YNWA halda því [fram á forsíðu](http://www.ynwa.tv/news/index.php?newsid=1951) að Luis Figo hafi skrifað undir samning við Liverpool og verði kynntur á mánudaginn.
YNWA setja ekki hluti á forsíðuna hjá sér nema að það sé frá *mjög* áreiðanlegum heimildum innan Anfield. En hins vegar þá hafa þeir líka klikkað. Ég ætla allavegana að bíða með að fagna þar til ég sé þetta á official síðunni. 🙂
**Uppfært (EÖE)**: YNWA hafa [viðurkennt](http://www.ynwa.tv/forum/index.php?showtopic=69439) að þetta hafi verið mistök hjá þeim. Ekkert hefur verið staðfest. Það verður þó að teljast líklegt að Figo komi til Liverpool, en hann er ennþá með Real Madrid í Bandaríkjunum. Vonandi að þetta skýrist snemma í næstu viku.
Þeir halda því líka fram að Figo sé staddur í Liverpool-borg þessa helgina.
Figo spilaði í kvöld æfingaleik með Real Madríd í Chicago-borg í Bandaríkjunum.
Ég held því miður að YNWA.tv hafi látið gabba sig í þetta skiptið … hins vegar gæti það vel verið rétt að umboðsmaður Figo sé í Liverpool að ganga frá skilmálum fyrir hans hönd, en eins og þú sagðir Einar þá trúi ég því þegar ég sé það.
væri bara snild
Var að sjá það á Goal.com að Real leikmennirnir Figo og Samuel verði orðnir Inter leikmenn á miðvikudag. 🙁
http://www.goal.com/NewsDetail.aspx?idNews=74326&idSez=20
Var að sjá það á Goal.com að Real leikmennirnir Figo og Samuel verði orðnir Inter leikmenn á miðvikudag. 🙁
http://www.goal.com/NewsDetail.aspx?idNews=74326&idSez=20