Núna kl. 13 að íslenskum tíma hefst fyrsti leikur kvennaliðsins á tímabilinu, en þá mæta stallsystur þeirra hjá Durham í heimsókn á Prenton Park. Sem betur fer var völlurinn tekinn í gegn í sumar, og er því í toppstandi.
Liðið lék fjóra leiki á undirbúningstímabilinu, tvo gegn liðum í úrvalsdeild og tvo gegn liðum í næstefstu deild. Liðið vann 3 leiki og gerði eitt jafntefli (gegn einhverju smáliði frá Manchester), og við skulum vona að þau úrslit séu fyrirboði um það hvernig liðinu gangi í deildinni í vetur.
Þá er jafnframt stutt síðan liðið bætti við sig einum leikmanni til viðbótar, en það er hin nýsjálenska Meikayla Moore sem kemur frá Köln.
Liðið sem byrjar leikinn í dag er sem hér segir:
Hodgson – Robe – Fahey – Hinds
Roberts- Rogers – Furness
Lawley – Thestrup – Babajide
Bekkur: Foster, Heeps, Clarke, Bailey, Kearns, Linnett, Ross, Parry
Hlustendur taka vonandi viljann fyrir verkið varðandi uppstillinguna. Mögulega er Vicky Jepson að stilla upp í meira 3-4-3 með Fahey, Hinds og Roberts sem öftustu 3 leikmenn, en það kemur allt í ljós þegar leikurinn hefst. Það hvar Ashley Hodgson spilar verður líka að koma í ljós, hún hefur spilað sem sóknarmaður síðustu ár en eitthvað var verið að prófa að færa hana neðar á völlinn. EDIT: breytti uppsetningunni, kom í ljós að Ashley Hodgson er í hægri bak en Rhiannon Roberts er á miðjunni.
Það er líka áhugavert að sjá að báðir varamarkverðirnir eru á bekknum, þ.e. Rylee Foster og Eleanor Heeps. 4 stelpur úr akademíunni eru á bekknum; áðurnefnd Heeps ásamt Bo Kearns, Miu Ross og Parry sem ég hef ekki upplýsingar um hver er eða hvaða stöðu hún spili.
Leikurinn verður sýndur á The FA Player eins og á síðasta ári, það þarf vissulega að skrá sig en annars er sú skráning ókeypis. Það verða engir áhorfendur á Prenton Park frekar en á Anfield eftir viku, en vonandi breytist það þegar við komum lengra inn í haustið.
Við uppfærum svo færsluna með úrslitum að leik loknum.
Leik lokið með 1-1 jafntefli, Rachel Furness með mark á 39. mínútu en Durham konur náðu að jafna með marki á 87. mínútu. Svekkjandi jafntefli í byrjun, en þó jákvætt að liðið náði að skora. Það reyndist þrautin þyngri á síðasta tímabili, og gott að brjóta ísinn snemma.
Okkar konur voru frekar stirðar í fyrri hálfleik, Durham stelpur áttu jafnvel meira í leiknum, og markið kom kannski ögn gegn gangi leiksins. Í síðari hálfleik áttu stelpurnar okkar meira í leiknum, voru í raun óheppnar að skora ekki fleiri mörk, t.d. átti Furness skot í stöng og út rétt fyrir markið. Babajide er áfram óslípaður demantur, hefur hraðann en þarf að bæta bæði móttökur, sendingar og ákvarðanatöku.
Næsti leikur er svo á sunnudaginn eftir viku, en þá verða London Bees heimsóttar.
Skvísurnar alltaf í boltanum bara.
Þráða rán!
Frábær grein sem útskýrir fjárhagsstöðu og hvernig klúbburinn er rekinn.
https://www.empireofthekop.com/2020/09/07/why-liverpool-arent-spending-brilliant-swiss-ramble-thread-reveals-all/
Selja til að kaupa er niðurstaðan nema að rekstrarmóteli sé breytt.
Hvet ykkur til að lesa. Útskýrir margt
Þú þrammar aldrei einn
Það þarf semsagt að selja Wijnaldum, Harry Wilson, Marko Grujic eða einhvern áður en hægt verður að svo lítið sem bjóða í Thiago.