Nýtt tímabil hefst á sunnudaginn og það er erfitt að fylgja eftir fréttum af leikmannamarkaðnum í þessari viku svo margar og misvísandi eru þær. Leikurinn við Chelsea virðist a.m.k. löngu byrjaður þar stríðið á leikmannamarkaðnum virðist hvað helst vera gegn þeim.
Ekkert annað í stöðunni en að hjóla í Hellinn og hita upp fyrir nýju tímabili og fara yfir helstu fréttir.
Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: Maggi og SSteinn
Kop.is Hópferð með Verdi Travel á Anfield
-
10. – 13. nóvember á Liverpool – Brentford
Nánar um ferðina á heimasíðu Verdi Travel hér
-
Flogið beint til Liverpool með Play á föstudeginum klukkan 07:00 og heim á mánudeginum klukkan 10:50.
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
Verdi Travel – Egils Gull / Húsasmiðjan / Miðbar / Jói Útherji / Ögurverk ehf
MP3: Þáttur 434
Takk fyrir podcastið drengir. Ég vona svo innilega að við náum í Caceido, en mig langar svo roooossssaaaaallleeeeggggaaa í varnarmann líka, því við erum svo brothættir varnarlega.
Pavard væri frábær, fyrir ekki mikinn pening, getur spilað bæði hafsent og bakvörð, í 3 manna eða 4 manna vörn. Við þurfum að fara að halda HREINU í leikjum.
Sagt að LFC hafi lagt inn 115 millj evru tilboð í Caceido ! og að Brighton muni taka hæsta tilboði í leikmanninn !
Spái því að LFC sé að keyra upp verðið á Caceido svo Chelsea hafi ekki lengur pening fyrir Lavia líka.
Heyrðuð það fyrst hér.
Celski-Liverpool = 1-3
Alisson
Trent Konate VVD Robertson
Gary
Dominiq Jones
Salah Gakpo Jota