lítur út.

    http://www.knattspyrna.bloggar.is

    Thumb up 6
  12. Andri þór:

    Alveg hrikalega er þessi græni ljótur, og líka er rauði búiningurinn alls bara ALLS ekki fallegur eiginlega bara ljótur líka.

    Thumb up 0
  13. þórhallur jónsson:

    Hvíti hefur fagurfræðilega yfirburði sem þó rýrna verulega þegar farið er að líkja honum við Þór Akureyri

    Thumb up 2
  14. goa:

    Rautt er litur Livepool og mér finnst hryllilegt ef búningur nr. 1 á að verða aðalbúningur. Hann líkist búningi Manchester United., eins og hann var einu sinni, allt of mikið! Ekki góð tilhugsun:-(

    Thumb up 0
  15. Babu:

    • Er Einar Örn Svavar Örn kop.is? Fyndið

    Klárlega!

    En ég sakna strax Carlsberg! Vona sannarlega að þetta sé ekki staðfest útlit því annars held ég að búningahönnuðurinn ætti að fá sér aðra vinnu! Svosem enginn hryllingur enda erfitt fyrir Liverpool búning að verða það, en þetta er ekki alveg málið.

    Thumb up 1
  16. Hafliði:

    Úff, ég kaupi ekkert af þessu, hver öðrum ömurlegri :(

    Thumb up 1
  17. Ragnar:

    Ég vil upprunalega búninginn aftur!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

    http://en.wikipedia.org/wiki/Liverpool_fc#Colours_and_crest

    Thumb up 0
  18. Teddi:

    Ég mundi nú ekki láta sjá mig víndauðann í þessum búningum… en finnst þessi http://www.anfield-online.co.uk/wp-content/uploads/2009/09/standard-chartered-liverpool.jpg allveg sexy samt sem áður

    Thumb up 0
  19. Tryggvi:

    Tekið af wikipedia

    Liverpool traditionally played in red and white, but this was changed to an all red kit in the mid 1960s. Red has not always been used. In the early days, when the club took over Anfield from Everton, they used the Toffees’ colours of blue and white. Their kit was almost identical to that worn by the Everton team of the time.

    Everton búning?! Nei takk!!

    Thumb up 0
  20. Elmar Diego:

    Þetta lítur illa út fyrir utan gylltu treyjuna sem mér finnst nokkuð flott. Annars treysti ég adidas fullkomlega að koma með nýmóðins „look“ á þetta og hef ekki nokkra trú á að þetta sé það sem koma skal í treyjumálum Liverpool Fc.
    YNWA

    Thumb up 1
  21. Ólafur Ingi:

    Það getur ekki verið að liverpool sé að fara nota þennan gyllta þarna á næsta tímabili.Mér sýnist nefnilega vera meistaradeildarmerki á honum.:)

    Thumb up 1
  22. Wittmann:

    Þessir búningar munu sóma sér vel í evrópudeildinni !

    Thumb up 1
  23. Móri:

    Þetta eru tussu ljótir búningar. Adidas er með allt á hælunum einsog vanalega.

    Thumb up 0
  24. thorir:

    já maður á eftir að sakna carlsberg. Annars er ég algerlega á móti gylltun knattspyrnubúningum hjá liverpool sem og svörtum. Aðalabúningarnir eiga að vera rauðir, varabúningarnir hvítir og þriðju grænir eða gulir. Það eru liverpool litirnir, ekki gyllt eða svart.

    Takk fyrir ps. Liverpool á aldrei að spila í öðru en adidas.

    Thumb up 1
  25. Babu:

    • og þriðju grænir eða gulir.

    Allann daginn vill ég frekar svarta þriðju búninga. ALDREI þessa viðbjóðslegu grænu :)

    Thumb up 2
  26. Sigueina:

    Eina sem mér finnst flott við búningana er Liverpool merkið.
    Mér finnst Liverpool búningarnir undanfarinn ár hafa verið virkilega flottir en þetta er alveg skelfilegt.

    Thumb up 2
  27. Stefán:

    Afhverju eru allir að dissa þennan Hvíta/Græna? Hann er sjitt töff !

    Thumb up 3
  28. Einar Örn:

    Ég held að Lucas og Kuyt hafi hannað þessa búninga saman.

    Thumb up 16
  29. Sigkarl:

    Sælir félagar

    Í einu orði sagt: ÖMURLEGT.

    Það ernú þannig.

    YNWA

    Thumb up 1
  30. Finnur:

    Þoli ekki þessa kraga!!!

    Þetta eru keppnis treyjur, ekki golf eða krikket..

    Thumb up 1
  31. Kobbi:

    Rosalegur Bayern-bragur á rauða bolnum. Grænhvíti sýnist mér nú bara alveg einsog sá frá árinu þegar Fowler var með aflitað hár.

    Thumb up 1
  32. Einar Örn:

    Ég er búinn að uppfæra sjálfa færsluna með nýrri mynd, sem ég vona að sé nær lagi.

