Það var loksins gefið út af deildinni að deildin fer aftur af stað þann 17. júní næstkomandi. Þá fara fram leikir sem var frestað: Aston Villa gegn Sheffield, og City gegn Arsenal. Okkar menn eiga svo leik gegn Everton þann 20. júní, ef allt fer að óskum gætum við séð titilinn tryggðan á Goodison Park, en undirritaður er nú mjög svo hæfilega bjartsýnn á að Arsenal nái að veita City einhverja skráveifu.
Þetta er að fara að gerast!
Ég er ekkert viss um að við náum að klára þetta þrátt fyrir forskotið. Spurning með standið á liðinu og svo framv.
Nei,bara smá djók.
Klárum þetta hratt ig dreifum svo álaginu í seinustu umferðum.
Svo inn með Werner frænda og taka þetta back to back.
Ætlaði að fara að rífast við þig þangað til ég las niðurlagið hjá þér Davíð. En dont worry, ég likaði á þig:) Þessi helv. formsatriði eru eftir, en þess vegna heita þau formsatriði.
YNWA
Væri gaman að geta klárað þetta bara í fyrstu umferð (óháð því að við spilum við Everton) og getum svo leyft þeim sem vantar einhverja skráða leiki til að fá medalíu að koma inn á í þeim leikjum sem eftir eru.
hvað þarf marga leiki til að fá medalíu? 10?
Þetta segir Google:
Since the 2012–13 season, a player needs to have played in a minimum of five matches for a title-winning team to qualify for a medal. This is down from the previous standard of ten matches played.
Þá væri í raun hægt að henda varaliðinu í alla leikina ef liðinu tekst að klára deildina með 5-8 leiki eftir