Okkar menn mættu til Lundúna og héldu áfram í sama gír eins og í fyrsta leik ársins, gír sem má alveg komast upp úr.
Markið
1-0 Bergvall (86. mín)
Hvað gerðist helst markvert?
Fyrri hálfleikur var með þeim allra gleymanlegustu. Í raun er bara tvennt sem stóð uppúr: Bentancur hjá Spurs þurfti að fara af velli eftir 4 mínútur, gæti verið meiddur á höfði eða hálsi og vonum við að sjálfsögðu að hann nái sér. Þá þurfti Quansah að fara af velli veikur eftir hálftíma leik, Endo kom í hans stað, enda Konaté ekki klár í að spila einhver ósköp verandi nýstiginn upp úr meiðslum. Annars var fátt um fína drætti, og 11 mínútur í uppbótartíma gerðu lítið til að lífga upp á hálfleikinn, nema síður sé.
Seinni hálfleikur var nú aðeins fjörugri, og þá sérstaklega eftir að Trent, Nunez og Díaz komu inná fyrir Bradley, Jota og Gakpo. Díaz hefur svosem oft spilað betur en í þennan hálftíma sem hann var, en Nunez var líflegur og líklega mesta hættan í kringum hann. Reyndar var líka talsverð hætta í kringum Alisson nema bara að það var hætta fyrir okkar menn, hann náði einusinni að missa boltann í teignum og bara heppni að Spursarar náðu ekki að nýta sér það betur. Solanke skoraði mark sem VAR tók af vegna rangstöðu (réttilega), en þegar um 5 mínútur voru til leiksloka dró til tíðinda, og enn og aftur kom dómgæslan við sögu. Liverpool komst í hraða sókn, Tsimikas var tæklaður af Bergvall en boltinn hélst innan liðsins og sóknin hélt áfram, án þess að neitt yrði svo úr henni. Tsimikas meiddist í tæklingunni – og þetta var n.b. alltaf tækling sem verðskuldaði gult spjald – en dómarinn ákvað af einhverjum ástæðum að gera ekkert í því. Téður Bergvall var nú þegar á gulu spjaldi, og fékk það svosem fyrir litlar sakir, en var á gulu spjaldi þrátt fyrir það, og hefði því alltaf átt að fjúka útaf fyrir vikið. Og svo skoraði hann auðvitað í næstu sókn Spursara, þar sem langur bolti fram barst til Solanke, Konaté var í ágætri aðstöðu til að afgreiða þann bolta en leyfði Solanke að hirða hann, og niðurstaðan varð mark frá Svíanum sem hefði jú átt að vera fokinn í sturtu. Það sem meira var, Tsimikas var ekki kominn inná þar sem hann þurfti aðhlynningu, og af því að ekkert var dæmt þá mátti hann ekki koma inná strax.
Okkar menn náðu ekki að jafna á þessum örfáu mínútum sem eftir voru, og fyrsta tap Liverpool staðreynd í öllum keppnum staðreynd síðan 14. september.
Hverjir stóðu sig vel?
Svosem enginn sem var að brillera eitthvað sérstaklega. Virgil var eins og venjulega eins og klettur í vörninni. Nunez var óvenju líflegur, og Trent ágætur sömuleiðis. Endo kom bara nokkuð sterkur inn í miðvörðinn. Enginn sem átti einhverja stjörnuframmistöðu samt.
Hvað hefði mátt betur fara?
Almennt var bara eins og það væri einhver deyfð yfir mannskapnum. Bradley var óöruggur, Quansah sömuleiðis (kannski eðlilegt ef hann var slappur eða veikur), og Tsimikas á það til að vera kaldur í byrjun, gefa vafasamar sendingar, en hrista það svo af sér. Curtis var með slappasta móti, Macca og Grav söknuðu líklega Szoboszlai á miðjunni. Salah oft verið beittari, sama með Gakpo og Jota. Alisson var líka nálægt því að gefa mark. Semsagt: liðið bara alls ekki sannfærandi.
Umræðan eftir leik
Liðið byrjar árið 2025 semsagt ekkert sérstaklega vel. Jújú, ef menn ætla að tapa einhverjum leik þá er þetta líklega besti leikurinn til að taka það út. Þ.e. ef planið er að vinna svo seinni leikinn og það helst nokkuð örugglega. En það er vissulega áhyggjuefni að spilamennskan sé eins og hún er. Væntanlega sjáum við mikið breytt lið gegn Accrington Stanley á laugardaginn, og því ósamanburðarhæft, en aðal prófraunin verður þá á þriðjudaginn í næstu viku þegar liðið sækir Forest heim. Þá einfaldlega VERÐA menn að vera búnir að hrista slenið af sér, hvort sem þetta er bara eitthvað andlegt, eða þreyta, nú eða flensa sem gæti líka spilað inn í.
Svo má spyrja sig hvort liðið sakni Szoboszlai og vinnslunnar sem hann býður upp á. Það er a.m.k. full ástæða til að vona að hann hristi sín veikindi af sér og verði mættur í síðasta lagi gegn Forest, má svosem alveg vera á bekk á laugardaginn og jafnvel að fá einhverjar mínútur til að spila sig aftur í gang.
