Jæja, **West Ham United** sigruðu Middlesbrough í dag í undanúrslitum FA Bikarkeppninnar með einu marki gegn engu.
Það þýðir að við mætum Hömrunum í bikarúrslitunum á sunnudag eftir nákvæmlega þrjár vikur. Það ætti að verða skemmtilegur og spennandi leikur.
Svo skemmtilega vill til að við eigum að mæta Hömrunum á Upton Park á miðvikudaginn í deildinni. Við unnum heimaleikinn auðveldlega, 2-0 í október síðastliðnum en síðan þá hafa þeir náð upp góðu skriði í deildinni og eru nú í góðri stöðu til að ná sæti í Evrópukeppni félagsliða, þrátt fyrir að vera nýliðar í vetur.
Þetta ættu að verða hörkuskemmtilegar viðureignir, bæði í deildinni á miðvikudag og í bikarnum eftir þrjár vikur. En fyrst og fremst verð ég bara að segja að ég er *feginn* að Middlesbrough komust ekki í bikarúrslitin. Þeir eru með svo leiðinlegt lið, og Steve McClaren spilar svo neikvæðan og leiðinlegan bolta að ég hefði ekki séð fram á neitt annað en 90 mínútna varnartaktík hjá þeim gegn okkur í bikarúrslitum. Sem betur fer gerðist það ekki og við fáum að mæta liði sem þorir að sækja.
Til hamingju Hamrar, sjáumst í Cardiff!
Já ég er mjög sáttur með að fá West Ham. Virkilega vel spilandi lið og svo hef ég líka verið ákaflega hrifinn af Alan Pardew.
Annars skiptir það engu málið hvort Þeir endi í topp 7 í deildinni eða ekki, þeir fá sjálfkrafa sæti í UEFA Cup af því að þeir komust í úrslitaleik FA Cup.
Gerrard leikmaður ársins….Úje
Sá leikinn og West Ham átti þennan sigur fyllilega skilið. Harðduglegir og með mikla leikgleði. Ég fíla ekki Middlesboro og í raun skiptir ekki hvoru liðinu við mætum, við VINNUM þennan bikar… það er ljóst.
En tillykke West Ham.