Það er sumar og það er tími til að gleðjast á skeri sem sólarljós er eitthvað sem er af skornum skammti. Rafa er orðinn stjóri Everton og er hægt að taka þátt í umræðunni í færslunni á undan þessari. Við ætlum samt ekki að leyfa Rafa að fá langan tíma á forsíðunni og er því um að gera að rifja upp sigurmörk Liverpool í úrvalsdeildinni sem komu í blálokin.
Rush, Gerrard, Mellor, McAllister, Origi og Alisson koma þarna við sögu ásamt fjölmörgum öðrum.
Hvert er þitt uppáhalds?
Aðal loka rmarkið er og verður þegar Alison skoraði sigurmarkið gegn West Brom.
Mellor gegn Arsenal er alltaf í ákveðnu uppáhaldi hjá mér.
MacAllister með aukaspyrnuna á móti Everton, ég öskraði úr mér lungun
(var nr 2 í uppáhalds sigurmarkið mitt, á eftir Gerrard/Olympiakos).
Síðan er Origi sláar-markið á móti Everton náttúrulega ótrúlega fyndið/skemmtilegt mark.
Alisson Becker er samt auðvitað búin að toppa öll önnur sigurmörk.
Gerrard á móti Olympiakos er samt ennþá uppáhalds tilfinninga markið mitt.
Það var alltaf Gary Mac en Alisson stal því!
Ég var fyrir aftan markið þegar Smicer skoraði gegn Chelsea 2002. Alisson, McAllister og Origi eru samt topp3
Gary Mac á þetta alveg skuldlaust , hef aldrei fagnað marki eins mikið ! Vorum líka manni færri og auðvitað að spila við bláa liðið og ég staddur heima hjá tengdó og kallinn er bláliði !
Þetta var líka geggjað sigur og mánuði seinna sópuðu við inn bikurum , þegar upp var staðið var þetta draumatímabil og mér fannst þessi aukaspyrna hjá Gary vera ákveðið upphaf af hörkulokasprett sem endaði með fullum bikaraskáp og meistaradeildarsæti !
Fór líka á minn fyrsta og eina leik fyrr á þessu tímabili , einmitt Liverpool-everton sem við unnum 3-1 !!