Það fór eins og margir héldu, að aðalliðið yrði hvílt í dag:
Adrian
Williams – Lovren – Matip – Larouci
Chirivella – Fabinho – Jones
Elliott – Origi – Minamino
Bekkur: Kelleher, Keita, Firmino, Salah, Oxlade-Chamberlain, Hoever, Trent
Lovren ber fyrirliðabandið í dag.
Semsagt, þetta er sterkt lið sem á alveg að klára þennan leik.
KOMA SVO!!!
Þetta er ég mun sattari við en liðið var gegn EVERTON, þetta er blanda af aðalliðsmonnum og aukaleikurum sem eiga framtíðina fyrir sér en ekki bara C og D liðið. Núna hef ég alveg trú á að Klopp vilji vinna þennan leik en hafði enga trú á á því gegn Everton. Lika með góðan bekk í dag en hann var líka mjög slakur gegn Everton. Núna eiga okkar menn bara að stefna á að vinna þennan bikar þetta eru 5 leikir og þá stór bikar í húsi sem ekki hefur komið síðan 2006. Erum í mjög góðri stöðu td í deild og getum jafnvel hvilt eitthvað þar eftir nokkra leiki þegar þetta er klárt, ég vil frekar hvíla þar og þá kannski tapa 1 eða 2 leikjum og ná þá ekki því arsenal gerði að fara osigraðir i gegnum heilt tímabil ef það skilar einum stórum titli í staðinn.
Annars spai ég 0-4 í dag. Origi með 2, minamino og elliott
7 af þeim sem byrja leikinn í dag byrjuðu á móti Everton í bikarnum. Hinir fjórir voru Gomez, Millner (fór útaf snemma og Larouci kom inn), Phillips og Lallana.
Get ekki séð að það sé svo brjálaður styrksmunur á þessum liðum.
Sammála pistlahöfundi, allt eðlilegt við samsetningu liðsins. Gott að geta spilað svona sterku liði, þó allir núverandi aðalliðsmenn fái mikilvæga hvíld fyri West Ham og S’hamton leikina. 1-3.
YNWA
Æi, sígild spurning, einhver með stream?
Er einhver með Ace-stream link?
https://streams100.net/event/shrewsbury-town-vs-liverpool-match-preview/
nóg af linkum þarna.
Takk!
Ahh.. sama og eg var buinn að finna. Ekkert Acestream :/
nei því miður sýnist ekki
Flott mark hjá Jones
Já frábært hlaup hjá honum. Vil sjá hann koma af bekknum í næstu leikjum í deildinni.
Jones er svo sannarlega orðinn vel slípaður demantur.
Gott að vera með besta markmann í heimi og þann næst besta.
Fabinho ryðgaður
Þetta er hálfgert hnoð, minnir mig á Tindastól-KS í gamla daga 🙂
Einhver með mobile stream sem virkar?
Það er andi í þessu Shrewsbury liði ekkert að þessum leik.
Við höfum ekki alveg náð að stjórn á þessum leik. Heimamenn eru ekkert að flækja þetta og dæla innfyrir varnarlínuna okkar sem er mjög framarlega og hefur það nokkrum sinnum skilað góðum færum.
Sóknarlega hefur vantað þetta flæði sem við náðum gegn Everton.
Fabinho virkar mjög ryðgaður, Minamino ekki alveg að finna sig og miðverðirnir okkar í smá vandræðum.
Það má samt ekkert taka af heimamönum sem selja sig mjög dýrt. Spái samt að þeir fara aðeins að þreyttast undir lokinn og við bætum við marki eða mörkum.
Markmið dagsins er að komast áfram og engin að meiðast.
Maður finnur til með þessum sem skoraði sjálfsmarkið alveg skelfilegt
Ja hérna hér
Menn eru svo hræddir við Jones að þeir fara á taugum með hann á bakinu.
Stream fyrir áhugasama
http://www.ovostreams.com/shrewsbury-town-vs-liverpool.php
Adrian aftur sæll
Hvað er í gangi þarna
Eigum við ekki að reyna að drullast til að hanga inn í FA cup
Var dagss1kipunin að tapa eða hvað?
Lovren er svo mikill Lovren
ha ha flott hjá Shrewsbury, kemur vel í kassann, allir á Anfield 🙂
Frábær úrslit. Varaliðið fær aukaleik. Og Klopp fær sýnidæmi um hvað gerist þegar leikmenn vanmeta andstæðinginn og fara í hlutlausan gír.
Flott að fá aukaleik heima fyrir ungu strákana og hversu frábært er það að fá Keita, Fabinho, Matip og Lovren tilbaka núna?
Tökum þetta á Anfield!
Menn mættu ekki einu sinni í seinni hálfleikin og einugis klaufaskap þeirra varnarmanns að staðan varð 0-2 við áttum ekkert skilið úr þessum leik Jones og Adrian bestu menn vallarins nenni ekki að ræða um hina sem voru slakir.
Hefði Adrian ekki verið í markinu hefðu þeir sparkað okkur úr þessari keppni en mönnum virðist vera sama um FA bikarinn líka.