Næstu verkefni
Bikarinn á laugardaginn – hádegisleikur á Anfield gegn neðrideildarliði. Það má reikna með – já eða við gerum kröfu um – að nánast allt byrjunarliðið verði utanvallar (nokkuð viss um að Einar Matthías er búinn að senda skilaboð á Slot þar að lútandi).
Og svo er það toppslagurinn á þriðjudag í næstu viku, en það má alveg sleppa því að velta honum fyrir sér þar til laugardagsleikurinn er búinn.
Ekki byrjar nú árið beint með stæl hjá okkar mönnum.
Spurs spiluðu allt annan leik en síðast. Þeir pökkuðu á köflum í vörn og spiluðu af varkárni. Áttu snarpar sóknir. Hefðu getað komist yfir fyrr þegar sá sænski vann boltann af Alisson og Porro brenndi af í dauðafæri.
Kom á óvart hvað Nunez var hittinn á rammann. Auðvitað var sá nýkeypti í banastuði og magnað að hann skyldi verja hælskotið hans.
Við vorum þungir og hægir. Alltaf glatað að tapa en góðu fréttirnar. Já þið vitið.
Nunez kom flottur inn. Alison var með smá skrítna takta og svo er varið frá TAA á línu….hefðum getað siglt þessu þrátt fyrir lélegan leik
Munaði sáralitlu að Solanke hefði verið réttstæður í markinu sem var dæmt af!
Einn af okkar slökustu leikjum. Nú að vona að Slot hafi einhver ráð uppi í erminni.
Vorum við lélegir….já
Getum við hraunað yfir einhvern einn leikmann….nei
Eru leikmenn Liverpool ömurlegir….nei
Var dómarinn slappur…..já
Held ég áfram að styðja mitt lið……já
Er allt hrunið og farið til andskotans…..nei
Þá er það sagt og ég styð mitt lið hvernig sem blæs. Og mitt lið samanstendur af þeim leikmönnum sem við höfum og ég stend við bakið á þeim 🙂
YNWA
BjörnS er bara besta Liverpool-jarðtengingin sem öllum býðst.
Áfram gakk!!
Eins og eiginlega vanalega þá var Liverpool með hærra xG en hitt liðið en í þetta skiptið hefði jafntefli verið sanngjarnt. Að því sögðu hefði Bergvall að sjálfsögðu átt að vera með rautt þegar hann skoraði.
Öfugt við aðra hins vegar kannski á þessu spjalli þá er þetta enginn heimsendir, við mættum Utd liði sem fagna jafntefli nánast eins og meistaratitli. Síðan mættum við Tottenham liði sem hafði gjörsamlega að öllu að keppa, samt getum við verið verulega svekktir með úrslitin í báðum leikjum.
Nota bene, það er enginn að tala um “meiðslalistann” hjá Liverpool af einhverjum ástæðum, fokusinn er frekar á það neikvæða eins og vanalega
Meiðslalistinn er innan gæsalappa miðað við umfjöllunina varðandi önnur lið, sem er kannski smá breyting frá fyrri tímum þó Henderson hafi verið settur í vörnina hjá Liverpool á sínum tíma ?
Sá sænski skorar en átti þá þegar að vera kominn útaf með 2 gul spjöld – í lagi á Englandi að strauja menn niður þegar tæklarinn þegar á spjaldi! Dómaratríóið út á þekju og línuvarðardruslan þarna megin hefði átt að flagga á brotið – punktur! Ok, beitir hagnaðarreglu af því að Liverpool í sókn en hey…… gefðu Svíagrílunni spjaldið eftirá og þar með rautt!! Spurs högnuðust gífurlega á þessu þar sem Tsimikas beið á hliðarlínunni eftir að komast inná völlinn – á meðan skoraði Svíadruslan.
Ekki það, Liverpool “sloppy” í fyrri hálfleik og vöknuðu ekki fyrr en langt liðið á síðari hálfleik. Curtis Jones slakur enn eina ferðina, Salah sást ekki o.s.frv o.s.frv………… menn þurfa að hysja upp um sig buxurnar fyrir útileikinn á móti Forest í næstu viku, ekkert tilhlökkunarefni þar á ferðinni miðað við þreytulega leikmenn þessa stundina!
Liðið virkað þungt og þreytt í síðustu leikjum. Hefði viljað sjá fleiri hvílda. Svakalegt álag framundan og vonandi koma lykilmennirnir ekki nálægt bikarleiknum gegn D deildarliðinu á laugardaginn.
Þreyta eða ekki, dómaraskandall eða ekki, þessi frammistaða var til háborinnar skammar. Okkur verður slátrað í næstu deildarleikjum ef menn ætla að bjóða upp á þessa hörmung leik eftir leik.
Þetta Tott lið getur ekki neitt, en við vorum verri.
