KOMDU MEÐ KOP.IS Á ANFIELD!
SJÁ UPPLÝSINGAR HÉR!
Svona stillir Rodgers þessu upp gegn Bolton á útivelli í FA Cup. Mjög sterkt lið.
Mignolet
Can – Skrtel – Sakho
Markovic – Gerrard – Allen – Moreno
Lallana – Sterling – Coutinho
Á bekknum: Ward, Johnson, Borini, Henderson, Sturridge, Lambert og Manuqilo.
Það er alveg ljóst að Rodgers er ekki mikið fyrir að rótera í þessum leik. Einu mennirnir úr okkar sterkasta byrjunarliði þessa dagana sem fá hvíld eru Lucas, Henderson og Sturridge.
Það er augljóst að það á að klára þetta dæmi í kvöld og ég hef fulla trú á að menn geri það.
Alvöru lið sem hann teflir fram.
Er það ekki orðið ljóst að Balotelli á varla séns, fyrst að Lambert og Borini eru á undan honum í goggunarröðinni gegn neðrideildarliði Bolton?
YNWA – Steven Gerrard.
Hefði persónulega kosið að sjá Lucas í hóp allavega…
Hvað eru sumir af þeim að éta í morgunmat..
Fínt ef Coutinho, Sterling, Marko, Sakho og fleirri geta spilað, en ég hefði heldur viljað sjá þá í fríi í kvöld.
Vinnum 5-1
hef það litla trú á Allen að ég er alltaf hræddur þegar hann er inn á. Troddu sokk upp í mig Allen
Leikurinn er í opinni dagskrá á BBC one fyrir þá sem eru með disk
Líst vel á þetta þó vissulega vilji eg alltaf hafa Lucas og Hendrrson inn á. Við eigum að klára þetta!
Segi 1-4 með mörkum fra Sterling(2) Gerrard og Lallana.
Ekki veit einhver um straum fyrir android?
Flott að stilla upp mjog sterku liði og flott að eiga Lucas – Henderson og Sturridge uthvilda a laugardag gegn Everton..
tokum þetta i kvold 0-3
Takk Helgi J! Er að horfa á leikinn á BBC one á netinu – með hola extensioninu (eins og ég sé að horfa á það frá uk) 🙂
Takk fyrir þetta Helgi og takk fyrir að nefna þetta extension Matti!
Strákur sem ég þekki sem er búinn að horfa aðeins á Bolton segir að Lonergan í markinu hjá Bolton sé mjög góður, ég vona að hann standi sig ekki eins vel og Bogdan í leiknum á Anfield.
Sterkt lið, sáttur við þetta. Fínt að Lucas fái bómullarhvíld og að Sturridge og Henderson fái líka ‘breather’ fyrir Everton um helgina. Hefði viljað hafa Gerrard og Sakho líka á bekknum en hvað um það.
Samt spes að Glen Johnson fái ekki séns í kvöld. Ég bjóst 100% við honum.
Hvað Lovren og Balotelli varðar er spes að hvorugur þeirra sé á bekknum. Ekkert hefur verið minnst á Lovren sem gæti verið með eitthvað hnjask, en James Pearce hjá Echo (sem er hvað best tengdur á Melwood) sagði þetta um Balotelli:
Þetta hljómar ekki vel. Hvergi minnst á meiðsli, Rodgers er bara ekki að sjá það sem hann vill á æfingasvæðinu (né í leikjum) og hann er núna fyrir aftan Sturridge, Sterling, Lambert og Borini í goggunarröðinni.
Hvað um það – feykisterkt lið í dag og ég vona að við séum í stöðu til að taka Sterling, Coutinho og Gerrard út af snemma í seinni hálfleik. Koma svo rauðir!
Værsogut
http://blabseal.de/foot/
Afhverju er Allen enn og aftur í byrjunarliðinu! Hann hlýtur að eiga alveg hrikalega svæsnar myndir af Rodgers.
Ég vill taka það fram að Joe Allen vann skallabolta.
Það er hægt að horfa â BBC One á Filmon.com
Stefán… Þessi er orðinn alveg súr-gamall
Uss, Can er alveg ískaldur … kassar bolta bara niður við eigin markteig og spyrnir svo snyrtilega fram.
Í hverju einasta skoti sem Coutinho tekur þá dregur hann boltann alltaf eftir jör?inni, laflaust og framhjá markinu.. e?a smellir honum í stöngina og inn, enginn millivegur.
