Liðið gegn Newcastle klárt: Framherjarnir byrja allir!

Ég er mikill aðdáandi hádegisleikja á laugardögum, sérstaklega ef þeir vinnast og maður getur farið brosandi inn í helgina. Það er aðeins annar tónn í Liverpool borg þessa helgi en var í Leeds á mánudaginn:

Byrjunarliðið okkar er svo svona:

Williams er semsagt meiddur sem er ekki beint óvænt, gaman að sjá Curtis Jones aftur á bekknum. Held þetta sé sókndjarfasta uppstilling sem er völ á hjá okkar mönnum.

Steve Bruce stillir aftur á móti upp svona:

Þetta er skyldusigur og mig langar að trúa að allt ruglið í þessari viku hjálpi okkar mönnum, hressandi eftir allt dramað að geta bara farið út á völl og spilað.

Hvernig lýst ykkur á?

29 comments

  1. Sælie félagar

    Mér líst vel á allt nema Wijnaldum. Ég skil ekki af hverju hann er alltaf í byrjunarliðinu. Hann hefur verið víðáttulélegur undanfarið. Þetta er greinilega sóknaruppstilling nema Gini og vonandi uppskerum við eins og til er sáð.

    Það er nú þannig

    YNWA

    3
  2. Af hverju er leikmaður sem er að fara gerður að fyrirliða!!??!!

    6
  3. Og Wijnaldum gerður að fyrirliði. Maður sem hefur gefið klúbbnum langt nef með því að neita að skifa undir nýjan samning.

    5
  4. Flott þessi byrjun hjá okkar mönnum og Salah heldur áfram að gera það sem gerir best..skora mörk.
    Þurfum þessi 3 stig í dag.

    4
  5. Úfff…það sem þetta lið þarf að færum til að skora. Vonandi að komi ekki í bakið á því.

    4
  6. Uff ættu að vera komin 3-4 mörk hjá okkur miðað við öll færin

    2
  7. Sjálfstraustið hjá Mané er 0 þessa stundina finnst mér..Salah gaf sendingu sem ætti að öllum líkindum að vera mark í svona stöðu en þetta leit út eins og erfiðsta færi heims þegar Mané fékk boltann.

    3
  8. Eg er nu bara drullu svekktur að vera ekki 2-3 mærk yfir i halfleik

    4
  9. Ef að Liverpool nær ekki marki númer 2 fljótlega í seinni hálfleik þá verður þetta þungur seinni hálfleikur held ég ótrúlegt hvað Liverpool þarf aragrúa af færum til að skora.

    3
  10. Djöfull er Mane að eyðileggja fyrir okkur tímabilið. Bensínið kláraðist á tanknum hjá honum fyrir nokkrum mánuðum síðan. Má alveg fara senda hann í sumarfrí.

    2
  11. Ætli heimilislifið se ekki i lagi hja Mane ? Eitthvað er allavega að sem skerðir sjalfstraustið hja honum.

    1
  12. Ættum að vera 4-5 mörkum yfir. Það væri svo týpískt að Newcastle jafnaði í seinni hálfleik. Tímabilið í hnotskurn….

    4
  13. Ótrúlega léleg færanýting …. bara mjög pirrandi … Thiago yfirburðamaður í fyrri hálfleik. En sterkara lið væri búið að refsa okkur varnarlega … furðulegar stöður á vörninni nokkrum sinnum í fyrri hálfleik sem Newc nýtti sér ekki. Annars væri maður alveg til í þennan Maxim gaur í Lpool.

    5
  14. Mikið er fólk nú heppið að meiga ekki og geta ekki borgað sig inn á þessi óskup.

    1
  15. Ha ha ha eru Liverpool lélegir hvað kemur til eins gott að maður er hættur að horfa á þessa hörmung.

    2
    1. Get ekki nema bara hleigið af þessu öllu saman ..þetta er algjört djók..á rassgatinu á móti newcastle Klopp með fáranlegar skiptingar tekur besta manninn útaf og miðjan gjörsamlega hrundi

      3
  16. Algjörlega Klopp að kenna. Átti að skipta Mane útaf. Hann er hálfur maður á vellinum.

    1
  17. löngu hættur að horfa á þennann viðbjóð.

    þetta lið getur ekki rassgat án van djik og henderson.. 2 leiðtogar í liðinu sem stjórna liðinu, eins og að ætlast til að verkamenni vinnu á fullu án þess að nokkur yfirmaður sé til staðar.

  18. Þvílíkur aumingjaskapur … segi bara ekki annað … United mun tæta þessa vörn í sig í næsta leik því miður.

Liverpool – Newcastle (Upphitun)

Liverpool 1 – 1 Newcastle, Deja Vu. (Skýrsla uppfærð)