Caoimhin Kelleher hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Liverpool – allavega í bili, því hann er farinn til Brentford. Ekkert sem kemur á óvart, í raun var helsta undrunarefnið að hann skyldi ekki fara síðasta sumar.
Það er eitt og annað sem kemur í ljós þegar tölfræðin hans er skoðuð. Hann er t.d. með besta sigurhlutfallið af þeim markvörðum Liverpool sem hafa spilað 50 leiki eða fleiri:
Kelleher – 65.7%
Alisson – 65.4%
Doig – 64.2%
Grobbelaar – 57.6%
Westerveld – 56.3%
Slater – 55.5%
Clemence – 54.7%
Reina – 53.3%
Þar spilar auðvitað inn í hversu gott liðið er sem er fyrir framan markvörðinn.
En svo er hann líka sá markvörður sem hefur unnið flestar vítakeppnir í sögu félagsins – eins og kom fram í PubQuiz þættinum fyrir áramót. Það hefur líka enginn annar markvörður tekið þátt í fleiri vítakeppnum en hann.
Takk fyrir samstarfið Kvív, hver veit nema þú snúir aftur einn daginn!
Óska honum alls hins besta og þakka fyrir veitta þjónustu.
YNWA
Það er furðulegt að kaupa Mamardashvili þarna inn í þessa stöðu. Er hann betri markvörður?
Er það á dagskrá að selja Allison sem er líklega besti markvörður Liverpool síðan… tjah, löngu síðan.
Auðvitað þarf að hafa góðan varamarkvörð, en kannski Kelleher hafi verið orðinn leiður á bekknum. En sá nýji kostaði 29 m. punda.
Ein spurning, keypti Slot Mamardashvili?
Að því sögðu (kannski ég ætti að gera þetta að ÞAÐ ER NÚ ÞANNIG klassísku kommenti), gangi þér sem best Caiomhin.
Keli átti eitt ár eftir af samning og vill verða key keeper. Að selja hann fyrir þessa upphæð er flott og gangi honum sem allra best. Verður klárlega minn keeper í fantasy á næsta ári.
Vonandi fara þeir Wirtz og Kerkez að detta inn. Vill alls ekki missa Diaz og Gakpo. Lykilmenn í dag og þurfum að bæta við gæðum í hópinn til að vinna þrennuna. Það viljum við öll. Vera með hóp sem fer langt í öllum keppnum. Það eru aðrir verðmætir leikmenn í hópnum til að selja, t.d. Tsmikas, Elliott, Quansah, Nunez og svo nokkrir ungir.
Af þeim ungu vill ég ekki selja Doak. Hann er of mikið efni til að selja frá klúbbnum. Nema með buy-back klásúlu. Vona að hann fái séns í pre season. Mögulega fær Bajetic séns til að sanna að ekki þurfi að kaupa defmid. Finnst ólíklegt að farið verði í stórkaup á miðjumanni þegar fyrstu þrír eru negldir, svo með Jones og Endo á bekknum. Til að rótera og halda Grav ferskum væri samt Baleba algjör draumur.
Átti nú reyndar að vera comment, ekki reply en allt í læ.
Er Mamardashvili betri en hver?
Hvað er svona furðulegt við að kaupa varamarkmann?
Já varamarkmann því það er ekki á dagskrá að selja Alisson
Þú veist það jafn vel og aðrir að Kelleher hefði aldrei framlengt við Liverpool nema vera nr. 1. Þess vegna var hann seldur og Mamardas keyptur.
29m. Fínt verð og ég sé ekki hvaða máli það skiptir hvort Slot, Hughes eða Edwards tók ákvörðun varðandi kaupin.
Ég held að flest allir séu sáttir þó þér finnist þetta furðulegt.
Það þurfti að kaupa Mamardasvili því það var vitað mál að Kelleher vildi fara til að verða no1 sem hann á fyllilega skilið enda á topp5 yfir bestu markverði deildarinnar að mínu mati.
Allison spilar örugglega sitt seinasta tímabil með okkur svo áður en hann kveður líka.
En það verður gaman að fylgjast með Kelleher á næsta tímabili.
Ali á 2 ár eftir af samning
Það verður öðruvísi pressa á honum sem aðalmarkmaður og verður fróðlegt að sjá hvernig honum vegnar þarna í Brentham.
Þetta var frábær markvörður. Mjög vanmetin. Mun betri en margir forverar hans, Pepe Reina og Mignolet eða Karius og hann skilaði mjög mikilvægu hlutverki að viðhalda gæðum á milli stangana á meðan Alison var meiddur. Það gerði hann svo sannarlega.
Giorgi Mamardashvili þarf svo sannarlega að standa sig ef hann ætlar sér ekki að vera eftirbáturinn hans Keheller.
Hann er einn af þessum mönnum sem erfitt er að bera kala til. Hann er einn af þeim sem getur sagt í fortíðinni að hann varð Englandsmeistari með Liverpool og spilaði meira að segja þónokkuð stórt hlutverk.
Takk fyrir allt og sorry með það hvað þú hefur verið á lágum launun elsku vinur!!!
Vonandi náðirðu að semja vel því þú átt það skilið
Sælir félagar
Kelleher á allt gott skilið. Fer í góðu og fyrir hann fæst fínasta verð þó ég telji hann meira virði en árangurtengdra 18 mills. Bestur kveðjur til hans og vonandi gengur honum vel í nýrri stöðu sem aðalmarkvörður.
