Ég fór á leikinn í gær ásamt rúmlega 41 þús. öðrum til að sjá stórstjörnurnar frá Englandi og þá náttúrulega sérstaklega Gerrard, Carragher og já líka Owen. Það var uppselt á leikinn, mikil stemming í Köben um daginn og margir Bretar sem voru á leiðinni á leikinn. Þeir voru út um allt. Fyrir leikinn sagði Morten Olsen að þessi leikur væri eingöngu æfingaleikur og skipti þá litlu máli, aðalatriðið væri næsti leikur gegn Tyrkjum (úti) þann 3. sept.
Hvað sem því líður þá var ljóst frá upphafi að Danir voru klárir í leikinn en Englendingar voru með hugann við smörrebröd og Tulip pylsur. Leikur kláraðist á fáum mínútum í seinni hálfleik þegar Danir skoruðu 3 mörk í röð og [leikurinn endaði 4-1](http://news.bbc.co.uk/sport2/hi/football/internationals/4161594.stm). Mikil stemming var á Parken, sungið var OL-SEN! og uppáhaldslagið hans Bjarna Fel. frá HM í Mexíkó, [Vi er røde, vi er hvide!](http://www.roliganklubben.dk/SANGE/4.htm) Danir eru yfirmáta ánægðir með sigurinn á meðan þetta er stærsta tap Englands í 25 ár. Hhhmm kannski var 6-1 tapið um árið ekkert svo slæmt!
"Goalscorers can go through times when things do not go right, but I have followed him recently," Aragones continued. "Morientes has always played well for Spain and has experience and is important both for scoring goals and for his all-round game."
"I hope nothing happens and Didi can stay fit," said manager Jurgen Klinsmann, who has named Hamann in two previous squads, only for the 58-times Germany international to drop out injured. "He has a strong personality and, despite many injuries, has stuck at it and played a big part in Liverpool's Champions League success."Að lokum [talar](http://skysports.planetfootball.com/list.asp?hlid=298193&cpid=8&CLID=14&lid=&title=Reds+working+on+additions&channel=football_home) Rick Parry um að Liverpool MUNI kaupa tvo leikmenn áður en félagsskiptaglugginn lokar sem og þau vonbrigði að Gonzalez fékk ekki atvinnuleyfi. Greinilegt er að Rafa hefur gríðarlegt álit á drengnum.
Það verður að segjast, við Einar Örn vorum búnir að margspá þessu hér á blogginu. Fólk þarf bara að skoða færslurnar frá því í lok maí/byrjun júní til að sjá að við vorum ekki efins, við vorum vissir um að Milan Baros yrði ein af stjörnum EM 2004.
Í ljós hefur komið að við höfðum rangt fyrir okkur. Milan Baros er ekki ein af stjörnum EM 2004. Hann er stjarna EM 2004. Punktur.
Í kvöld lágu Danir í því. Þeir steinlágu fyrir Tékkum, 3-0 í leik sem var í raun jafnari en þær tölur gefa til kynna. Það sem bar á milli í hnífjöfnum leik var það sem hefur skilið Tékka frá öllum mótherjum sínum í þessari keppni hingað til: þeir hafa leikmenn sem þurfa ekki nema eitt tækifæri. Þeir refsa andstæðingunum best allra liða í Evrópu í dag.
Jan Koller. Marek Heinz. Pavel Nedved. Karel Poborsky. Tomas Rosicky. Vladimir Smicer. Og Milan Baros. Þetta eru allt leikmenn sem refsa andstæðingunum grimmilega fyrir mistök ...
Eins og staðan er núna eru Tékkar komnir í undanúrslit og mæta þar Grikkjum. Í hinum undanúrslitaleiknum mætast heimamenn í Portúgal og hinir sókndjörfu Hollendingar. Milan Baros er nú markahæstur í Evrópukeppninni með 5 mörk í 4 leikjum og hefur skorað í síðustu sex landsleikjum Tékka í röð. Ágætt það ... aðeins Ruud Van Nistelrooy getur ógnað honum sem markakóngi EM, sá hollenski er kominn með 4 mörk í 4 leikjum og er sá eini af markahæstu mönnum keppninnar, fyrir utan Baros, sem er enn með í keppninni. Þannig að annar þeirra mun væntanlega verða markakóngur ... og eins og staðan er í dag myndi ég ekki veðja á móti Baros.