Maður hefði haldið að menn kæmu brjálaðir eftir skituna gegn UTD, en nei, ekki þessir leikmenn.
Ekki beint gæfulegt eða traustvekjandi.
Vissulega dómaraskandall. Engu að síður slöpp frammistaða núna tvo leiki í röð.
Skil ekki af hverju okkar bestu menn eru látnir þræla í þessari keppni. Deildin á að vera í algjörum forgangi og þessir leikmenn eru augljóslega þreyttir.
Samningamenn eru svo enn með allt niðrum sig og sú blauta tuska liggur áfram yfir liðinu og þyngist með hverjum deginum.
Liðið er í smá lægð og er það núna á næstu misserum sem við fáum að sjá úr hverju Arne Slot er gerður.
Áfram Liverpool!
Við eigum Accrington a laugardaginn, þetta var undanúrslitaleikur. Mér fannst Slot finna ágætis balance miðað við fyrsta lið og þá sem spila minna hlutverk. Ekki sterkasta liðið en samt nógu gott til að vinna sem var actually mjög close ef farið er í gegnum öll atriði
Það er álag!
Mér leið ekkert ílla í þessum leik fannst við vera með yfirhöndina. Fannst samt eins og menn ætluðu ekki uppúr 1 eða 2 gír.
Ég var farinn að sætta mig bara við 0-0 og svo klára þetta vonlausa Spurs lið á Anfield.
Og ég trúi því að það sé en raunin.
Ef Anfield þarf þess þá mun andrúmsloftið þar draga þetta yfir línuna.
Og liðið mun berjast mun meira en þetta.
Næst er það einhver leikur í FA Cup sem ég vona innilega að Slot fari að gefa mönnum meiri séns sem ekki hafa fengið að spila mikið.
Hugur minn var í kvöld og verður um helgina nánast allur á þennan úti leik gegn Forrest þar þurfa menn að mæta til leiks
Leikurinn breyttist við þreföldu skiptinguna og við náðum yfirhöndinni… en gátum bara ekkert framan við markið. Nunez verður aldrei markaskorari og Jones er ekki nógu afgerandi leikmaður ennþá. Trent sýndi hvað hann leggur til sóknarleiksins og gerði margt gott og Virg var frábær. Eigum að vinna seinni leikinn ef allt verður eðlilegt. Szobozlay verður þá vonandi komin á fulla ferð því við söknum hans. Miðjan Szoboslay, McAllister og Gravenberch skilar mestu.
Ég segi og skrifa – Szobo er hinn nýi Hendo! Spilum af takmörkuðum styrk án hans! Einn mikilvægasti leikmaður liðsins.
Sammála. Szoboszlai er magnaður leikmaður og mikilvægt púsl í okkar sterkasta liði.
Ég gleymdi reyndar að minnast að á í markinu hversu ótrúlega lélegt er það samt að Tsimikas hafi verið útaf vellinum eftir að hafa verið tæklaður af Bergvall (annað gula), það er eiginlega þreföld refsing, þeas ekki rautt, einum færri og mark!
Dómara skita
En hey það er bara hálfleikur
Það sáu allir að dómarinn gerði mistök en það sem mér finnst er að mikil þreyta sé að koma fram hjá liðinu. Slot, hefur keyrt að mestu á sama liðinu. Ekki er kannski hægt að gagnrýna hann þegar liðið vinnur leiki. Þetta mun koma í bakið á okkur þegar fram líður á tímabilinu. Ekki virðist vera hugmynd að styrkja liðið, frekar að menn sé að fara.
Vá, ég var næstum búinn að gleyma þeirri tilfinningu að tapa leik. Við tökum þá á öskrandi Anfield í þeim seinni. Vissulega áhyggjuefni ef lappirnar eru orðnar þreyttar því álagið er mjög mikið. Það er vissulega góð tilfinning að vera með smá slaka vegna ótrúlega góðs gengis á öllum vígstöðum.
Úr öskunni í eldinn. Höfum ennþá einn leik til að bjarga þessari keppni.
Slappur leikur hjá okkar mönnum en mér fannst Liverpool samt allan tímann betra liðið. Það vantaði upp á gæði sendinga þegar við vorum komnir í ákjósanleg fær, boltinn spýttist áfram i eins og völlrinn væri harðari en vanalega eða boltinn öðruvísi eins og einhver bjálfari benti á. Síðan skil ég ekki hvers vegna mönnum fannst það sem átti að vera fyrra gula spjald Svíans soft. Þar var brotið tvisvar á Tsimikas af tveimur leikmönnum og í seinna skiptið með minni snertingu Svíans og því fékk hann gult spjald. Þar var álitlegt upphlaup stöðvað með tveimur brotum og ekki er hægt að gefa tvö gul spjöld eða tvær aukaspyrnur því var gult á seinna brotið af þessum tveimur því eðlileg niðurstaða. Brot Svíans seinna í leiknum var hinsvegar klárt gult spjald. En ekki meiri væll, áfram gakk og næsti leikur takk. Hvíla allt byrjunarliðið í næsta leik væri fínt.