Liverpool borg er og hefur alltaf verið rauð, sigur á David Moyes og Everton var aðalatriði í leik sem tók vel á þolrifin og þökk sé því hvernig hann var dæmdur. Tólf stig þarf úr átta síðustu leikjunum til að klára titilinn.
Hlóðum í nýtt Ögurverk lið og spáðum í spilin fyrir leikinn gegn Fulham um helgina og leikjaprógrammið í þessum mánuði. Allir leikir Liverpool sem eftir lifa tímabilsins verða á sunnudegi.
Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
MP3: Þáttur 515
Mikið er gott að heyra í ykkur aftur
Komnir á fimmtudaga hljómar vel ennþá betra líka mánudaga.
Ég hlakka til að hlusta og djöfull vona ég að Maggi hafi tekið samfélagsendann í markinu hjá Everton rækilega fyrir. Þetta brot hans á Nunez var ótrúlega keimlíkt því þegar hann slasaði Van Dijk og það er algjör skömm að hann fái að halda áfram leik í bæði skiptin og bara fái að spila fótbolta yfir höfuð. Fyrir mér skiptir engu hvort búið sé að flauta eða ekki, árás er alltaf árás, leikmenn fá rautt fyrir að hrinda hvor öðrum þótt búið sé að flauta.
Afsakið rantið, þurfti aðeins að fá að blása 🙂
Varðandi köll um rangstöðu frá Everton, voru þeir einfaldlega ekki að reyna að breyta umræðunni eins og þjálfarar gera oft, sérstaklega að reyna að breyta umræðunni frá rauða spjaldinu. Ég held að þeir hafi vitað vel að þetta var rétt ákvörðun þegar Jota skoraði, aum tilraun hjá þeim.
Leyfum þessu rangstöðumarki bara að standa. Alveg frábært að hafa unnið Everton svona.
engin rangstaða, fullkomlega löglegt mark.
Þessi köll um rangstöðu eru einfaldlega þekkingarleysi. Skv. reglunum þá hefur Diaz ekki áhrif á leikinn, hvort sem menn eru sammála því eða ekki og eftir því skal dæma.
Sumir vilja einfaldlega sveigja og beygja reglunrnar eftir hentugleika.
Þeir sem kalla á rangstöðu ættu frekar að kalla eftir reglubreytingu.
Í viðtölum eftir leikinn kom í ljós að aðeins annar stjórinn var með þessa reglu á hreinu, hinn opinberaði vanþekkingu sína.
Sælir félagar
Takk fyrir þáttinn og gott spjall. Maður er aunar alveg orðinn háður því að hlusta á ykkur í viku hverri og gott að heyra hlutlaust og sanngjarnt mat á Liverpool og öðrum liðum. Þið eruð sigurvissir fyrir næsta leik og hafið vonandi rétt fyrir ykkur.
Það er nú þannig
YNWA
Hvernig í anskotanum stendur á því að allir leikir LFC séu á Sunnudögum, þetta er buið að vera svona allt tímabilið.
Everton gersamlega afleitir gegn Arsenal. Hafa engan áhuga á þessu og sjálfsagt að hugsa um að gera Liverpool engan greiða.
Arsenal tapa fleiri stigum 😀
Tæknilega séð, fékk Liverpool jafnmörg stig úr þessum leik og liðin tvö til samans.
… eða bara Liverpoolborg hirti 3 stig úr leiknum.
Everton skilaði sínu. Blessaðir drullusokkarnir. Náðu tveimur stigum af Arsenal.
Nágrannar okkar í Liverpoolborg að hjálpa til, nú er komið að okkur á morgun að gera þetta enn sætara!
YNWA
Þessi úrslit segja mér að Everton hafa greinilega enga trú á að Arsenal geti náð Liverpool.
10 stig í 8 leikjum.
Þetta er komið.
Jafntefli gegn Fulham yrðu fín úrslit
Það er ekki oft sem ég hugsa hlýlega til Jordan Pickford, en …
Láttu það alveg eiga sig. Það hefðu allir varið þetta skot.
Arsenal að skjóta aftur yfir markið. Yndislegt.