    Sjá færslu á Empire of the Kop

    Thumb up 6
  33. Viktor EB:

    Einar ég fékk bara í magann þegar ég sá efstu myndina, hæðilega late 80´s búningur. Þessi er allt annað mál lýtur mjög vel út :)

    Thumb up 0
  34. Elías:

    ömurlegir búningar finnst mer það er eitthvað sem vantar þegar carlsberg er ekki en who cares það er liðið ekki buningurinn sem skiptir mali

    Thumb up 0
  35. Fridgeir Ragnar:

    Mér finnst þessi fyrsti mjög flottur. Gott retro look. Sýnist líka standa Villa aftaná honum.

    Thumb up 2
  36. Halli.:

    Þetta væri mjög flottur búningur ef ekki væri fyrir þessar hvítu bogalínur á ermunum og fyrir ofan mittið.

    Thumb up 0
  37. Elvar G:

    Er ekki að fíla það að skipta út klassíska Carlsberg merkinu fyrir Standard Chartered með logo sem minnir á garnaflækju.

    Thumb up 0
  38. arnar:

    þetta er það ljótasta sem eg hef séð í mörg ár….. því miður

    Thumb up 1
  39. Andri þór:

    Nú erum við að dansa

    Thumb up 1
  40. Davíð Aðalsteinsson:

    Þessi nýjasti er virkilega flottur en eru menn að taka eftir því að núna þegar tæpur hálftími er eftir af leikjunum er Man.City að tapa fyrir Everton og Aston Villa að gera jafntefli gegn Sunderland svo vonandi að þetta haldist bara svona :)

    Thumb up 1
  41. ÓHJ:

    Ég held að Lucas og Kuyt hafi hannað þessa búninga saman.

    Ahahahaahahah

    Thumb up 1
  42. Mr. Jinx:

    Jæja. Hvað er að frétta!?

    Jú!

    10 mín eftir og Aston Villa menn eru að gera jafntefli við Sunderland 1-1
    og
    Man City eru að tapa á eigin velli gegn Everton 0-1

    Thumb up 0
  43. Kiddi:

    Ánægður með bitter blues maður !!!!

    Thumb up 0
  44. Hafliði:

    Já úrslit kvöldsins eru sannarlega gleðiefni fyrir okkur púllara þó svo sumir sem hér kommenta leggi blátt bann við slíkri gleði :)

    Takk Sunderland og mútsjos gras í rass Everton :)

    Thumb up 0
  45. Einar Örn:

    Já, Hafliði ég skellti inn færslu til að skrifa um eitthvað gleðilegt. Það er ekki einsog það rigni yfir okkur gleðfréttum þessa dagana. :)

    Thumb up 0
  46. Gummi Halldórs:

    Það er alltaf gaman að skoða nýja búninga og auðvitað höfum við öll skoðun á þeim og viljum hafa þá sem flottasta. Ég kann ekkert alltof vel við þessa grænu og gulu varabúninga sem Liverpool notar oft og vil frekar hafa þá hvíta eða svarta.

    En annars væri mér sama þó að liðið myndi spila í wifebeater bolum á næsta tímabili ef spilamennskan og úrslitin verða betri en á yfirstandandi tímabili.

    Thumb up 0
  47. O:

    ég held að efstu þrír búningarnir séu nýju eftirlíkingarnar…

    Thumb up 0
  48. Sigmar:

    http://fc00.deviantart.net/fs70/f/2010/002/5/c/5c8fba165b7a45656c50ad2791a6a4f1.jpg

    Finnst þessi töluvert fallegri en allir hinir!

    Thumb up 1
  49. magnús:

    Ekkert að marka þetta, ekki heldur þennan nýjasta. Þessi Empire síða dæmir sig sjálf úr leik með þessum fyrsta grínbúningi.

    Thumb up 0
  50. Sigmar:

    Tók einhver annar eftir því, að á hvíta bolnum stendur í hálsmálinu: „Your Will Never Work Alone“

    Hver djöfullinn er það?

    Thumb up 0
  51. Sigmar:

    þriðja kommentið næstumþví í röð, en það er vangefið hvað sumir eru góðir í photoshop: http://img412.imageshack.us/i/kitster.jpg/

    Thumb up 0
  52. Óli G:

    þriðja kommentið næstumþví í röð, en það er vangefið hvað sumir eru góðir í photoshop: http://img412.imageshack.us/i/kitster.jpg/

    Og með mikinn frítíma :)

    Thumb up 1
  53. Hafliði:

    Þessi treyja lúkkar alveg ágætlega á Spænska gullmolanum okkar :)

    Thumb up 0
  54. Baldur:

    Búningarnir koma í ljós þriðjudaginn 6.mars á liverpoolfc.tv

    Thumb up 0
  55. Hafliði:

    6 apríl meinarðu væntanlega Baldur ;)

    Thumb up 0
  56. Hafliði:

    Nú við nánari skoðun þá stendur á heimasíðu Liverpool að búningarnir verði sýndir fimmtudaginn 8 apríl, svo það sé alveg á hreinu :)

    Thumb up 0