Ég er að fara til útlanda á miðvikudaginn. Fyrst til Póllands og svo til Svíþjóðar. Það lendir þannig að næsta laugardag og næsta miðvikudag verð ég í Stokkhólmi.
Því langar mig að vita hvar ég get horft á Liverpool leikina í Stokkhólmi. Veit það einhver? Eru einhverjir Liverpool pöbbar í Stokkhólmi? Ég missi af Portsmouth leiknum og höndla því ekki að missa af hinum leikjunum.
tjahh, hann Thomas Brolin rekur einhvern fótboltapöbb þarna í stokkhólmi minnir mig, gætir jafnvel verið svo heppinn að rekast á kappann þarna 😛
🙂
Jamm, eflaust er fullt af pöbbum sem sýna leikina, en ég hefði gaman af því að vera á pöbb með Liverpool mönnum, ekki einhverjum gömlu Leeds-urum 🙂
mmkay, eftir því sem ég fæ að vita frá kunningja mínum sí svíþjóð, nota bene, hann býr ekki í stokkhólmi, en þá er o’learys bar, mikið sóttir staðir þarna af púllurum sem og reyndar öðrum, en þú getur séð staðsetningu pöbbanna þeirra í stokkhólmi
http://www.olearys.se/Index.asp?ListUnits=True&DBArea=6
þarna 😛
Er einhver með nafn og staðsetningu á pöbb í London þar sem hægt er að horfa á Liverpool leiki í góðri stemmningu? Ég vil helst ekki lenda í því að horfa á undanúrslitaleikina á pöbb sem er fullur af Chelsea mönnum, en veit ekki hvert ég ætti að fara í London.
O’Learys við Slussen er ágætur… sýna yfirleitt leiki á mörgum skjám, þ.a. þú ættir að geta séða leikinn þar
Takk kærlega, Bryndís og Elmar 🙂