Tímabilið 2024-25 er búið og bara gat ekki farið mikið betur fyrir Liverpool, létt uppgör á því. Sigurhátíð um helgina og almenn gleði þar til eitt fífl setti stóran svartan skugga á hátíðarhöldin.
Leikmannaglugginn opnar eftir helgi og Liverpool virðist heldur betur ætla að vera með og gera stórar breytingar á hópnum fyrir næsta tímabil.
Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
MP3: Þáttur 523
Markmaður: Ray Clemence
Varnarmenn: Alan Hansen, Alan Kennedy, Trent Alexander Arnold, Andy Robertson, Jamie Carragher, Mark Lawrensen, Phil Neal, Phil Thompson, Tommy Smith og Ron Yeats.
Miðjumenn: Steve McManaman, Jimmy Case, Sammy Lee, Jordan Henderson, Ronnie Whelan, Ray Kennedy, Terry McDermott, Graeme Souness, Ian Callaghan, John Barnes og Steven Gerrard.
Sóknarmenn: Ian Rush, Kenny Dalglish, Robbie Fowler, Michael Owen, Kevin Keegan, og John Toshack
Clemence
Neal, Thompson, Hansen, Kennedy
Souness, Gerrard, McDermott
Dalglish, Rush, Barnes
Hvað með Suarez i soknini!!!!
YNWA
Það má bara velja leikmenn frá Bretlandseyjum í þennan leikmannahóp. Annars hefði Allison, Van Dijk, Hyppia, Suarez og Salah m.a. verið í þessu liði.
Jæja þá er það staðfest með að Trent sé farinn til Real.
En við náðum þó af þeim smá pening fyrir hann og hann er þá laus allra mála hjá Liverpool.
Real Madrid will pay Liverpool around €10m to sign Trent Alexander-Arnold early. He will have a €1 BILLION release clause.
Sælir bræður og takk fyrir góðan þátt.
Úr því sem komið var þá var bara ágætt að þessi lokaleikur endaði sem jafntefli, svona í ljósi þess að Palace eru nýkrýndir bikarmeistarar. Við hefðum átt að vinna frekar hina þrjá leikina eftir að titilinn var klár. Virkilega nice touch að okkar menn stóðu heiðursvörð fyrir Palace líka – ekki oft sem Englandsmeistarar og bikarmeistarar mætist í lokaleik tímabilsins.
Svo ber því að fagna að það er loksins sem að Liverpool er að rífa upp veskið og slengja því á borðið. Stefnir í að Frimpong verði kynntur formlega í dag og svo er dagaspursmál með Wirtz og Kirkez detti inn eftir helgi. Svo er sterkur orðrómur um að það verði skerpt á framlínunni í þokkabót.
Það eitt og sér að Liverpool sé eini áfangastaður Wirtz er svo sterk skilaboð út á markaðinn – Liverpool er þarna að festa sig í sessi, ekki bara með því að landa 20. Englandsmeistaratitlinum og gefa ManYan langt nef í leiðinni heldur erum við líka farin að skáka toppliðum í Evrópu þegar bestu bitarnir vilja komast í almennilegan bolta.
Hvað varðar árangurinn á þessu tímabili þá hef ég bara reynt að hafa þetta einfalt – hvernig er árangur Liverpool í samanburði við okkar erkifjendur frá Manchester? Miðað við holuna sem ManYan er komið í þá er þetta mögulega besta tímabil okkar í manna minnum. Þetta lestarslys sem Ratcliffe og Amorim eru með í höndunum er með slíkum eindæmum að þeim tekst að láta Trump líta út eins og einhverskonar master negotiator – megi þessi hörmung vara sem lengst.
Skil síðan ekki hvað er verið að eyða miklu púðri í að ræða um Arteta og hans árangur eða réttara sagt skort á árangri – maðurinn er ekki starfi sínu vaxinn og er klárlega ekki í standi til að vera þarna í efri deildunum.
Sting svo upp á nýju Ögurverks-lið – bestu leikmenn Liverpool í hverri stöðu og eiga að baki A-landsliðsleik með sínu heimalandi.
Áfram að markinu – YNWA!
Flott að fá smá pening fyrir Trent – þó ekki séu það stórar upphæðir.
10m evra er þó ansi stór upphæð fyrir það eitt að losa hann mánuði fyrr. Undarlega mikið
8,4 milljónir punda fyrir leikmann sem var búinn að spila sinn síðasta leik fyrir félagið. Það finnst mér ótrúleg tala og segir mér bara hvað þetta er klikkaður heimur. Skil það er mikilvægt fyrir Real að fá hann sem fyrst og eflaust skilar sér eitthvað af þessu ef hann spilar á HM félagsliða í Bandaríkjunum.
8,4 milljónir samt, það er einn Andy Robertson.
Ornstein, nýtt tilboð í Wirtz 130m evra, einhver hluti af því add on.
Einhverjir vilja meina að viðræðurnar hafi farið á flækjustig vegna þess að Bayer vildu fá leikmann upp í.
Mér þykir þó ólíklegt að BL láti Wirtz á minna en 140m evra.
Mitt sérfræðimat er að BL láti Witrz ekki fyrir minna en 141,5 m evra.
Eða var það kannski Wirtz?
Allir sammála að það styttist í að þetta klárist með Wirtz.
Ornstein, Romano og fleiri allir að segja það sama og þetta er að sjálfsögðu sturluð upphæð fyrir einn leikmann en ef þetta er næsti KDB í deildini þá mun það verða þess virði.
Liverpool eru ekkert að grínast með að ná í þennan gaur virðist vera og þetta eru ekki mínir peningar ég er allavega spenntur fyrir Wirtz þó mér finnist verðmiðinn alltof hár.