Nú er nýhafinn leikur Liverpool gegn Bristol á Prenton Park, og þar munu okkar konur gera allt sem þær geta til að ná í fyrstu stig liðsins á leiktíðinni. Óhætt að segja að fyrstu leikirnir hafi ekki endað eins og við höfum vonað.
Liðinu er stillt upp svona:
Jane – Bradley-Auckland – Fahey – Robe
Roberts – Bailey
Clarke – Lawley – Charles
Sweetman-Kirk
Bekkur: Kitching, Murray, Purfield, Babajide, Hodson, Linnet
Líklega einhverskonar 4-2-3-1 með Lawley fremsta á miðjunni, Jesse Clarke og Niamh Charles á köntunum og Sweetman-Kirk uppi á topp.
Það er a.m.k. afar ánægjulegt að hin skoska Christie Murray er komin til baka úr meiðslum og byrjar á bekknum.
Við minnum á að leikurinn er sýndur beint á FA Player, bæði í appinu og á vefsíðunni.
Færslan verður svo uppfærð með úrslitum að leik loknum.
Leik lokið með jafntefli, 1-1. Semsagt, fyrsta stigið og fyrsta markið í deildinni. Bristol konur skoruðu fyrst á 16. mínútu, en á 72. mínútu fengu okkar konur víti eftir að Babajide var felld í teignum. Melissa Lawley fór á punktinn og skoraði af öryggi. Fleiri urðu mörkin ekki.
Næsti leikur er í Conti Cup, en þá heimsækir liðið Coventry. Þar á eftir kemur svo leikur í deildinni, en þá heimsækir liðið Birmingham sem er sem stendur eina liðið sem er án stiga í deildinni.
Takk fyrir að flytja fréttir af kvennaliðinu. Flott að ná í stig miðað við allt og gengið fram að þessu. Vonandi fara stelpurnar að hressast og og ná í fleiri stig.