Eftir ævintýralegt klúður hjá UEFA kom Inter Milan upp úr hattinum í næstu umferð Meistaradeildarinnar. Liverpool er því aftur á leiðinni á San Siro þar sem þeir luku riðlakeppninni með fullu húsi stiga. Steven Gerrard kom svo aftur á Anfield en fékk lítið meira en lófaklappið. Næsta verk er svo ríkasta íþróttalið sögunnar.
Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: SSteinn og Maggi
MP3: Þáttur 360
Takk fyrir þáttinn. Ekkert nema gott að fá Inter uppúr hattinum.
City búið að setja í fimmta gír. Uss uss uss!
Minni á að meistarar 2019/2020 sigruðu Crystal Palace 7-0 þann 19.12.2020. Og fljótlega upp úr því fór flest í skrúfuna. Vonum að svipað verði upp á teningnum í þetta skiptið þó að í sannleika sagt ég efi það.
Mikið sem ég er nú eigingjarn og væri til í að þetta yrði að veruleika og mótinu yrði frestað.
Það er bara of mikil blóðtaka fyrir liðið að missa Salah, Mane og Keita í þetta langan tíma þegar að samkeppnin um titilinn er þetta tæp og hvert stig gríðarlega mikilvægt.
https://www.mbl.is/sport/fotbolti/2021/12/15/verdur_afrikukeppninni_aflyst/
Sammála – var ekki líka verið að tala um að Matip myndi hugsanlega fara líka?
Var hann Matip ekki búinn að segja úr landsliðinu til að einbeita sér að Liverpool
https://liverpooloffside.sbnation.com/liverpool-fc-international-duty/2021/8/26/22642368/liverpool-joel-matip-rejects-invitation-cameroon-national-team-retired-international-football-2015
ekki nema hann sé búinn að endurskoða það núna hef ekki hugmynd.
Sælir félagar
Takk fyrir þáttinn og spjallið. Fínar umræður og fróðlegar. Ummæli Gerrards ullu mér vonbrigðum eftir leik. Hann er “bad looser” finnst mér og hefði átt að sýna meiri karakter. Hann gerir það að vísu í seinni viðtölum – en samt. Annars bara góður 🙂
Það er nú þannig
YNWA