Þvílík mörk. Í fyrra markinu gaf Poborsky frábæra stungusendingu innfyrir vörnina og Baros stakk sér á milli varnar og markmanns, sumir myndu segja í anda Michael Owen, og lyfti boltanum svo rólega yfir Sörensen í marki Dana. 2-0.
Seinna markið var öllu massífara, en engu að síður alveg jafn öflugt. Aftur kom stunguboltinn innfyrir, í þetta sinn vinstra megin við miðverði Dana, og Baros hljóp þá einfaldlega af sér. Tók eina snertingu inn í teiginn og dúndraði boltanum svo upp í þaknetið með vinstri fæti ... óverjandi fyrir Sörensen sem verður varla sakaður um neitt af mörkum Tékka í kvöld!
Þessi drengur er bara orðinn svo góður framherji að það hálfa væri nóg. Á blaðamannafundi í morgun sagði hann frá því að hann var reiðubúinn að yfirgefa Liverpool í vor áður en að Houllier var rekinn. Sennilega væri hann farinn frá félaginu í dag ef Houllier væri enn stjóri - þar sem hann (og við aðdáendurnir) var mjög ósáttur við það að vera alltaf settur á bekkinn á meðan gúmmítékkinn Emile Heskey fékk að spila, alveg sama hversu lítið hann skoraði.
Svo fór Houllier, Benítez kom og Heskey var seldur. Nú sér Baros fram á bjartari tíð hjá Liverpool og þrátt fyrir komu Djibril Cissé í sumar ætti Baros, í ljósi framgöngu sinnar á EM, að geta gert ráð fyrir miklu fleiri tækifærum með liðinu næsta vetur. Sem er gott - því nú eigum við þrjá heimsklassaframherja sem eiga allir jafnt tilkall til byrjunarliðsins í vetur. Sem þýðir að við þurfum vonandi aldrei aftur að líða Owen að spila áfram í byrjunarliðinu þrátt fyrir 10-leikja markaþurrð. Hann er að sjálfsögðu okkar maður #1 (þ.e.a.s. ef hann er enn á Anfield í byrjun leiktíðar) en ef hann eða Cissé (sem ég geri ráð fyrir að fái að byrja leiki með Owen í upphafi leiktíðar) eru ekki að spjara sig þá á að slúffa þeim, umsvifalaust. Baros er ekki lengur framtíðin - Baros er núna og hann á að fá að spila með byrjunarliðinu NÚNA!
Ókei, þannig að uppáhaldslið okkar Einars, Hollendingar, rétt mörðu Svía í vítaspyrnukeppni í kvöld. Sem betur fer, annars held ég að Einar hefði staðið sig frekar illa á viðskiptafundum í Houston næstu vikuna... :)
Þessi leikur olli samt nokkrum vonbrigðum að mínu mati. 0-0 eftir framlengingu var ekki það sem ég hefði giskað á, enda um tvö af skemmtilegustu sóknarliðum keppninnar að ræða. En þegar svona langt er komið í stórmóti sem þessu er ekki við öðru að búast en að menn leggi ofurkapp á að fá ekki á sig nein klaufamörk - og fyrir vikið varð leikur beggja liða mjög varkár, hægur og fyrirsjáanlegur. Vissulega fengu bæði lið nóg af tækifærum til að klára dæmið en á endanum var jafntefli sennilega sanngjörn niðurstaða og því þurfti happdrættið til að útkljá það hvort liðið fékk að halda áfram.
Á morgun: Milan Baros gegn frændum vorum: Tékkland - Danmörk! Það ætti að verða rrooooossalegt! Ég á enga ósk heitari en þá að Baros endi keppnina með fleiri mörk skoruð en Wayne "Shrek" Rooney. Og það væri líka það besta sem gæti komið fyrir okkur Liverpool-menn, að með góðri frammistöðu í þessu móti myndi Baros neyða Benítez til að líta á sig sem hugsanlegan byrjunarliðsmann í vetur. Við þurfum smá heilbrigða samkeppni þarna frammi, Owen og Heskey voru öruggir í liðið síðustu árin en nú ber annað við. Cissé, Baros og Owen eiga að standa jöfnum fæti í þessu liði að mínu mati.
Sjáum til, en ég spái allavega einu marki hjá okkar manni í bláu skónum á morgun...

