Liðið komið: Gerrard og Carra frá
Liðið í dag er komið og báðir fyrirliðarnir eru frá vegna meiðsla:
Reina Johnson – Skrtel – Agger – Enrique Henderson – Lucas – Adam – Downing Suarez – Carroll
BEKKUR: Doni, Flanagan, Coates, Spearing, Maxi, Bellamy, Kuyt.
Gerrard fékk einhverja sýkingu í ökkla og verður frá í nokkra daga, Carra meiddist í fyrri hálfleik gegn Stoke í vikunni og missir af og Kelly hlýtur að vera meiddur líka fyrst hann er ekki einu sinni á bekk. Að öðru leyti er byrjunarliðið nokkurn veginn eins og við mátti búast m.v. meiðslin.
Koma svo!
Hafliði:
október 29th, 2011 at 16:00
Hversu langt er síðan að Carra eða Gerrard voru hvorugur í byrjunarliði Liverpool í deildinni?
Tökum þennan leik og komumst upp fyrir Arsenal aftur !
Edid:
Ku hafa verið 22 jan síðast liðinn, fannst það vera muuuun lengra síða ; )
Styrmir:
október 29th, 2011 at 16:04
Þessi leikur bara verður að vinnast. Spái 1-3 og Suarez með 2 og Carroll 1
Krulli:
október 29th, 2011 at 16:04
Þessi leikur er stór prófraun. Verðum að vinna hann ef við ætlum að vera í þessari baráttu um 4. sætið.
Verðum að gefa Arsenal skýr skilaboð og fara uppfyrir þá strax aftur!
Ingimundur:
október 29th, 2011 at 16:04
Þetta verður flottur leikur, Suarez og Carroll gera góða hluti frammi og Downing ætlar að leggja upp í fyrsta sinn í deildinni!
Dóri Stóri:
október 29th, 2011 at 16:04
Fyrir þá sem eiga eftir að biðja um linka á leikinn… asiaplatetv.com rojadirecta.es og atdhenet.tv
Bogi:
október 29th, 2011 at 16:06
Hver er captein
Gísli:
október 29th, 2011 at 16:09
Glæsilegt byrjunarlið, sennilega okkar stekasta lið fyrir utan Gerrard og mögulega Carra líka. Koma svo…
LP:
október 29th, 2011 at 16:10
Gríðarlega mikilvægt að vinna þennan leik til að vera með í baráttunni um 4.sætið. Þetta lið á að vinna WBA á útivelli. Með sigri erum við ekki nema stigi á eftir Chelsea. Það væri vel ásættanlegt eftir 10 umferðir. Vonandi að Carroll hrökkvi í gang og setji eins og eitt og síðan gæti ég trúað Adam til að negla einu. Koma svo!
siffi:
október 29th, 2011 at 16:13
ohhh ég hef einhverja skíta tilfinningu fyrir þessum leik, júnæted drullaðist í gegnum sinn leik, shitty vann sinn leik með herkjum og chelsea tapar…. ávísun á eitthvað slys hjá okkur. 25 skot á mark og woy stendur uppi sem sigurvegari á 93 mín!!
vonandi hef ég ekki nostradamusar gáfurnar í mér því ég er farinn að þrá stórsigur hjá okkar mönnum!
HannesH:
október 29th, 2011 at 16:20
PL er buin ad vera frabær skemmtun thad sem af er….Margir frabærir leikir og bilud urslit….
Egill:
október 29th, 2011 at 16:23
Líst vel á þetta lið nema ég hef miklar efasemdir með Henderson á hægri kant..Annars ætti þetta að duga til sigurs. KOMA SVO!!
Ynwa
Höddi B:
október 29th, 2011 at 16:24
Djöf, hvað er að Gerrard núna ? Vill einhver fara að senda honum Lýsi
Jeff:
október 29th, 2011 at 16:25
Koma svo 0-3!!
góður linkur http://premier–streams.net/
Elli:
október 29th, 2011 at 16:26
Aquilani með flotta stoðsendingu á ibramovich.
við vinnum svo í dag 0-4
Theodór Ingi:
október 29th, 2011 at 16:26
Hér eru nokkrir linkar á leikinn: http://www.wiziwig.tv/broadcast.php?matchid=128244&part=sports
Ég er með þennan þriðja í gangi, fín gæði og á ensku!
Jökull Viðar:
október 29th, 2011 at 16:27
Græjið bara bookmark á þetta. Bloodzeed er með mjög góða HD sopcast stream á hvern einasta leik.
http://www.livefootballol.com/streaming/channel/bloodzeed-hq-sopcast.html
eikifr:
október 29th, 2011 at 16:28
Ekki get ég sagt að við veikjumst mikið með meiðslum Carragher og Gerrard hefur sama og ekkert spilað sem þýðir í raun bara „same as usual“. Ég spái 3-4 mörkum í þessum leik og sigri LFC.
