Þá er komið að næsta verkefni, Liverpool heimsækir Sheffield United á Bramall Lane, þar sem vinirnir Wilder og Klopp leiða saman hesta sína.
Það er ekki margt sem kemur á óvart í liðsvali dagsins (nema þá kannski að Kelleher er ekki í hóp), öll varnar og miðju hryggjarsúlan eins og hún leggur sig ekki leikfær (Alisson, Van Dijk, Gomez, Matip, Henderson og Fabinho), ekkert óeðlilegt þar á ferð.
Alisson, Jota og Fabinho eru ekki með liðinu þennan sunnudaginn, allir af ólíku ástæðum auðvitað, en Klopp stillir þessu annars svona upp:
Ég er farinn að vera ansi svartsýnn á að það hafist en ef við ætlum okkur að eiga einhvern séns á meistaradeildasæti þetta tímabilið þá er þetta leikur sem þarf, og á, að vinnast.
Koma svo!
YNWA
Það hefur verið skjálfti í mér undanfarna daga.
Hvar er Ben Davies?
Afhverju Adrian ! Anskotinn mér lýst ekkert á þetta því miður !
YNWA
Allt í einu varð ég svartsýnn um leið og ég sá þetta byrjunarlið og þennan bekk.
Gat Jota ekki verið á bekk og tekið seinustu 10 mín í leiknum. Keita og Shaqiri á bekk þrátt fyrir að aðrir í byrjunarliðunu hafi engan rétt á því miðað við seinustu frammistöður.
Það er algjör must að taka 3 stig í kvöld.
Jota veikur.
Davies…. hver veit?
Djöfullinn sjálfur.
Skil vel að Alisson sé ekki þarna, en að varamarkmaðurinn meiddur, jota búinn að vera að æfa en svo horfinn (dettur helst í hug að hann hafi skellt sér á hörmungardaga á Hólmavík til að leyfa forminu að sinka inn).
Ég held að eina ráðið sé að skella sér í vörn og treysta á 2 eða 3 skyndisóknir, ooog vona að menn nýti eitt færi (smá draumórar).
Eða bursta þá.
Eða tapa í leiðindaleik.
Eða jafntefli.
1×2
Ég vona.
Nú vil ég ekki vera svartsýna týpan, en það er farinn að læðast að manni sá grunur að það geti orðið erfitt fyrir liðið að verja titilinn í vor.
hahaha
Góður
Og þú kallar þig stuðningsmann Liverpool FC? Ótrúleg svartsýni…
Koma svo!!!!
Jafntefli væri rosalega sterk úrslit. En kannski er það bjartsýni. Vonum það besta.
Við tökum þetta í kvöld!
Mér lýst alls ekki nógu vel á þetta og er hættur að skilja að menn eins og Chamberlain sem hefur verið heill síðan í desember fá ekki fleiri sénsa. Sama á við um Shaqiri sást aðeins um daginn og var alla ekki versti maður vallarins í neinum þeirra leikja að mínu mati. En klopp hefur ofsa trú á Jones og viv verðum að treysta honum bara fyrir þessu..
Ekkert nema sigur er í boði í kvöld er staðreynd sem má ekki klikka. Pressan er a okkar liði í kvöld og núna þarf að vera með einhverjar lausnir gegn liði með 11 menn á sínum eigin vítateig
Hvernig er það, hefur liðið einhvern tímann unnið leik í þessum náttfötum?
Að vera stressaður fyrir leik gegn neðsta liðinu í deildinni er skrýtinn tilfinning ?koma svo LFC klárum þennan leik með nokkrum mörkum
Að skora ekki úr þessu færi… sjálfstraustið er alls ekki í jafnvægi.
Firmino á seinasta timabili hefði skorað no-look mark úr þessu færi.
núna þarf thiago að fara sýna eitthvað
Thiago? Þú meinar allir hinir 10 líka?
Veit ekki hvort markmannsdruslan í gula búningnum er að eiga toppleik eða okkar menn ekki á skotskónum!
Hann er búinn að halda einu sinni hreinu á leiktíðinni sögðu þulirnir á sky áðan
Ég hef oft velt fyrir mér hvers vegna markmenn mótherja okkar manna kaupi ekki lottómiða einnig (fyrir fátæka eða eitthvað), þeir eiga oft leik lífs síns og ljónheppnir.
Tap eða jafntefli í kvöld, tja, það er ekki til orð yfir það.
Er einhver taktík í gangi hjá okkur? Mér finnst menn bara vera þar sem þeir vilja nema adrian og vörnin.
Maður er bara stjarfur hérna, lyfin eiga að virka öfugt.
Ég held grínlaust að einhver manchester norn hafi lagt álög á liðið okkar
Að hirða á liðið þessa dagana þá býst maður við 9-0
En common á ekki að vinna leikinn ?
Það er bara inna með Origi
Svakalega lélegir fyrri hálfleikur erum við í alvöru svona lélegir Mane gerði bara allt vitlaust og Firmino þarf að taka sendinga og skotæfingu alveg fram að næsta leik….
Ósköp er að sjá þessa spilamennsku. Það er af allur meistarabragur…
Skrýtið, finnst eins og ég hafi séð þennan leik áður.
Origi inn fyrir Firmino?
Firmino karlinn…. Getur ekki rúllað bolta í autt markið
?
Fullt af færum hjá okkur en við lélegir að vera ekki búnir að skora.
Er þetta þá lélegur leikur? Já, þetta er lélegur leikur ef við lýtum á stöðuna 0-0 og að við erum ekki nýta færin eða nei, við erum að spila vel og skapa fullt af færum og þurfum bara að klára þetta.
Því lengur sem staðan er 0-0 því meiri barátta eigum við eftir að sjá hjá heimamönum sem eru líklega í skýjunum með að halda þessu svona og okkar menn eru líklegir til að vera stressaðir þegar lítið er eftir.
Þurfum að mæta af krafti í síðari hálfleik og ná inn marki fjótlega og láta þá þurfa að koma hærra upp völlinn.
Mikilvægt að leyfa þeim ekki að sigra í síðari hálfleik. Getum alltaf potað inn marki með smá heppni, erum jú með Mo Salah í okkar liði.
Koma svo Liverpool !!!!!!!!!
Mesti skjálftinn úr mér.
Guði sé lof, ennþá.
Og gleymdi að nefna, er það lukkan okkar að vera með alvöru miðverði? (Menn í réttum stöðum).
Bobby ???
Firminho, sæll og bestur… tuskan á leiðinni ?
Þarna er maður farinn að þekkja bobby karlinn aftur
Ekki lýst mér á tyrkjan því miður.
Af hverju ekki? Hann er 20 ára og nýkominn, hent í djúpu laugina. Ég er ánægður með hann.
Velkominn Keita
Frábært að vinna í kvöld og mjög mikilvægt. Núna þarf að byggja á þessu og halda áfram. Vonandi stækkar ekki fráfallslistinn eftir kvöldið og að botninum sé náð. Helgarnar eru alltaf góðar þegar við vinnum. Áfram gakk!