Seint mætti Gullkastið þessa vikuna, sem er til marks um ákveðinn slaka í hugum okkar, enda Englandsmeistarar. Við fórum yfir töluvert af safaríku slúðri sem fjallað hefur um okkar menn undanfarið, veltum fyrir okkur fílupúkanum Arteta og hans stöðu hjá Arsenal. Skoðuðum stöðuna í Meistaradeildarbaráttunni, völdum framherja í Ögurverksliðið og skoðuðum síðasta útileik vetrarins í EPL, viljum klára tímabilið með reisn auðvitað.
Stjórnandi: Maggi
Viðmælendur: SSteinn
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
MP3: Þáttur 521
Minar oskir til SSteins eru að hann fai fullan bata af sinu meini, megi þer ganga sem allra best a þeim farvegi vinur okkar allra, leyfi eg mer að segja. Eins og ætið, frabær þattur, þar sem hjarta Liverpool fær alltaf að njota sin.
YNWA
ÉG freisti klúbbnum fullkomlega til að taka rétt skref á leikmanna markaðnum.
Gangi þé vel SSteini í baráttuni sem framundan er.
YNWA!
Gangi þér vel SSteinn í þinni baráttu, hlýjar kveðjur. YNWA!
Sælir félagar
Það er afar leitt að heyra um veikindi þín SSteinn. Allar mínar bestu óskir fylgja þér í baráttu þinni við þennan vágest. Munum að hann er ekki ósigrandi og mun vonandi lúta í gras fyrir þér félagi. “Þú gengur aldrei einn” og allir stuðningmenn ganga með þér þennan veg.
Það er nú þannig
YNWA
Blessunar og bataóskir til þín SSteinn. Mikil brekka er framundan og þá er gott að vita að maður arkar ekki einn þá leið.
Baráttu kveðjur til SSteins. YNWA
Baráttu- og batakveðjur SSteinn og takk fyrir hlaðvörpin. YNWA. Liverpool, Liverpoolsamfélagið og podcöstin hafa hjálpað mér býsna í minni brekku. Gangi þér vel og áfram Liverpool, alltaf, alls staðar.
Gangi þér sem allra best í þeirri baráttu sem framundan er klri SSteinn. Þú gengur aldrei einn!
Batakveðjur Sigursteinn, ynwa
Ég hvet alla sem eru komnir yfir 45 ára að panta tíma í ristilspeglun. Þessi vágestur er að færast í aukanna, sérstaklega hjá fólki á milli 45 og 55 ára. Hefur tekið tvo vini mína á þessu ári, 46 og 49 ára.
Baráttukveðjur SSteinn!!!
Baráttukveðjur Steini. Takk allir fyrir að nenna að halda Gullkastinu gangandi, það ber af öðrum íslenskum fótboltapoddum.
YNWA
Baráttu kveðjur SSteinn. YNWA á svo sannanlega við núna.
Here we go komið fyrir Frimpong! Fyrstu kaup sumarsins. Sendi Steina bestu baráttukveðjur. YNWA!
Baráttu kveðjur til þín Steini.
YNWA
Hágrátandi Crystal Palace aðdáendur á Wembley. Virkilega fallegt.
Palace á þetta svo sannarlega skilið. Frábært félag. En 10 mínútur í uppbótartíma?
YNWA Ssteinn, bata- og baráttukveðjur
Sendi mínar bestu batakveðjur á Ssteinn YNWA.
Mín óska signings í sumar.
Frimpong (nánast staðfest)
Fá Milos Kerkez í vinstri bakvörðinn.
Konate skrifar undir 5 ára samning, annars bara í kælinn á beint á sölulistann.
Adam Wharton frá Palace
Florian Wirtz
Og gæða sóknarmann.
Selja
Tsimikas
Endo, ekki vinsæl skoðun en Slot vill ekki nota hann.
Kelleher enda er Mamardasvili að koma
Tyler Morton
Harvey Elliot (sorry Elliot)
Darvin Nunez, sorry það er bara fullreynt
Chiesa átti aldrei séns
Ramsey, Nat Phililps, Ben Doak, Rhys Williams
Svo fáum við Stefan Bajcetic til baka úr láni
Og Joe Gomez úr langtímameiðslum
Gangi þér vel Steini í þinni baráttu.
Áfram Liverpool
Ég hef frá upphafi fylgst með ykkur og lesið allt. Poolari í 50 ár. Hef aldrei haft áhuga á að taka þátt í skoðunarskiptum ykkar og ég reyndar skil ekki alltaf hörkuna í ykkur. Menn mega hafa mismunandi skoðanir.
Þetta eru fyrstu skrif mín. Og þau eru bara til að senda Steina kveðju. Gangi þér vel elsku poolari og takk fyrit frábæra þjónustu í Liverpool.
Baráttukveðjur, Steini. Y.N.W.A.
Baráttukveðjur SSteinn!
YNWA
Batakveðjur Steini ? YNWA
Sælir bræður og takk fyrir góðan þátt – umfram allt annað þá sendum við vonandi allir okkar bestu bata- og baráttukveðjur í verkefnið sem er framundan – YNWA!
Baráttukveðjur SSteinn.
Svo langar mig að óska langbesta liði Englands (að mér skilst) til hamingju með að hafa tryggt sér meistaradeildarsæti í næst síðustu umferðinni rétt í þessu. Geri aðrir betur.
Jæja Frimpong virðist búinn í læknisskoðun samkvæmt öllum miðlum og þá er bara vaðið í næsta leikmann.
Það er rosalega flott endurnýjun ef við fáum þá félaga Frimpong (24) og Kerkez (21)
Fabrizio Romano
? Understand Liverpool have contacted Bournemouth for Milos Kerkez deal with talks now advancing!
Liverpool are also completing the agreement on personal terms with Kerkez, keen on the move.
Negotiations underway between clubs on transfer fee.
Hef hlustað á ykkur frá upphafi en aldrei skrifað athugasemd á þessari síðu. Ég geri það núna til að óska þér SSteinn alls hins besta og sendi þér stuðningskveðjur í þína baráttu. Þú munt sigra. YNWA!
Takk fyrir gott hlaðvarp að vanda, baráttukveðjur til SSteinn – YNWA..
Bestubatakveðjur Steini.