Þá er búið að tilkynna liðsuppstillinguna gegn Bristol, og hún lítur svona út:
Chamberlain
Harris – Bonner – Stoney – Greenwood
Ingle – Coombs – Weir
Johnson – Clarke – England
Bekkur: Flaherty, Turner, Rodgers, Longhurst, Hodson, Pike
Hér er að sjálfsögðu um kvennaliðið okkar ágæta að ræða, en leikurinn hefst 17:30.
Liðsuppstillingin fyrir leikinn á móti WBA hjá karlaliðinu kemur væntanlega inn um kl. 19.
Koma svo stelpur!
Þess má geta að Ingle er ekkert skild Steven Gerrard 😉
0-0 í hálfleik.
Fékk nett áfall að sjá Chamberlain í markinu, hvaða Chamberlain hugsaði ég, eini chamberlain-inn sem við höfum er ekki að fara standa í markinu. Síðan áttaði ég mig hægt og rólega á því að þetta lið á ekkert skylt við Liverpool liðið…..er þetta þá 20 ára gömul færsla sem hefur eitthvernveginn komið úr huldjúpum kop.is ? Dagsetning stemmir..Hvað er í gangi !?!
JÁ okey kvennaliðið, auðvitað.
Liverpool XI: Mignolet, Alexander-Arnold, Matip, Van Dijk, Moreno, Can, Wijnaldum, Oxlade-Chamberlain, Mane, Salah, Firmino.
Hérna er svo karlaliðið
= Klopp leggur áherslu á FACUP
1-0! Bethany England með mark á 46. mínútu.
Allt of langt síðan Liverpool vann bikar, þetta er okkar séns. Ekkert létt í þessu, Tottenham er að tapa gegn Newport sem eru í 4 deild.
Sá svo markmann City fá á sig mark á nærstönginni á móti Bristol. Hélt að slíkt væri bannað og kæmi aðeins fyrir Liverpool markmenn en við erum öll mannleg víst.
England með annað mark, svo staðan er 2-0.
Gegn Bristol?
lol sé núna 🙂 þarf að fá mér gleraugu
Gaman að fá um kvennaliðið líka, takk
Leikurinn endaði 2-0.
Svo maður haldi aðeins áfram umfjöllun um kvennaliðið, með smá tengingu yfir í karlaliðið: dóttir Chris Kirkland er 12 ára, hún spilar líka sem markvörður, og hún var að gera samning við Liverpool:
https://twitter.com/ChrisKirkland43/status/957257145719943168