Okkar menn eiga seinni leikinn við CSKA Sofia frá Búlgaríu á morgun á heimavelli, Anfield Road, eftir að hafa unnið fyrri leikinn 3-1 í Búlgaríu.
Sem sagt, til að vinna þetta einvígi þarf Sofia-liðið að vinna á morgun annað hvort 3-0, 3-1 til að fá framlengingu eða 4-2 (eða 5-3, 6-4 o.sv.frv. … )
Geta þeir það? Þetta lið kann að spila, við sáum það í Búlgaríu, þannig að ef Graz AK gátu unnið okkur á Anfield fyrir nákvæmlega ári síðan geta Sofia-menn það svo sem líka. En geta þeir skorað þrjú mörk á okkur á Anfield? Stutt svar: NEI!
Þannig að það er frekar erfitt að vera að spenna sig upp yfir þessum leik, í hreinskilni sagt. Mér líður eins og ég gæti allt eins eytt tímanum í að velta fyrir mér mögulegum mótherjum í Meistaradeildinni, en það er dregið í riðla á föstudag, í stað þess að eyða tíma í þessa upphitun. Þannig að þetta verður stutt og blátt áfram.
LÍKLEGT BYRJUNARLIÐ:
Josemi – Carragher – Whitbread – Warnock
Potter – Alonso – Hamann – Riise
García
Cissé
Með öðrum orðum, Rafa stillir upp sterku liði en hvílir samt lykilmenn. Við vitum að Gerrard er meiddur og ég giska á að hann hvíli einnig Morientes, Sissoko, Zenden, Finnan og Hyypiä – sem hafa allir byrjað síðustu tvo leiki okkar – auk þess sem það kæmi mér ekkert á óvart að sjá Carson fá að spreyta sig í markinu.
MÍN SPÁ: 4-0 fyrir Liverpool. Ég spáði markasúpu sl. laugardag á þeim rökum að okkar menn væru hungraðir í mörk eftir markaleysið gegn Boro. En svo náðum við bara einu marki, úr aukaspyrnu, gegn Sunderland, og því ættu menn að vera orðnir verulega hungraðir núna. Og með stórlið eins og Liverpool er það yfirleitt raunin að því lengur sem líður án þess að liðið rassskelli eitthvað lið, því styttra er í næstu rassskellingu. Og ég væri alveg til í að sjá Sofia-menn komast að því hvar Davíð keypti ölið annað kvöld.
EINNIG MÍN SPÁ: Cissé skorar allavega tvö mörk. Sjáiði bara til. Rafa gefur Morientes frí en setur hann inná í seinni hálfleik í von um að báðir framherjar hans skori – til að drepa gagnrýnina aðeins niður – en aðallega mun hann vona að Cissé sýni mönnum að við þurfum ekki að örvænta. Gleymum því ekki að Cissé er þegar kominn með 4 mörk á þessu tímabili og Morientes 2, en samt virðast ansi margir alveg pottþéttir á því að við séum ekki með neinn framherja sem getur náð 20 mörkum yfir veturinn. Skrýtið, ef þið spyrjið mig.
Allavega, þetta verður kannski ekkert ofboðslega spennandi leikur en hann gæti orðið skemmtilegur. Vonum það allavega! 🙂
Er ekki möguleiki á því að Pongolle og Traore verði á bekknum?
Þetta verður auðveldur sigur og margir ungir leikmenn fá góða reynslu út úr þessum leik og ennþá aðrir smá boozt fyrir sjálfstraustið!
Nei, þeir verða örugglega ekki á bekknum, þar sem þeir spiluðu í gær.
Hins vegar verður athyglisvert að sjá hvort að Antonio Barragan [fái sjens í kvöld](http://www.liverpoolfc.tv/news/drilldown/N149761050823-0900.htm)
Nokkrir áhugaverðir punktar af bbc:
Já, ég væri til í að sjá Barragan spila í kvöld. Forvitinn að sjá hvað hann getur, úr því Rafa telur hann geta komið beint inn í hópinn aðeins 17 ára gamlan.
Svo býst ég við að sjá Hamann og Potter, að minnsta kosti.