Það er nú þannig
YNWA
Er rífandi spenntur fyrir Wirtz. Sé fórnarkostnaðurinn sá að MacAllister fari í fýlu og yfirgefi félagið vegna treyjunúmers verður bara að hafa það.
YNWA
Wirtz er ekki að fara að heimta treyjunr. meistara og heimsmeistara, þetta er fake news.
Annars anægður fyrir hond Kellaher.
YNWA
Nkl, nobody puts Macca in the corner.
Við skulum vona ekki. Það komu samt fleiri fréttir um þetta í dag.
Wirtz að skora flott mark gegn Portúgal
Og tók hraustlega á Bruno, Bernardo Silva o.fl. Hann mun pluma sig í úrvalsdeildinni.
Já ég held það
Sá landsleikinn í gær Þýskaland – Portúgal og fannst Wirth ekki 150 miljóna evra virði þó hann hafi skorað.
Nei hann var alveg hörmulegur bara valinn leikmaður leiksins og allt.
Vá hvað ég er ósammála, hann tætti upp ítrekað miðju og vörn með flottum sendingum og einstaklings sólóeríi.
Ég varð ekki minna spenntur við að horfa á leikinn í gær.
Úff, Scum gleraugun eitthvað kámug hjá þeim sem ritstýrir þessari síðu:
https://www.dv.is/433/2025/6/5/skitleg-hegdun-florian-wirtz-gaer-fekk-athygli-og-sumir-voru-sattir/
Erum við að veðja á rangan hest??? Hef séð 2-3 leiki með Ryan Cherki, m.a. á Old Trafford þar sem hann átti mjög góðan leik. Frábær innkoma í kvöld gegn Spáni. Wirtz ungur á 115m ish eða Cherki á 30m ish???? Finnst vont að sjá á eftir Cherki til City. Lítur ansi vel út.
Sælir félagar
Mér finnst brottfarar tilkynning Kelleher búin að vera nógu lengi á toppnum. Gaman væri að fá kop umræðu um leikmannamarkaðinn.
Það er nú þannig
YNWA
Sammála, gaman að halda þessu lifandi. Alltaf gaman að lesa smá slúður. Diaz til Barcelona?
Er ekkert að frétta? Ég þarf að fara að skipa út F5 takkanum en sé samt engar nýjar fréttir. Hvað á maður að gera af sér þegar tímabilið er búið og Liverpool bara búnir að kaupa einn og selja einn? Arg. er að farast úr frétta og gullkastsskorti.
Hér er smá hugmynd til síðuhaldara
Maður hefur komið inná þessa síðu daglega síðan hun var undir merkjum eoe.bloggspot eða hvað það nú var haha
Hér í þessu samfélagi eru ótal meistarar og mer finnst oft alveg jafn áhygavert að sjá commentin og umræðina
Það líður stundum langt á milli færslna hér og allskonar orðromur og pælingar á leikmannamarkaði. Mjæg skemmtilegir tímar.
Hvað með að setja inn færslur annað slagið sem væri td “orðið er laust” eða “pælingar samfélagsins” og þá getum við haldið uppi stuðinu inná milli. Þá er enn meira líf hér og við sem elskum þessa síðu getum lagt okkar af mörkum líka
Góð hugmynd. „Orðið er laust 6. júní”
Spurs voru að reka Ange. Þá færir Thomas Frank sig væntanlega frá Brentford.
Er þessi reliable ?
https://x.com/AnfieldSector/status/1931018187631403240
Þetta er að gerast með Wirtz !
Fabrizio Romano
@FabrizioRomano
·
7m
? Liverpool are advancing to complete Wirtz deal in next days, here we go soon ??
Negotiations at final stages with details being sorted then Wirtz will travel for medical, plan confirmed.
LETS GO !!!!
Ef orðið er laust.
Þá væri ég til í að Kopverjar fari að fara yfir þessa árskýrslu Liverpool.
Og einnig inná listann sem var að koma.
Þar sem Liverpool stendur mun verr en t.d. lið eins og Chelsea gagnvart FFP reglunun.
Og hvernig það geti verið.
Ég sjálfur hef verið að leggjast yfir þetta í dag. Þrátt fyrir að félagið er rekið sem fyrirmyndarfélag og ekki í neinni bókhakdsleikfimi þá eru enginn verlaun fyrir það innan þessara reglna. Heldur þvert á móti þá eru allskonar skrítnir hlutir leyfðir t.d. að eiga önnur félög og nota viðskipti á milli og allt upp í að selja eignir td kvennalið sin. Allt hækkar þetta fjármagnið sem þessi lið hafa.
En athyglisvert er að félagið hefur ekki átt stóra sölu í að vera 3 ár. Menn hafa verið að fara frítt frá félaginu. Og spurning hvort félagið muni horfa á að breyta því uppá að laga stöðuna gagnvart reglunum, sérstaklega í ljósi þess að við erum að fara í stórar fjárfestingar í sumar.
Ben Doak og Jarell Quansah + einhverjir krónur til Neverton = Jarrad Branthwaite til Liverpool.
Takk Kelleher, velkominn aftur síðar ef mögulegt verður