HannesH:
október 29th, 2011 at 16:32
Annars vardandi thennan leik tha er thetta 1 – X – 2 leikur…Omøgulegt ad spa um urslit…Ef eg thyrfti ad leggja eitthvad undir mundi eg liklega tippa a X.
Halli:
október 29th, 2011 at 16:32
Mér er sama hvernig við vinnum, ég vil bara þrjú stig. Það má vera óverðskuldaður heppnissigur, bara vinna leikinn og ná í þrjú stig.
Þorri:
október 29th, 2011 at 16:37
Er einhver með góðan streaming link á leikinn?
Gilli:
október 29th, 2011 at 16:38
0 – 5 Carrol 3 og Suarez 2
Eddi:
október 29th, 2011 at 16:45
þetta var ekki víti fyrir 5 aura…en við erum komnir yfir :)
Gummi:
október 29th, 2011 at 16:46
0-1 Adam víti, glæislegt
Hafliði:
október 29th, 2011 at 16:47
Hvað skreið uppí rassagtið á lýsandanum á Sport2?
A.B. finnur Liverpool allt til foráttu frá því fyrir leik!
Annars verðskulduð forusta okkar manna.
LP:
október 29th, 2011 at 16:47
Kannski er loks eitthvað að falla með okkur. Þetta var amk flott víti hjá Adam.
Siggi:
október 29th, 2011 at 16:47
þetta er eins og alltaf… Það er alveg ótrúlegt hvað varnarmenn komast upp með að berja á Andy Carrol. Þetta er algerlega óþolandi.
Vilhjálmur:
október 29th, 2011 at 16:48
Liverpool hefur vissulega fengið ódýr víti, en þetta er ekki eitt þeirra – hárréttur dómur að mínu mati.
Hafliði:
október 29th, 2011 at 16:50
Algerlega ósammála því að þetta hafi ekki verið víti, maðurinn teigir löppina út og fellir Suarez.
Punktur
freysi:
október 29th, 2011 at 16:51
Þetta var bara einfaldlega víti. Leikmaður WBA var aldrei að hugsa um boltann heldur einungis að hindra Suarez. Víti.
Theodór Ingi:
október 29th, 2011 at 16:51
Háréttur dómur í þessu víti. Er það annars dagskipunin hjá WBA í þessum leik að brjóta á Suarez og saka hann svo um leikaraskap í hverju broti.
Svo virðist Jonas Olson vera harðákveðinn í að ná sér í rautt í þessum leik.
Höddi B:
október 29th, 2011 at 16:59
Frábær sending hjá Suarez á Carrol en varnarmaður ver boltann með höndinni, ekkert dæmt :-/
Vilhjálmur:
október 29th, 2011 at 17:03
Það er ansi augljóst að áhorfendur og leikmenn WBA hafa áhrif á dómarann því Liverpool ætti að vera búið að fá 3 víti.
Einnig er það óþolandi með öllu að í hvert skipti sem Carroll notar styrk sinn þá er flautað á hann.
Eddi:
október 29th, 2011 at 17:06
Það er rosa gaman að sjá hvað Roy er argur :)
Þorri:
október 29th, 2011 at 17:07
Hefði viljað sjá Charlie Adam taka þessa aukaspyrnu en ekki Suarez
Eddi:
október 29th, 2011 at 17:11
omg.. Suárez að skjóta yfir 3 metrum fyrir framan markið ! :/
Suarez07:
október 29th, 2011 at 17:13
Liverpool er gjörsamlega að yfirspila WBA… þeir bara verða að ná öðru marki fyrir leikhlé
Höddi B:
október 29th, 2011 at 17:14
Djöfull er Lucas ótrúlegur
Hafliði:
október 29th, 2011 at 17:16
Verðum að auka forustuna, erum að sundurspila heimamennina eins og oft áður.
Ég get ekki slakað á fyrr en við komumst í 0-2.
Eddi:
október 29th, 2011 at 17:21
Carroll !!!!!!yay
Hafliði:
október 29th, 2011 at 17:21
Er Arnar Björnson að horfa á leikinn?
Sá hann ekki að Suarez datt á WBA gaurinn!
Flott mark 2-0
Höddi B:
október 29th, 2011 at 17:21
Flottur CARROLLLLLLLLLL ………..
Suarez með ótrúlega góða sendingu
Suarez07:
október 29th, 2011 at 17:22
Þetta VARÐ að koma fyrir leikhlé!! Ánægður með okkar menn :)
Gummi:
október 29th, 2011 at 17:22
JÁÁÁÁ 0-2 ANDY CARROLLLLLLLLLL!!!!
FRÁBÆR SENDING OG GLÆSILEGA KLÁRAÐ!
hh:
október 29th, 2011 at 17:24
enn og aftur leikur sem Arnar (RITSKOÐAÐ) er að bulla svo mikið út úr rassgatinu á sér að það hálfa væri nóg. ef þetta fær mann ekki til að endurskoða áskrift sína á stöð 2 sport öllum pakkanum þá veit ég ekki hvað… var hann að byrja eða hvað. aldrei vitað aðra eins ófagmennsku í lýsingu.
