Jæja, liðið er komið og Rafa stóð við þau orð að hann myndi hvíla menn. Hann gerir alls **átta** breytingar í dag, en þar á meðal eru þau tíðindi að þeir Steven Gerrard, Peter Crouch og Harry Kewell eru ekki einu sinni í hóp:
Finnan – Carragher – Traoré – Warnock
Kromkamp – Sissoko – Hamann – Cissé
Fowler – Morientes
**BEKKUR:** Reina, Hyypiä, Alonso, García, Riise.
Warnock og Traoré saman í vörninni? The Dude í markinu? Enginn Gerrard og enginn Alonso?
Það er nákvæmlega *engin* pressa á okkar mönnum í þessum leik. Njótum þess bara að horfa á slíkan leik, þó ekki sé nema einu sinni. Þetta verður annað hvort skyldusigur, 0-1 þökk sé Fowler, eða þá eitthvað í líkingu við stjörnuhrap. Við gætum vel tapað þessum leik *illa* með þetta byrjunarlið. En við sjáum til.
þetta er nú eitthvað það rosalegasta lið sem ég hef séð samankomið á velli!
svei mér þá ef barca-milan fær ekki að njóta forgangs í þetta eina skiptið…
nei Liverpool hefur alltaf forgang sama hvað annað er í gangi, en annars tók ég lengju og setti X svo ég er sáttur með jafntefli 🙂
Af hverju er Dudek í markinu? Ég hefði haldið að markvörður þyrfti ekki hvíld í fótbolta. En samt guð minn almáttugur með þetta byrjunarlið. Jæja þetta verður áhugavert 🙂
VEIIIIII… Ég er gestur nr. milljón (1.000.000)… Í tilefni af því mun Liverpool vinna í kvöld, 1-2 og Kromkamp skorar sigurmarkið…
:laugh: :laugh: :laugh:
Til hamingju, GK 🙂
Við ákváðum að uppfylla ósk þína. Verst með Kromkamp – það var til of mikils ætlast.
Já, sorry… ég er sáttur með að þið létuð Cissé skora tvö…
:tongue: