Í næstu umferð mætum við Bournemouth á útivelli
Mörkin
0-1 McAtee (4. mínútu)
1-1 Gakpo (48. mínútu)
2-1 Szoboszlai (70.mínútu)
3-1 Jota (89. mínútu)
Gangur leiksins
Klopp valdi óvenju sterkt lið í 32-liða úrslit Carabao cup í dag sem sýnir hversu góð breyddin er orðinn í liðinu. Það byrjaði þó ekki vel þegar Leicester komst yfir strax á þriðju mínútu leiksins. Tsimikas tók þá aukaspyrnu sem mistókst en boltinn kom aftur til hans undir pressu og hann missti boltann, þó það hafi líklega verið brotið á honum, og Leicester menn náðu að stinga boltanum inn á McAtee sem rendi boltanum framhjá Kelleher í markinu. Rangstöðulykt af þessu, fengum ekki alveg nægilega gott sjónarhorn í endursýningu en sýnist þó að Curtis Jones spili hann réttstæðan en alls ekki viss en ekkert VAR í þessari umferð og markið stóð.
Nokkrum mínútum seinna hefði Ben Doak getað fengið víti þegar hann var sparkaður niður en ekkert var dæmt. Það var svo með ólíkindum að Liverpool náði ekki að jafna á elleftu mínútu þegar boltinn barst til Jota eftir hornspyrnu en hann missti boltann í gengum klofið á sér en Doak fylgdi á eftir með skot í varnarmann og aftur fyrir. Úr því horni kom boltinn til Doak sem þrumaði honum í þverslánna. Í kjölfarið tók Liverpool öll völd í leiknum en inn vildi boltinn ekki. Það var svo hollensk samvinna sem jafnaði leikinn fyrir okkar menn þegar Gravenberch fann Gakpo sem náði að koma boltanum vel fyrir sig og jafna leikinn. Gakpo átti síðan eftir að eiga sláarskot áður en við komumst yfir en þar var á ferli okkar besti maður á tímabilinu til þessa en Szoboszlai kom inn sem varamaður og sex mínútum seinna skoraði hann með þrumufleyg af rúmlega tuttugu metrum. Geggjað mark frá geggjuðum leikmanni.
Undir lok leiks gerði Jota svo út um leikinn en hann skoraði þriðja mark Liverpool með hælspyrnu eftir sendingu frá Quansah rétt eftir að maður hafði kvartað undan því að síðasta snertingin var búinn að vera pínu off hjá Jota í dag, eitthvað sem maður er ekki vanur þá sokkaði hann mig svakalega.
Góður dagur
Það gera margir tilkall þar sem við vorum virkilega flottir í dag og ótrúlegt að mörkin hafi aðeins verið þrjú. Sóknarþríeykið Gakpo, Jota og Doak sköpuðu rosalegan ursla og var gaman að fylgjast með þeim í dag þó það sé ljóst að Doak þarf að fara á æfingasvæðið og setja nokkra bolta í netið þá verður þetta stjarna. Endo átti sinn besta leik fyrir Liverpool í dag mun og Quansah er að fara fram úr öllum mínum væntingum og stóð vaktina vel.
Hvað hefði betur mátt fara?
Því er auðsvarað í dag og það er færanýingin. Með 15 skot í fyrri hálfleik og 6 horn, endum leikinn með 29 skot en áttum erfitt með að brjóta múrinn og svo auðvitað að fara byrja leiki á fyrstu mínútu en ekki þegar við fáum á okkur fyrsta markið.
Næsta verkefni
Næst er það sjóðandi heitt lið Tottenham á laugardaginn og með sigri það fara væntingar manns til tímabilsins framundan að fara úr böndunum.
Það verður dregið í næstu umferð í kvöld og uppfæri þegar það er orðið ljóst hver næsti andstæðingur er, en það er ljóst að það er ekki Man City sem féllu úr leik í dag.
21 Comments