Hvernig geta menn verið svona ofboðslega slakir í skotum fyrir utan teig?
lallana buin ad vera slakur
#20 skjóta fyrir innan teig…málið leyst
Heimamenn eru rosalega fjölmennir á miðjunni, Moreno og Markovic þurfa að taka meiri þátt til að díla við það.
Flottur linkur á bbc1:
http://www.filmon.com/tv/bbc-one
Vel spilað, allt mjög vandað… nema eitt smáatriði.
Hef samt sömu tilfinningu og gegn West Ham, þetta mun detta.
22#
Þeir geta það varla heldur.
The welsh Xavi
Fór Joe Allen á námskeið í að verða lélegri knattspyrnumaður?
Allen bara hlytur að fara i sumar
Ef Allen er hinn Velski Xavi þá er standardinn ekki hár þar
Held Sterling sé bara einhver “freebee” í enska boltanum sem alltaf má brjóta á án þess að dæmt sé á það…
Nú erum við að klára þriðja hálfleikinn gegn Bolton án þess að skora,er það boðlegt?
hvaða f***** dómari er þetta???
Gerrard og Allen eru langt frá að vera í sama klassa og Lucas og Henderson
Annar línuvörðurinn að eiga leik lífs síns.
Við erum ljósárum betri en þetta Bolton lið og erum gjörsamlega að yfirspila þá. Vantar bara að koma tuðrunni í markið………
Má hundur heita ef við vinnum ekki þetta lið!
höfum við skorað i fyrri hálfleik á þessu tímabili ?
Það er búið að margbrjóta á sóknarlínunni okkar. Fáranlegur dómari. þegar menn eru felldir þá er það brot. Ekki flókið.
Skítadómgæsla hjá dómara og línuverði!
Sæl öll,
Síðustu 30 árin hef ég horft á óteljandi leiki. Ég er ekki að grínast þegar ég segji að þetta dómaratríó, þá sérstaklega dómarinn, kemst inn á topp 10 yfir lélegustu dómgæslu í einum hálfleik sem ég hef séð.
Vantar svo lítið uppá. Gerrard er því miður ekki lengur nægilega öflugur til þess að starta á miðjunni og Allen er bara þarna, slakur varnarlega, slakur sóknarlega. Er ekki hægt að láta einhvern úr unglingaliðinu fá þessa leiki á kostnað allen?
@Djonnson #32: Nei.
Hvar finnur FA alla þessa vanhæfu dómara og línuverði? Það hlýtur bara að vera eitthvað að í dómaraþjálfun hjá sambandinu.
Ógeðslega þreytt að vera að væla yfir dómurum en fjandinn hvað það er orðið þreytt að horfa upp á gjörsamlega óhæfa línuverði og dómara leik eftir leik.
Inn á með Sturridge strax í seinni, þá kemur þetta. Megum ekki við því að fara í framlengingu.
Hættið nú þessu Allen bulli. Eftir smá erfileika í byrjun hefur hann átt bara solid leik. Vinna boltan og skila honum vel sér.
Mér finnst þessar 45 mín bara líta vel út, liðið er solid varnarlega og virka hættulegir framávið og hafa náð góðu spili. Leikurinn var jafn í byrjun en síðan hafa Gerrard og Allen náð völdum á miðsvæðinu og Sterling, Lallana og Couthino náð nokkru góðu spili sín á milli.
En á meðan að staðan er 0-0 þá getur allt gerst í þessu einvígi og þurfum við að fara að klára eitthvað af þessum færum.
Línuvörðuinn hefur verið út að skíta því að bæði Moreno og Sterling voru réttstæðir og hefðum við fengið dauðafæri í bæði skiptinn.
Svona FA Cup leikir snúast bara um að komast áfram og vona ég að það verður Liverpool eftir þennan leik.
sterlimg er bara svo fljótur að þessi gamli myglaði rónahaus er eftir á í skallanum og fattar ekki að hann er ekki rangstæður
Sælir félagar
Ekki er hægt að segja að það sé mikil reisn yfir leik okkar manna. Einbeitingarleysi í sendingum, kæruleisi í ölluspili og skortur á að bera virðingu fyrir andstæðingi sem berst um hvern bolta. Menn verða að gera svo vel að leggja sig fram af fullkominni einbeitingu ef ekki á illa að fara.
