Jújú, það er oft gaman að fara á Laugardalsvöllinn og hvetja íslenska landsliðið til dáða, og það getur verið ágætis tímasóun svo sem að horfa á enska landsliðið spila í sjónvarpinu … en ég get ekki að því gert, mér leiðist fátt jafn mikið og hlé á enska boltanum vegna landsleikja! Fyrir vikið eru rúmar tvær vikur á milli leikja hjá Liverpool og heilar þrjár vikur á milli deildarleikja! Það er, að mínu mati, allt of mikið.
Allavega, í tilefni af þessum taumlausu leiðindum sem landsleikjahelgarnar geta verið hef ég sett saman svona Topp 10 lista, og hér kemur hann. Endilega bætið ykkar eigin listum við ef þið lumið á einum… 😉
Topp 10 Atriði Sem Benda Til Þess
Að Þú Sért OF HARÐUR Liverpool Aðdáandi!
#10 – Þú nærð í mp3-skrár af útvarpslýsingum John Aldridge af Liverpool-leikjum á netinu og setur inná iPod-inn þinn (nefnum engin nöfn hér…)
#9 – Þér finnst ekkert meira sexý en að sjá maka þinn í Liverpool-treyju, og engu innanundir, en dettur alveg úr stuði þegar þú sérð að það stendur DIOUF og 9 á bakinu.
#8 – Ef þú ert farinn að leggjast svo lágt að ræða Liverpool-málefni líðandi stundar í jarðaförum, á meðan verið er að láta kistuna síga niður í holuna!
#7 – Ef þú áfrýjar til mannanafnanefndar þeirri ákvörðuna prestsins að neita að skíra son þinn Rafa Davíð Kristmundsson.
#6 – Ef þú vilt að Michael Shields hljóti frelsi – eingöngu vegna þess að þar gæti mögulegur stjörnuframherji verið á ferðinni…
#5 – Ef uppáhalds myndin þín er The 51st State með Samuel L. Jackson, og þú hefur séð hana oftar en 51 sinni, bara af því að í henni er atriði þar sem Robert Carlyle, íklæddur Liverpool-treyju, gengur inná pöbb fulla af Man U aðdáendum og rústar þeim öllum!
#4 – Ef þú lætur söngvara syngja ‘You’ll Never Walk Alone’ í brúðkaupinu þínu og tárast yfir laginu (játiði, það eru margir sekir um þetta atriði)!
#3 – Ef Bítlarnir eru uppáhalds hljómsveitin þín en þú átt ekki eina einustu plötu með þeim. Ótrúlega margir sem detta í þessa gryfju!
#2 – Ef þú tekur hann/hana með þér á Players til að horfa á nágrannaslaginn við Everton á fyrsta deiti!
Og atriði #1 sem bendir til þess að þú sért allt of harður Liverpool aðdáandi er…
#1 – Ef þú hefur séð fleiri leiki með Liverpool í eigin persónu heldur en leiki í íslenska fótboltanum!
Og þannig var nú það. Skora á ykkur lesendur að bæta við og/eða koma með eigin lista! 🙂
p.s.
Mæli með tveimur góðum pistlum frá Alex Malone, svona til að stytta biðina eftir næstu helgi: Goodbye Michael – Mediocrity Awaits og Doubt Rafa? This One’s For You!
Góða helgi.
Sá sem uppfyllir allt þetta hlýtur að vera staddur á Kleppi núna eða að það sé verið að sækja hann. Ég gæti helst samsvarað mér við #9 en #4 gæti komið í framtíðinni… :biggrin2:
Sekur um 10 – 9 og 3 :rolleyes:
Hehe.. Nr. 5 er ég nánast sekur um. Lagið ódauðlega YNWA verður pottþétt spilað í minni jarðarför annars tryllist ég! veit ekki með brúðkaupið hins vegar :rolleyes:
Hmm, ég hef séð fleiri leiki á anfiled en í úrvalsdeild hér heima!!!!!!!!!!
En maður er aldrei of heitur stuðningsmaður LFC.
You´ll Never Walk Alone.
” Lagið ódauðlega YNWA verður pottþétt spilað í minni jarðarför annars tryllist ég!”
I like to see that happen.
Haha! :laugh:
Sjálfur er ég bara sekur um #10 … 🙂
Já, bróðir minn lét Bjarna Ara syngja YNWA í brúðkaupinu sínu en hann lét það vera að gráta, þetta framkallar frekar gæsahúð því þetta er Evrópumeistara söngur