Haldiði að Englendingar hafi ekki tapað fyrir Portúgölum í 8-liða úrslitunum á EM í kvöld? Og það 6-5 í vítaspyrnukeppni ... eftir að Owen hafði komið Englendingum yfir og Lampard jafnað fyrir þá í framlengingu töpuðu þeir 6-5 í vítaspyrnukeppni. Vondu kallarnir: David Beckham (yfir) og Darius Vassell (varið). Sem betur fer fyrir okkur L'pool-aðdáendur skoraði Michael Owen úr sinni spyrnu ... hann hefði eflaust misst allt sjálfstraust á ný ef hann hefði klúðrað enn einni spyrnunni.
Vissulega er aðeins eitt sem allir Liverpool-aðdáendur hugsuðu þegar þeir sáu Englendinga ganga niðurlúta af velli. Nefnilega: "Núna leysist Gerrard málið vonandi strax á morgun!"
Og það er einmitt málið. Nú, þar sem Englendingar eru úr leik, er Steven Gerrard ekki lengur bundinn þagnarskyldu varðandi félagsliðamálefni. Næst þegar hann talar við blaðamann, væntanlega á morgun, verður hann 100% örugglega spurður hvort hann sé á leið til Chelsea. Og þá fáum við væntanlega svar ... þar sem hann er ekki þekktur fyrir annað en hreinskilni í viðtölum!
Annars benti félagi minn mér á góða grein um Gerrard-málefnin núna í kvöld og mér fannst rétt að deila henni með ykkur. Greinina í heild sinni má lesa hér á spjallborði Liverpool.is, en ég hef valið úr nokkra frábæra punkta:
>The rumours spread like wild fire. Just like the vermin press many Liverpool supporters completely overlook the fact Gerard was happy to sign an extension to his contract earlier this year. They instead jump all over Gerrard. They are all raging. No matter what Gerrard does now he will be damned for eternity in their eyes. Why can’t Gerrard just come out and say something? Why cant Gerrard just open his mouth and let the supporters who love and adore him know his true intentions? "We have helped him be where he is today, we deserve better than to be hoodwinked" is the familiar cry. A large percentage of Liverpool's own fan base are seriously angered and now talk of Gerrard with pure hatred NOT love.
Nákvæmlega. Gleymum ekki hvað það er stutt síðan Gerrard skrifaði undir samning við liðið. Krossfestum hann ekki fyrr en hann sjálfur hefur staðfest að hann sé að fara, ókei?
>In Portugal Gerrard is aware of what’s happening but two things are a problem here. Firstly he can’t talk to the press about club football, the FA have banned it. Secondly, he still wants a few world-class players to be signed. That hasn’t been achieved yet. If he was to come out and say "I'm staying put" and then get home to find there will be no knew players he will then look a right ******* if he then decided to go. Bringing in Benitez was the right way to go. It has helped matters but there still needs to be new faces of real quality.
Og að lokum...
>I am sure Gerrard will stay. Like I have already said it doesn’t make sense for him to leave now when we are about to embark on a new dawn. I am sure he will at least give the manager one season to see how things go. But why would he if the majority of supporters decide to lower their support for him just because he didn’t, for the umpteenth time, pledge his future to the club. And just because he didn’t break FA rules and speak out about it. Because he waited to see what new faces where in place first before saying something. If he commits then Parry will take this as being off the hook. Yet many Liverpool supporters know we need a few new faces of real quality. Gerrard could just be using the player power he has to force the clubs hand. Owen was being praised for doing this yet Gerrard isn’t being afforded the same thing.
Þetta mál með Gerrard hlýtur að leysast á morgun eða hinn ... þ.e.a.s. að ef hann ætlaði sér aldrei að fara og þetta er bara slúður hlýtur hann að leiðrétta það sem fyrst, nú þegar hann má loks tjá sig aftur um klúbbamál. Ef hann hefur enn ekkert sagt á mánudaginn næstkomandi tek ég það sem sterkustu sönnunina hingað til um að hann sé virkilega að fara. Þannig að nú bíð ég bara spenntur eftir að fara á netið á morgun, þar sem ég vænti þess að sjá Steven Gerrard tjá sig um málið!
EM er að hefjast eftir nokkra daga og allir að deyja úr spenningi. Ég held með Hollandi og hef gert það alveg síðan ég var 10 ára gamall. Fyrir utan Holland, þá fylgist maður af áhuga með Liverpool mönnum á EM og þeim mönnum, sem Liverpool hafa verið orðaðir við. Ég tók bjó til smá samantekt um þá menn, sem Liverpool stuðningsmenn ættu að fylgjast með á EM.