Um höfundana: Kristján Atli

Ég heiti Kristján Atli Ragnarsson og er þrítugur. Ég bý í Hafnarfirði ásamt eiginkonu og dóttur.

Segja má að ég hafi nánast fæðst í Liverpool-treyju, þar sem ég ólst upp innan um eintóma Púllara. Ég hef haldið með Liverpool frá því að ég man eftir mér, og sennilega enn lengur.

Við Einar Örn eigum það sameiginlegt að dagsform okkar stjórnast að miklu leyti af gengi Liverpool í boltanum. Ef liðið er nýbúið að tapa leik þá er hægt að treysta á það að ég er ekki í skapi til að gera neinum greiða. Þeir sem þekkja mig vita hvenær best er að ræða við mig og hvenær best er að láta mig í friði. Þar að auki virðist forvitni mín gagnvart liðinu vera óþrjótandi. Auk þess virðist ég hafa þann hæfileika að enda allar samræður á Liverpool-spjalli. Einhverra hluta vegna virðist liðið alltaf berast í tal. Það er örugglega ekki mér að kenna.

Ég æfði fótbolta í rúman áratug. Byrjaði sex ára gamall með Keflavík, þar sem ég bjó á þeim árum í Njarðvík. Fluttist svo átta ára gamall til Hafnarfjarðar og æfði þar með FH allt þar til ég var átján ára. Þá hætti ég en hef reynt að stunda eins mikla lausamennsku og ég get síðan. Þá æfði ég einnig handbolta með FH, á 10-16 ára aldri, og hef enn mjög gaman af handbolta.

Auk þess að fylgjast með Liverpool vinn ég sem stöðvarstjóri hjá FMS í Hafnarfirði og á það til að stunda ritstörf í frístundum. Þess utan er helst að finna mig með nefið á kafi í góðri bók eða kvikmynd, eða dansandi við uppvaskið með góða tónlist í eyrunum.

Ég hef bloggað mörg ár, á ýmsum miðlum en þó alltaf í gegnum vefsíðuna mína og síðustu sjö árin hér á Liverpool blogginu..

Ef þú vilt koma einhverju á framfæri við mig, endilega sendu mér tölvupóst.