Frimpong kominn (Staðfest)

Okkur finnst kannski eins og fyrstu staðfestu kaup sumarsins séu gamlar fréttir, en Jeremie Frimpong var staðfestur nú síðdegis og kemur til félagsins í sumar. Fyrstu kaup okkar manna í sumar, og e.t.v. fyrstu (en ekki síðustu) kaup félagsins frá Bayer Leverkusen…? Það kemur í ljós, en heyrst hefur að nýtt tilboð upp á 130m evra hafi verið lagt fram í dag í Florian Wirtz. Nóg um það síðar, en þetta er dagurinn hans Frimpong.

Af öðrum fréttum þá er eitthvað verið að tala um að Pep Lijnders sé að fara að vinna með nafna sínum Pep Guardiola, það yrðu nú með furðulegri vistaskiptum sumarsins.

19 Comments

Skildu eftir athugasemd
  1. Trent út Frimpong inn. Spennandi kaup, en hann þarf að vera helvíti góður til að hægt sé að segja liðið sé sterkara eftir daginn í dag.

    5
  2. Bara geggjað að fá þennan inn. Allt önnur týpa en TAA.
    Sumarið mun marka nýja tíma hjá félaginu.

    4
  3. Sumarið fyllir mann vonum og væntingum og byrjar vissulega vel en maður er örlítið brenndur eða skaðbrenndur reyndar ef útí það er farið eftir síðustu tvo leikmannanna glugga og jafnvel fleiri þar sem maður hefur verið yfirsig spenntur á vorin þegar hinn og þessi hafi verið orðaðir við okkur en svo kemur kannski engin nema einn Ítali eins og siðasta sumar.
    Frimpong er vissulega spennandi kostur til að leysa Trent af og ef að bæði Florian Wirtz og Milos Kerkez koma þá fyllist ég bjartsýnn fyrir komandi ár svo framarlega að enginn af bestu leikmönnum okkar yfirgefi Liverpool.
    Kelleher, Nunez, Ítalinn og jafnvel Elliott ásamt eitthvað af ungu strákunum fara og svo veit maður ekki með Jota.
    Ef við náum þessum tveimur sem mest eru orðaðir við okkur í viðbót við Frimpong og einum sprækum sóknarmanni í viðbót þá verður þetta besti gluggi sem ég mann eftir á minni rúmlega fimmtíu ára þrautagöngu sem Liverpool maður þar sem maður hefur sokkið í þunglyndi og tapað geðheilsunni og rifist og skammast við sjónvarpið eða þá svifið um háloftin í gleði vímu.
    YNWA.

    8
  4. Spaið, við fengum svo bara meira fyrir Trent en manutd fengu fyrir þessa vandræðalegu Asíu ferð

    13
  5. (fyrirvari) Ég les ekkert allt í botn í nálgun Liverpool á leikmannamarkaðinum.

    Lesturinn undanfarið bendir samt til að meiri peningar séu upp á borðum þetta vorið til leikmannakaupa. Sem er ef satt er, virkilega gott!!

    Söknuðurinn í því samt er, að Klopp sem uppfærði Liverpool sem heild allt sitt stjóra-tímabil, komst aldrei í þá stöðu að fá að kaupa ríflega inn á nokkrum tímapunkti, þó ekki væri nema einu sinni. (Jú, jú hann fékk að kaupa VVD og Allison en það var eftir stórsölu á þið vitið hverjum.)

    En mögulega er skýringin sú að eigendurnir eru búnir að vinna (næstum) alla bakgrunnsvinnuna, kaupa liðið, ráða inn góða stjóra, vinna í því að byggja upp liðið, fjárfesta í stækkun Anfield og fjárfesta í öðrum grunn innviðum.

    Vonandi er þetta vísbending um að nú verði “allur” ávinningur sem þeir vilja fjárfesta til baka í formi leikmannakaupa. (Án þess að fara út í að kaupa lata dýra hálfvita.)

    5
  6. Mér finnst líklegt að eigendur Liverpool séu loks að átta sig á því að eyðsla umfram tekjur séu góðar og að engar refsingar fylgi, þó reglum sé ekki fylgt.
    Megi það verða stór óútfylltur gúmmítékki sem veitir okkur stóra og mikla titla næstu 4-5 ár, bið ekki um meira.

    4
    • Það er rétt að taka það fram að þetta var sagt eftir nokkrar gullstundir og ekki mikil alvara þar á bakvið.

      11
  7. “Mér finnst líklegt að eigendur Liverpool séu loks að átta sig á því að eyðsla umfram tekjur séu góðar og að engar refsingar fylgi, þó reglum sé ekki fylgt.”

    Þessu er ég innilega ósammála. Ástæða þess að FSG voru hægir um sig í glugganum síðasta sumar var einfaldlega vegna þess að Slot var sáttur við hópinn sem hann hafði og í þessum glugga eru þeir einmitt að njóta góðs ad því að þeir hafa verið að fylgja reglunum en ekki hin liðin.

    Ástæða þess að þeir eru að kaupa Florian Wirts er út af tveimur ástæðum.

    A- Hann vill koma yfir til okkar.
    B- Hann er peningana virði.

    Samá á við um Frimpong.

    Liverpool sýndi svo sannarlega vilja til stórkaupa þegar þeir reyndu t.d að kaupa Caisesdo en hann elti frekar peningana og fór yfir Chelsia sem kostaði hann dýrðmætan tíma án titla og fyrir utan meistaradeild.

