Sæl öll rakst á þessa frétt hér á opinberu síðunni.
Sem stoltur stuðningsmaður besta knattspyrnufélags í heimi langar mig að taka undir þá bæn sem fram kemur á fánanum. Hún segir; “Liam Harker. Guð gefi þér styrk. Vertu með okkur í Moskvu. Gangi þér vel”.
Vonandi verða mörg slík flögg og fánar á þriðjudagskvöldið gegn Chelsea, því ekkert lið í heimi á stuðningsmenn líka LFC í því að setja fótboltann í samhengi við lífið.
Linkurinn á fréttina virkar ekki?
Hann virkar núna allavega:)
Þetta sýnir bara hvað stuðningsmenn Liverpool eru stórmerkilegir.
Algerlega í fremstu röð á heimsvísu
maður fyllist stolti.
Bestu stuðningsmenn í Heimi
Einginn labbar einn
Maður er nú ekki 100% i ensku en er ekki einhver snillingur sem væri til í að þýða þessa grein???
Viðar ég skal
Liam Harker – YNWA!
Í stuttu máli fjallar fréttin um ungan mann sem hefur nú fengið þann dóm að vera með ólæknandi krabbamein.
Opinbera síðan greip þetta á lofti og ætlaði að bjóða stráknum á æfingasvæðið til að hitta leikmennina og stjórann. Læknar hans töldu það myndi stytta líf hans enn meir svo ákveðið var að hann færi ekki þangað. Þá tók liðið upp á því að senda áritaða treyju á sjúkrabeðið og einn af þeim sem er duglegur að búa til fána sem enda á Anfield í leikjum ákvað að búa til þennan fána til að sýna stráknum samkennd.
og í framhaldi af pósti Magga þá bað drengurinn um að hann yrði síðustu daga sína í Liverpool treyjunni sinni og yrði einnig grafinn í henni þar sem líf hans hafði að mestu snúist um LFC.
YNWA
LIVERPOOL-hjartað slær allt til enda. Falleg saga.
YOU NEVER WALK A LONE!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!