Það er föstudagur og venjulega værum við að skrifa upphitun fyrir hádegisleik á morgun. Getur verið að við höfum, utan leiksins við Chelsea fyrir mánuði, spilað alla deildarleiki okkar til þessa í hádeginu á laugardegi? Getur verið að það sé rangt hjá mér, en mig minnir það allavega.
En við eigum sem sagt leik á sunnudaginn við erkifjendurna í Man U og það eru ýmsar fréttir því tengdar. Síðast þegar liðin mættust í febrúar unnum við þá á Anfield í bikarnum, en höfum þó tapað öllum leikjum fyrir þeim á Old Trafford síðan Rafa Benítez tók við stjórninni. Í þessum leik í febrúar hlaut Alan Smith, leikmaður United hræðileg meiðsli og hefur verið frá síðan. Hann tjáir sig um þessi meiðsli og segir starfslið Liverpool á Anfield hafa bjargað ferli sínum með skjótum viðbrögðum. Fróðlegt viðtal og gaman að sjá að hann er að komast á ról aftur – þeir eru erkifjendur okkar en það er sama hvort þeir heita Smith eða Petr Cech, maður óskar engum að lenda í jafn alvarlegum meiðslum og þessir tveir hafa lent í.
Talandi um meiðsli, þá eru Gerrard, Agger og ALLIR AÐRIR heilir heilsu hjá okkar mönnum fyrir leikinn á sunnudaginn og Rafa er skiljanlega fullur sjálfstrausts í kjölfarið.
Þó er einn sem er kannski ekki jafn fullur sjálfstrausts fyrir helgina. Peter Crouch getur nefnilega engan veginn verið viss um að sigurmark hans á miðvikudaginn tryggi honum sæti í næsta leik, þar sem Rafa hefur verið nokkuð miskunnarlaus í róteringu sinni á framherjunum sínum fjórum. En þótt ég sé fylgjandi þeirri stefnu Rafa að rótera mönnum og halda öllum ferskum út tímabilið þá er ég á þeirri skoðun að Peter Crouch eigi að vera fyrsta nafnið á leikskýrsluna hjá okkar mönnum á sunnudaginn. Skoðið bara ástæðurnar:
* Við unnum síðasta leik gegn United 1-0 á Anfield. Sigurmarkið skoraði … Peter Crouch.
* Síðast þegar við spiluðum útileik í deildinni töpuðum við fyrir Bolton, 0-2. Í leiknum þar á undan hafði Crouch farið á kostum og skorað tvö glæsimörk gegn Galatasaray í Meistaradeildinni, en var samt á bekknum gegn Bolton.
* Crouch skoraði sigurmarkið í síðasta leik okkar, gegn Bordeaux í Meistaradeildinni fyrir tveimur dögum.
* Þegar Crouch var keyptur sagði Rafa að hann væri keyptur sérstaklega með erfiða útileiki í huga. Er ég sá eini sem er þeirrar skoðunar að útileikur gegn Man U sé með þeim erfiðari sem liðið okkar lendir í?
* Liðið hefur tapað þremur útileikjum til þessa (Everton, Chelsea, Bolton) og rétt sloppið með jafntefli í þeim fjórða (Sheff Utd). Af þessum fjórum útileikjum í deildinni hefur Crouch aðeins byrjað inná í einum, gegn Everton, og var þar sjáanlega örþreyttur eftir að hafa spilað mikið með enska landsliðinu á dögunum áður.
* Hann hefur hins vegar byrjað inná í tveimur af þremur leikjum liðsins í Meistaradeildinni til þessa, gegn Maccabi Haifa og Bordeaux, og í þeim báðum skoraði hann eina mark liðsins. Hann var á bekknum gegn PSV á útivelli og sá leikur fór 0-0.
* Útileikir Liverpool: Maccabi Haifa, Sheffield United, Everton, PSV, Chelsea, Bolton, Bordeaux. Fyrir utan vítapsyrnu Robbie Fowler gegn Sheffield United ER PETER CROUCH EINI LEIKMAÐUR LIVERPOOL SEM HEFUR SKORAÐ Á ÚTIVELLI Á ÞESSU TÍMABILI!!!
Come on, Rafa, leyfðu risanum okkar að spila á sunnudaginn. Þú veist að hann á það skilið.
Nákvæmlega, hann á það skilið sá stóri… auk þess hefur hann verið sjóðheitur með landsliðinu á Old Trafford – kann greinilega vel við sig þar !
Ef við spilum 4-4-2 þá byrjar hann örugglega með Crouch og Kuyt saman frammi.
Það þýðir alla vega ekki að hafa Crouch einan frammi… hann er hræðilegur sem einn framherji. Þá verður Kuyt ávallt á undan honum í byrjunarliðið.
Annars held ég að Rafa spili 4-5-1:
Reina
Finnan – Carragher – Hyypiä – Riise
García – Sissoko – Alonso – Aurelio
Gerrard
Kuyt
BEKKUR: Martin, Zenden, Pennant, Crouch og Agger.
Persónulega myndi ég frekar vilja sjá Gonzalez í stað Zenden… já reyndar bara hvern sem er.
Það væri ekkert annað en hrópleg ósanngirni gagnvart Crouch að leyfa honum ekki að byrja inn á. Allir leikir nema þessi Chelsea-leikur, svo var Blacburn um daginn á venjulegum tíma, var það ekki?
Annars vil ég sjá þessu stillt svona upp á sunnudaginn:
Reina
Finnan-Carragher-Hyypia-Riise
Gerrard-Alonso-Sissoko-Garcia
Crouch-Bellamy
Kuyt getur svo komið ferskur inn af bekknum í sinni hálfleik, kannski skorað eitt.
Við mættum líka Newcastle á miðvudagskvöldi þegar Alonso skoraði frá eigin vallarhelmingi.
Vonum bara að Alan Smith og co verði “groggy” um helgina. :laugh:
Ég óska Alan Smith skjóts bata og vona að honum líði vel um helgina, líkamlega. Andlega hins vegar vona ég að hann og aðrir samstarfsaðilar hans upplifi mikla lægð u.þ.b. síðdegis á sunnudag. 😉
Spiluðum við ekki við Blackburn á “eðlilegum” tíma síðasta laugardag í deildinni? :confused:
Smá leiðrétting, það eru allir heilir NEMA Kewell.
Hvað er langt í að Harry Kewell kemur aftur veit það einhver?
Liv hefur ávalt staðið sig vel á móti(stóru)liðunum eins og chelsea (unnum góðgerðarsk,)en töpuðu fyrir þeim 1-o á þeirra velli og í gegnum tíðina haft tök á M U,en hafa átt í basli með(smærri)liðin ég held að liv vinni á sunnudaginn látum Rafa sjá um uppstillingu á liðinu ég held að hann viti betur en við það er alltaf talað um slæma uppstillingu ef við töpum en svo þegar við vinnum þá var allt frábært 🙂