    Þessi fullyrðing er sérstaklega út í hött vegna þess að FSG er að nýta sér “klásúlu” í samningi til að kaupa Frimpong, einfaldlega vegna þess að þeir álita hann miklu meira virði. Sama gerðu þeir með Macalester, Szoboszly og ekki ert hægt að segja að Ryhan Gravenberth hafi verið dýr vir og það er löngu sýnt að Virgil Van Dijk var hverrar krónu virði. Með kaupum á Firmpong eru þeir einmitt að sýna fram á sína klókindi og skynsemi. Lykilmaður í liði sem varð nýlega þýskalandsmeistari er yfirleitt meira virði en 30 m punda.

    En jæja. Eigið góðan dag öll sömul.

    12
    • Ósammála því að það sé í lagi að eyða umfram tekur sé í lagi vegna þess að Arne hafi verið sáttur við hópinn og að LFC geri skynsöm kaup og að Liverpool fylgi reglum en ekki hin liðin?

      Það er einfaldlega refsivert að eyða umfram tekjur, sama hvort menn séu sammála eða ekki.

      Þetta hafa Everton og Forest fengið að reyna og City eru í skoðun.

      Lið eins og Newcastle, Villa og Man Utd hafa þurft að selja leikmenn til að halda sig réttu megin við regluverkið.

      Klúbbar eins og Liverpool, Arsenal og Tottenham þurfa lítið að pæla í FFP. Skv. nýlegum fréttum hefur Spurs 500 milljón punda svigrúm til eyðslu innan FFP.

      6
  8. Sælir félagar

    Bæði BM og RM eru að djöflast í Wirts en enginn virðist vera að reyna við Kerkes sem betur fer. Þetta segir manni að ekkert er fast í hedi fyrr en leikmaður (Wirts) er búinn að skrifa undir. Það er því best að vera rólegur uns allt er klárt. Ég er sammála Brynjari hér fyrir ofan um kaupstefnu FSG og árangur hennar þó ég hafi sjaldnast verið ánægður með hana. Staða LFC er fyrir vikið þannig að þeir geta eytt eins og vindurinn án þess að hafa áhyggjur af refsingum fyrir það. Ef Wirts kemur ekki er það ekki vegna þess að FSG hafi ekki viljað leggja þá peninga sem þurfti í hann heldur eru þá aðrir þættir að eyðileggja þá aðgerð.

    Það er nú þannig

    YNWA

    9
    • “Bæði BM og RM eru að djöflast í Wirts”

      Ertu með góðar heimildir fyrir því? Skv. Joyce, Romano Plettenberg og Ornstein eru amk 2 vikur síðan Wirtz neitaði Bayern. Enginn þeirra hefur minnst á að tilboð frá Real sé yfirvofandi.

      8
      • Ekkert sérstakt Indriði bara það sem sést á netinu. BM á erfitt með að sætta sig við að fá hann ekki og RM telur(taldi) að Alonso gæti fengirð Wirts til að skipta um skoðun. þetta er hluti af þessum heimi og svo sem ekkert meira um það að segja

        Það er nú þannig

        YNWA

        1
  9. Menn að spá í eyðslu Liverpool.

    Ef síðustu 10 ár eru skoðuð eða frá Klopp tók við 15/16 og þetta tímabil
    Þetta er net spending yfir þennan tíma.
    Liverpool með um 420m
    M.United er með um 1.2 miljarð punda
    City með um 1 miljarð
    Chelsea með um 1 miljarð
    Arsenal um 850m

    Liverpool er lang best keyrði klúbbur í heiminum þessa stundina og hefur verið það síðan FSG tók við algjörlega ótrúlegar tölur og árangur.

    Hægt að skoða þetta hér ef menn hafa áhuga

    https://www.transfermarkt.co.uk/premier-league/einnahmenausgaben/wettbewerb/GB1/plus/0?ids=a&sa=&saison_id=2015&saison_id_bis=2024&nat=&pos=&altersklasse=&w_s=&leihe=&intern=0

    12
    • Klopp er kraftaverkamaður við að ná því besta úr ungum og efnilegum leikmönnum og það að hafa unnið alla þessa bikara með mun minna fjármagni en önnur stórlið er eitthvað sem erfitt er að jafna.

      3
  10. Himinn og haf milli ungmennaliðs PSG og eldri flokks Inter. Parísardrengir hafa tögl og hagldir, svo mjög að þeir leika sér að því að standa tveir og gefa á milli aftur og aftur. Miklu meiri snerpa í þeim. En reynslan sýnir að maður skyldi aldrei afskrifa Inter. (PSG vinnur þetta samt)

    2
    • Nb. þetta var skrifað í fyrri hálfleik.

      Þá voru drengir bara búnir að skora tvö mörk af fimm. Þvílíkt burst.

  11. Velkominn Frimpong! Held að Mac og Szobo fái að taka auka- og hornspyrnur núna í meira mæli og mörkun mun fjölga. Var mjög ánægður þegar Kerkez var orðaður við liðið fyrir áramót því maður sá gæðin þrátt fyrir ungan aldur en hann bætti í og var besti left back tímabilsins, ásamt Cucurella, og mun bæta starting 11, án efa. Hvetur svo Robbo til að gefa í og klára ferillinn með reisn.

    Wirtz er bara svo galið miðað við söguna. Þessi baller er rosalegur og þetta væri rosalegt statement. Verð að sjá (staðfest) áður en ég skála.

    Klúbburinn er kannski að læra af reynslunni þegar það átti að treysta leikmannahópnum að halda áfram eftir 19/20 án mikillar styrkingar. Hamra járnið vonandi núna og bæta í gæðin og vinna fleiri titla!

    1

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Gullkastið – Leikmannaglugginn að opna