Það vantar ekki mikið á að við séum með okkar sterkasta lið en menn eins og Allen og Lallana eru als ekki að gera sig. Coutinho og Sterling ætla oft á tíðum að gera þetta með einari, líta ekki upp heldur æða á andstæðing sem gefur þeim engan frið. Þatta þýðir haugur af töpuðum boltum og spilið missir takt. Ég krefst betri spilamennsku og einbeittari í seinni.
Það er nú þannig.
YNWA
Of hægt spil og menn komast ekki úr 1 gír vonandi kemur það ekki í bakið á okkur. Hef grun um að það breyttist ekki fyrr en Sturridge kemur inn.
KOMA svo !
common væri betra að tapa þessum leik en að fara i framlengingu
Stendur það örugglega í reglunum að sóknarmaðurinn eigi að njóta vafans þegar um rangstöðu/ekki rangstöðu er að ræða? Mér finnst það nefnilega alltaf vera öfugt.
Liðið er að spila fullkomnlega….þarf bara 2-3 slúttara í liðið.
jæja farðu nu að henda Sturridge inná og klára þetta
Dómaragreyið hlýtur að hafa gleymt einhverjum sjóntækjum heima. Búinn að vera átakanlega slakur.
CMON
Skrtel búinn að skipta um stöðu við Can. Skrtel er miklu agressívari og Markovic kemst þá ofar á völlinn….sem er gott mál
Sterling þú verður að nýta svona færi cmon
ohhh hann er svo slappur slúttari hann Sterling.
Bolton kemst upp með að spila allt of fast, verð bara sáttur ef menn komast heilir frá þessum leik
Líst illa á þetta.
auðvitað
Víti:(
Helvítis fokking fokk!
HVAÐ ER AÐ ÞESSUM DÓMARA
Guð minn góður, þegar maður hélt að þetta gæti ekki náð hærra upp á bak blessaðs dómarans…
og guðjonsen sjalfur haha
Flestir búnir að vera slakir sóknarlega fyrir utan Coutinho. Þetta helvítis dómararusl að toppa sig með þessum frábæra vítaspyrnudóm. Skrtel samt alltaf jafn skynsamur að henda í svona sénsa inn í vítateig sem bjóða mönnum uppá að henda sér niður.
Auðvita. Fá víti eftir dýfu
Raheem á alla mína vorkunn að vera spilað endalaust uppi á topp þegar hann svo augljóslega er ekki striker.
Eigum lítið skilið hér í kvöld, afspyrnu ósáttur við framlag Lallana því maður gerir til hans væntingar. Ekki Allen – svo ég ergi mig minna á því.
Sturridge inná núna ekki seinna en strax
Þetta var veik snerting og þeir uppskáru víti og mark, Liverpool eiga að vinna Bolton en þetta er FA cup þar allt er hægt.
Sorry……..ekkert hægt að segja við þessu. Skrtel einfaldlega bauð lélegum dómara uppá víti á silfurfati.
Ef liverpool skorar ekki í 180 mínútur á móti neðrideildarliði eiga þeir ekki skilið að spila í neinni keppni
Vantar allt helvítis killer instinct í þetta lið. Eigum að vera búnir að fokking klára þetta fyrir löngu. Aumingjaskapur
hvað þarf Liverpool margar mínutur á móti arfaslöku bolton liði til að skora…það er engin afsökun til!
Púra víti. Kenni br um þetta. Spilar enn og aftur með engan senter.
Dýfa!
Hefur liverpool unnið leik með Joe Allen inná? Erfitt að spila alltaf einum færri
Þetta er Bolton! Come on þarna. BOLTON Arfa arfa slakt lið.
afhverju er Sturridge ekki komin inná ég bara fatta þetta ekki ?
Ég brjálast ef við töpum þessum leik. Þvílíkir leikmenn, nokkrir sem eiga ekki skilið að vera í búning LIVERPOOL ! !
jæja nýtið þetta FOR FUCKS SAKE
Djöfuls aumingjaskap getur Rodgers verið með. Drullaðu Sturridge inná en ekki Borini
Jæja, réttilega gult þarna. Jafnvel beint rautt, ef hann hefði ekki verið á gulu. Hefðu átt að vera mun fleiri spjöldin samt.
Rautt…. ef við skorum ekki núna þá höfum við ekkert að gera í þessum bikar
Og allen að fiska mann útaf Eftir að hafa unnið boltan . vel gert hjá honum
Talandi um að vera einum færri. Við bara hljótum að geta skorað á 10 Bolton menn.
ekki vera of viss
Bolton munu draga sig aftur núna og verja allir sem einn þetta gæti reynst alveg jafn erfitt
D.Studge baby!
