Eins og orðrómurinn sagði þá er Alisson frá, og liðið annars nánast það sama og var spáð í upphitun nema að Salah byrjar á bekk og Díaz er í framlínunni:
Bekkur: Adrian, Gomez, Quansah, Tsimikas, Gravenberch, Elliott, McConnell, Gakpo, Salah
Þetta er lið sem á alveg að geta unnið, AÐ ÞVÍ GEFNU að menn mæti með hausinn rétt skrúfaðan á.
3 stig í dag takk.
KOMASO!!!
Flott lið og það er alltaf frábært að eiga leikmann eins og Salah sem getur komið inn af bekknum en vonandi verður ekki þörf á því í dag.
Spenntur að sjá Bradley í dag, hef það mikla trú á honum að ég setti hann sem cpt í fantacy liðið hjá mér.
Hvað er samt með Szobzlai ..talað um illness og return late feb.
Var hann ekki um daginn veikur líka er hann veikur í mánuð?
Það tók sig upp gamalt bros.
Ósköp er þetta hægt hjá okkur.
Flottur leikur, en þeir eru stórhættulegir.
Um leið og Jota fær boltann þá myndast hætta….
Þetta er eitthvað voðalega dauft
Og nú er Jones líka meiddur.
Þurftum ekki meiri meiðsli..
Váááá
Nunezzzzz!!!
Alvöru mark hjá Nunez !
Svakalegt mark 🙂 En er það bara ég eða eru bara aukaspyrnur á annað liði….
Nunez þvílík afgreiðsla! Þetta er sjálfstraust!
Frábærlega gert hjá Jota!
Og núna Jota…
Þetta er litla grínið Jota mikið meiddur sýnist manni.
uss,. hvaðer að gerast með þessi meiðsli. Ekki gott uppá framhaldið.
Dj væri slæmt að missa Jota í næstu leikjum
Og nú Jota? Hvað er í gangi???
Svona án gríns hvað er í fjandans gangi?
Það er akkúrat ekkert eðlilegt við fjölda meiðsla þessu liði.
Hrikalega svekkjandi að missa 2 leikmenn í meiðsli í 1 fokking hálfleik.
Hættið að fokking jinxa alla leiki með að óska eftir að meiðslalistinn lengist ekki !
Jæja maður er nógu æstur hérna í sófanum að sjá tvo af okkar allra bestu komna á sjúkralistann – skyldi þetta þá ekki hafa áhrif á stjórann?
Þvílík ógæfa að fá sífellt þetta bakslag.
En svo maður súmmeri þetta upp: Nunez maður þessa hálfleiks, Bradley öflugur, Diaz síhlaupandi en þarf aðeins að vinna betur úr tækifærunum. Jota fannst mér geggjaður og Jones öruggur (þessar mínútur). Macallister í toppmálum sem og Endo.
Hvað vörnina varðar þá höfum við fengið ansi mörg skot á okkur. Það þarf að passa þetta.
Svo hefði maður hlaupið út og keypt flugelda ef Salah hefði hitt boltann fyrir opnu marki og skorað…!
Miðjan er ekki að vernda vörnina nóg. Finnst miðjan of hæg til baka.
King Jota , er mikill missir. okkar besti maður frammi
Þetta gæti orðið dæmigerður Brentford martraðarleikur.
Hrikalega dýr meiðsli og svo klúðrast þetta í lokin.
Nikkið hjá Jota á Darwin var snilld og afgreiðslan úr efstu hillu hjá Darwin
Það er nú þannig
YNWA
Jota búinn að vera flottur undanfarið, leikmaður mánaðarins. Auðvitað missum við hann í löng meiðsli eftir ótrúlega óheppilegt atvik í næsta leik á eftir. Og Thiago náði 10mínútum eftir 10 mánaða meiðsli.
Bíddu…eru þá skiptingarnar búnar? Engin auka útaf meiðslum? Er ekki bara 4ja skiptið leyft ef um höfuðmeisli er að ræða.
já er það?
Erum svo sem ekki með mikið á bekknum eftir – en vissulega einn Eliott. Súper-sub.
Eitt skiptihlé eftir, búið að taka 2 í “venjulegum leiktíma” og svo má skipta í hálfleik þar fyrir utan.
ha? tók hann Darwin út af???
og setti Gakpo inn á…
ekki er hann farinn að haltra?
Suður-Amerísk veisla!
Salah þvílíkur kóngur !!!
Þvílíkur fótbolti hjá okkar mönnum í seinnhálfleik….
Salah!! Var að fara að blóta honum fyrir að senda ekki á Diaz en svo sýnir hann þennan líkamsstyrk og nær að klára úr erfiðri stöðu. Magnaður!
Góð lið klára svona leiki……við erum MAGNAÐ lið…..
Gakpo leynir á sér og refsar
Diaz búinn að vera frábær.
Kæri og góði Gakpo minn!
Salah má koma með eitt í lokinn…..
Fernan lifir……