Liverpool-borg

Hérna er ætlunin að safna saman því sem við mælum með í Liverpool-borg og einnig upplýsingum um það hvernig maður á að nálgast miða, hvar er best að sitja á vellinum og svo framvegis.

Ef þú ert með góðar ábendingar eða vilt bæta við þennan texta endilega settu inn komment og við bætum því við textann, sem okkur finnst eiga heima þar.

Hótel

Base 2 Stay er fínt hótel á mjög góðum stað í hjarta Liverpool-borgar – veitingastaðir og næturklúbbar eru í göngufjarlægð. Herbergin eru lítil en fín og verðið á þeim er gott. Allt frekar nýlegt, en ekki er boðið uppá morgunmat á hótelinu – þó það sé boðið uppá kaffi á herbergjum og öðru hvoru birtist Nespresso vél í lobbíinu. (Einar Örn)

Crowne Plaza er lítið og frábært hótel niðri við höfnina, við enda miðbæjarins á besta stað. Allt í göngufjarlægð og góður veitingastaður á hótelinu sjálfu líka. Húsið er nýlegt og allur innbúnaður eins og best verður á kosið. Boðið er upp á morgunmat og herbergisþjónustu sem og netsamband. Viðráðanlegt verð. (Kristján Atli)

Jury’s Inn er besta „value“ hótel sem þú færð í Liverpool.  Er við Albert Dock og mjög nýlegt, en bjóða góð verð.  Frábær staðsetning, ágætur veitingastaður og góður hótelbar.  Fínn morgunverður, þrálaust net og allt sem menn þurfa.  Echo Arena tónleikahöllin fyrir utan hótelið, sem og Parísarhjólið.  (SSteinn)

Malmaison er virkilega flott hótel rétt við Albert Dock sem er reyndar frekar dýrt.  Frábær veitingastaður á hótelinu og fín staðsetning, hár klassi og verðið eftir því.  (SSteinn)

Premier Inn eru low cost hótel, en snyrtileg og fínt að vera þar.  2 slík eru í borginni og get ég mælt með þeim báðum.  Annað er í Albert Dock en hitt við Vernon Street í miðborginni.  Ekkert extra, bara fín gisting á mjög góðu verði.  Morgunmatur, aðrar veitingar á báðum hótelum. (SSteinn)

Radisson Blu er mjög flott hótel, en í dýrari kantinum.  Allt sem alvöru hótel hafa upp á að bjóða, en matsöustaður og bar með há verð í samanburði við önnur hótel.  Staðsetningin ágæt, stutt að rölta í miðbæinn (10 mín á labbi). (SSteinn)

Days Inn er hótel í minni kantinum, nánast ekkert lobby, en þetta er ný uppgert hótel á góðum stað og á góðum verðum.  (SSteinn)

Thistle, Atlantic Tower er ekkert spes hótel, en stundum með ágætis tilboð í gangi.  Ágætis staðsetning.  (SSteinn)

Adelphi er glæsilegt hótel að utan, en ekki svo gott að innan.  Mæli ekki með því, má muna sinn fífil fegurri.  En frábær hótelbar og þess virði að kíkja á hann þó maður gisti ekki þar.  (SSteinn)

Holiday Inn Express er hótel í Albert Dock, hef einu sinni gist þar, var ekkert sérlega hrifinn.  Góð staðsetning engu að síður.  (SSteinn)

Holiday Inn er flott hótel, í dýrari kantinum, en vel staðsett og með allt sem þú kýst að hafa í ferðum þínum (SSteinn)

Aachen hótelið er lítið hótel sem tvær systur reka.  Þetta er fyrsta hótelið sem ég dvaldi á í Liverpool og ef þú vilt heimilislega stemmningu, þá er þetta staðurinn.  Lítill bar, morgunmatur og góð staðsetning.  Fín verð.  (SSteinn)

Hard Days Night er eins og nafnið ber með sér, Bítlaþema hótel sem mikið hefur verið lagt í.  Fræga fólkið gistir oft þarna og bara til að taka það fram, þetta er ekki gefins, kostar sitt en eins og áður segir, flott.  (SSteinn)

Lord Nelson er ódýrt, og langt síðan ég gisti þarna.  En það er líka ástæða fyrir því að ég hef aldrei gist þarna aftur.  (SSteinn)

The Renshaw er lítið hótel í miðbænum.  Hreint og fínt og fínn veitingastaður og bar fast við hótelið.  Herbergin fín, en nánast ekkert lobby.  (SSteinn)

Page 1 of 3 | Next page