Maggi, þú vorkennir Raheem segirðu, að vera spilað endalaust uppi á topp þegar hann svo augljóslega er ekki striker.
Því spyr ég þig, grjótharðan stuðningsmann Rodgers; hvað finnst þér um þá ákvörðun stjórans, að spila Raheem endalaust uppi á topp þegar hann svo augljóslega er ekki striker?
Er hann ekki með nóg af strikerum? Ef ekki, hafði hann þá ekki nægan tíma til þess að kaupa striker í sumar eða í janúar?
Allavega, þá er ég alveg sammála þér; maður dauðvorkennir Raheem að þurfa endalaust að spila uppi á topp þegar hann svo augljóslega er ekki striker.
En það er við Rodgers að sakast, hann stýrir þessu frá A til Ö. Eða hvað?
Róleg, einum fleiri núna, nú bara setja í þriðja gír og klára þetta. góðar 30mín eftir, hægt að skora 3-4 mörk á þeim tíma
Er ég sá eini sem finnst hornspyrnur Liverpool á þessu tímabili ekki boðlegar?
já loksins kemur maðurinn inná
Röggi# 89, ertu þá að segja að við séum í öðrum gír núna ?
Reyndar 20 min….en samt.
Þetta er SVO vond frammistaða.
Það er til breskt orð sem erfitt er að þýða….það er GRIT. Við höfum 0% svoleiðis og á meðan töpum við reglulega svona bikarleikjum…
Þessar fimmtán mínútur hurfu!
Geri ráð fyrir að LA Galaxy hætti við Gerrard eftir hans leik í dag…
Þetta er ógeðslega svekkjandi
Stöngin. Þetta á ekki að detta með okkur
Tvö stangarskot er algjört lágmark í svona leik…
Mig langar alveg engan veginn í framlengingu, Liverpool derby um helgina og svona og deildin skiptir MUN meira máli.
Fair play hjá Eiði áðan að sparka boltanum út af vegna meiðsla Liverpool manns, eftir að okkar menn höfðu haldið áfram að sækja.
Myndi þó sannarlega þiggja 1-2!
Þetta er nottla fárnánlegt
Dottnir úr champions league, deildarbikar, deildin úr sógunni og núna fa bikarinn. Topp þjálfari greinilega
Bolton eru bara búnir að vera svívirðilega heppnir í báðum leikjunum
En það sem veldur mér mestum áhyggjum eftir 80 mín, er hversu slappur cpt. fantastic hefur verið. Bara alls ekki sá maður sem ég þekki ..
Djöfull eru okkar menn ÓGEÐSLEGA LÉLEGIR fyrir framan markið. Guð minn almáttugur!
Það er bara agalega erfitt að horfa upp á þetta 🙁
Sorry, en Steven Gerrard er bara orðinn algjör farþegi í þessu liði, því miður. Hann er bara fyrir mönnum þarna og hefur sannað það í báðum leikjunum að hann er ekki í standi og við erum betur settir án hans, eins vont og það er að segja þetta.
á eftir að fá skitu í kvöld eftir að hafa horft á þennan leik
Ohh nú sláinn. Boltinn ætlar ekki inn
170 mínutur á móti bolton án þess að skora mark ! ! ! á móti aðalmarkmanni og varamarkmanni. Á svoleiðis lið skilið að fara áfram ? SKÍTA frammistaða fram til þessa, og núna á móti 10, ætlum við virkilega ekki að fara að skora ??????
LOKSINS !!!!!
Flott skot hjá Can. Svona þurfa Liverpool gera oftar.
Er það bara ég eða er Emre Can ógnin sem okkur vantar fyrir utan teig?? Sendingar, skot, snúningar, auga og allur pakkinn!
STERLING er vandaður drengur
Ekta slútt hjá sterling. Þvílík sending hjá can
Sterling og Can með þetta! þvílíkt spil hjá þeim tveimur.
Shiiiii!
YYYYYYYYYYYEEEEEEEEEEEEEEEEEEESSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS RAHEEEEEEM SUPERSTRIKER!!!!!!1
Emre Can á miðjuna í næsta leik, það þarf svona menn framar á völlinn ekki að geyma þá í vörninni!
Fyrst skotið og svo þessi sending. Hrikalega ánægður með Can!