LP:
október 29th, 2011 at 17:25
Virkilega flottur fyrri hálfleikur hjá okkar mönnum. Meira svona, takk.
Hafliði:
október 29th, 2011 at 17:27
Flottur fyrri hjá okkar mönnum og vonandi höldum við áfram að keyra yfir þá í þeim seinni.
einare:
október 29th, 2011 at 17:28
sweeeeeeet!!!! Frábær skyndisókn og frábær afgreiðsla hjá Carroll. Kappinn farinn að skora í hverjum leik sem hann byrjar :)
Ísak:
október 29th, 2011 at 17:33
Finnst að 365 ættu að bjóða uppá leikina án lýsingu, bara hljóð og allir sáttir þannig að ef að það er einhver pappakassi sem að fer í taugarnar á manni þá getur maður útilokað hann en notið þess samt að horfa á leikinn.
Liðið að spila vel og við gætum búnir að vera skora fleiri mörk með smá heppni. WBA eru ekki með og við eigum ekkert að vera leyfa þeim að vera með.
Jeff:
október 29th, 2011 at 17:34
Alltaf víti og svo átti Carroll að fá eitt,finnst allir vera spila vel nema Downing.
bætum við 3 í seinni :P
arnbjorn:
október 29th, 2011 at 17:42
@isak – med digital getur madur valid original og faer tha ensku thulina (virkar ekki islandi?)
hvar eru gagnrynendur adam og henderson og carroll, sofnadir :)
ynwa
Bjarni Már Svavarsson:
október 29th, 2011 at 17:42
ísak notaðu mute
Hallur Sig.:
október 29th, 2011 at 17:43
Höddi B @12
You just took the words right out of my mouth….. ég ætlaði einmitt að minnast á lýsið, best að senda honum eins og eina 200 ltr. tunnu.. :D
Egill:
október 29th, 2011 at 17:43
Kjánalegt svar Bjarni, hann vill hafa hljóð á leiknum, vill bara losna við íslenska þulinn.
Di Stefano:
október 29th, 2011 at 17:54
Þurfum að setja Ian Rush inná til að taka síðustu snertinguna fyrir Suarez.
Ekki góð nýting… en allt annað í world class
steini:
október 29th, 2011 at 17:56
shhhh fæ einhverja tilfinningu um að þeir séu að slaka of mikið á!
Sæmi:
október 29th, 2011 at 17:56
Kóngurinn hefði átt að skutla sér eftir þessum bolta .-)
Eddi:
október 29th, 2011 at 17:58
kominn tími á að fá Bellamy inn
freyr:
október 29th, 2011 at 18:08
ekki sangjarnt að kenny fái að koma oftar við boltann en Reina :)
Bjartur:
október 29th, 2011 at 18:09
Váá hvað Carroll er ekki með tötsið í lagi. Þarf oftast 2-3 snertingar bara til að ná stjórn á boltanum. Fáum Kuyt og Bellamy inn og göngum frá þessu. Skil ekki af hverju Kóngurinn skiptir ekki meira…?
Sigmundur Davíð:
október 29th, 2011 at 18:11
Vörnin búin að vera fáránlega solid í dag, þvílík maskína! Adam búinn að vera flottur á miðjunni í dag með Lucas og það er góður stígandi í leik Carroll. Downing er búinn að valda mér vonbrigðum í dag, með frábæra tækni og öskufljótur en það er eins og það komi aldrei neitt út úr því. En fyrst og fremst varnarlínan búin að vera stórkostleg!
Sæmi:
október 29th, 2011 at 18:14
Spurning um að Kóngurinn taki bremsuna af sambandi innáskiptingar, það sem ég var að óska. Að hvíla og nota
Hafliði:
október 29th, 2011 at 18:22
Óþægilegt hversu mikið við erum að hleypa WBA inn í leikinn þessar síðustu 10.
Vonandi fáum við ekki á okkur mark, kominn tími á clean sheet.
Eddi:
október 29th, 2011 at 18:24
Downing ætlar bara ekki að skila boltanum í markið….greyið segi ég nú bara….væri gaman að sjá hann fara að skora.
Suarez07:
október 29th, 2011 at 18:25
Stöngin hjá Downing… oohhh hefði verið æði að fá mark frá honum
Höddi B:
október 29th, 2011 at 18:26
Flottur SIGUR ! ! !
Auðunn G:
október 29th, 2011 at 18:26
Getur einhver sagt mér afhverju Arnar Björns heldur því fram að þetta hafi ekki verið víti??
arskí:
október 29th, 2011 at 18:37
Fyrsta skiptið sem liðið heldur hreinu á móti andstæðingi með fullskipuðu liði sem sagt fín vörn þrátt fyrir að Carrager sé ekki með,ágæt að sá gamli geti slakað á án þess að allt fari í kaldakol.Maður leiksins að mínu mati Jose Enrique.Fínn leikur
YNWA