SJÁIÐI SENDINGINA HJÁ CAN
Nú klárum við þetta í venjulegum leiktíma…
Ertu ekki að grínast hvað Emre Can er kynþokkafullur leikmaður? Klassi frá toppi til táar, algjör gullmoli, og getur spyrnt boltanum fullkomlega með bæði hægri og vinstri.
Elska þennan CAN!!!
aaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaahhhhhhhhhhhhhhhhhhh
hvaða reglur gilda í þessu. Er það framlenging og útivallarmark?
koma svo og klára þetta helvíti í venjulegum leiktíma
Can er allt í öllu þessar mínúturnar og þessi SENDING ! og afgreiðsla !
What a pass!!!
Emre Can er alltof góður leikmaður til að leika sem miðvörður, með þessa tækni, skot-og sendingagetu verður hann að spila á miðjunni hjá okkur!
er ekki útivallaregla held það ?
Engin útivallarmarkaregla bara framlenging og svo vító ef þarf
Eingin útimarkaregla i fa
COUTINHO !!!!!!
Sláin inn!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!#10
COOOOOOUUUUITTTTTTIIIIOONNNHOOO SJÁIÐI HELVITIS MARKIIÐ HJA DREEENGNUM
VAAAAAAAAAAAAAAAAA
OMG! OMG! COUUUUUTTTIIINNNHHHOOO!!!
Litli Kútur…….
COUTINHOOOOOOOOOOO!!!!! Þvílíkt mark!!! 😀
What a GOAL!!!
ÞVÍLÍKT MARK
Hvað eru men að væla ?????
Fínn leikur og öruggur sigur :).
Áfram Liverpoooooooooooool :).
jæja buið að troða sokk uppí alla hér úff !
Þvílíkt mark. Hlaut að detta inn markmenn Bolton varið alltof mikið
Hvað sagði ég? Þessi gæji kann ekki að skjóta í níu af tíu skiptum, svo kemur bara einhver screamer, það er enginn millivegur, það er bara allt eða ekkert!!
ÚFFFF þvílíka markið
Var þetta GRIT hjá Coutinho?
JESS…þetta sýnir (as I said) Karakter.
Það vantaði bara smá væl hérna inni á KOP til að þetta kæmi. 🙂
Skiptir öllu að klára á 90 mín. Glæsilegt !
Úff sum commentin hérna yfir leik! vá maður, eruði meira hérna inná en að horfa á leikinn?
Djöfulsins væl hérna inni…..hlakkaði svoleiðis í sumum að geta kennt BR um eitthvað og ekki verra að hafa Joe Allen til að drulla yfir líka. En því miður sýndi liðið hreðjar og vann. Gengur betur næst svartsýnispésar :p
Sæl öll,
frábær sigur og Liverpool hætti aldrei að pressa en sorglega lélegur dómari í kvöld.
Maggi #66 o.fl. sem eru eitthvað að vorkenna Sterling fyrir að vera uppi á topp. Frá því að þessi breyting var gerð, að færa Sterling upp á topp, hefur það leitt til þess að hraði hans ýtir andstæðingnum aftur sem síðan leiðir til þess að Liverpool getur haldið boltanum upp við síðasta þriðjung og eru í mikið betri stöðu til að þvinga fram mistök. Það eitt og sér, að Liverpool er ofar á vellinum í samspili, léttir gríðarlega á vörninni og það er æpandi munur, til hins betra, á varnarleik liðsins nú á dögum heldur en fyrr á tímabilinu. Framan af vetri voru það varnarmenn að senda aftur á Mignolet og endalaust sín á milli því andstæðingurinn þurfti ekkert að vera hafa áhyggjur af stungu sendingum inn fyrir vörnina og gat komið ofar á völlinn. Núna aftur á móti, þegar boltinn gengur til baka, eru miðjumenn Liverpool að senda aftur á miðverði og liðið búið að pressa andstæðinginn niður að hans eigin vítateig. Liverpool er komið mikið framar á völlinn sem gerir þeim kleift að vera með mikla pressu á andstæðing.
Það er ekki hægt að ætlast til meira af Sterling en hann veitir liðinu núna, ekki eldri en hann er. Hann er auðvitað betri í frjálsu hlutverki í “holunni” en að vera vorkenna honum og agnúast yfir færanýtingu er ekki rétt að mínu mati. Þann fótbolta sem BR vill spila er Sterling ljósárum á undan öðrum í liðinu til að vera uppi á topp þegar að Sturridge er meiddur. Ég var og er gríðarlega ánægður með að hafa hann þarna uppi en það verður unaður að fá Sturridge til baka.