Þá er númer 20 kominn í hús, mörg partý að baki og brosið frosið á okkur LFC – fólki.
Við sem að skrifum inn á þessa síðu ætlum að kveðja tímabilið með uppgjörspóstum okkar allra. Færslan er löng og því setjum við svona “meira” hérna til að smella á ef þið viljið lesa hvað okkur fannst um tímabilið.
Við veljum okkar leikmann ársins, hver var besti leikurinn og hvaða einkunn á bilinu 1 – 10 tímabilið fær. Okkur þætti mjög skemmtilegt að fá athugasemdir frá ykkur í kommentakerfið við þessa færslu í formi ykkar svara á þessum þremur spurningum.
Uppgjör Kop.is – pennanna, gjörið svo vel!
Maggi Spáði LFC 3.sæti og Arsenal titlinum
Mér fannst ég satt að segja bjartsýnn að setja okkar menn í þriðja sæti eftir rólegan sumarglugga og allar breytingar í þjálfarhópnum. Upphaf tímabilsins var því sannarlega umfram væntingar og eftir rústið á Old Trafford þá var meiri sannfæring í því að tímabilið gæti orðið gott. Spilamennskan fram að áramótum varð stanslaust betri og eftir 0-5 rústið gegn West Ham var ég farinn að gæla við það að við yrðum alla leið til vors í meistarabaráttu.
Þreytulegri spilamennska í janúar gaf manni smá stresssting og tapið fyrir Plymouth sýndi svolítið fram á það að við gætum orðið viðkvæmir fyrir meiðslum og öðru í hópnum en seiglusigrar eins og í Bournemouth eða heima gegn Úlfunum sýndi manni það að liðið gat kreist tár úr steini og náð úrslitum þrátt fyrir lakari spilamennsku. Sem er kostur.
Svekkelsið að detta út fyrir PSG var mikið. Ég stend enn við það að þar fór fram úrslitaleikur keppninnar, viðureign tveggja frábæra liða sem var útkljáð með vítakeppni. Það að tapa svo úrslitaleik með þeim hætti sem varð gegn Newcastle stráði salti í það sár og því varð vorið svolítið skrýtið. Kláruðum deildina snemma og þá skiljanlega minni fókus, en staðreyndin einfaldlega sú að við vorum langbestir í Englandi og ferlega óheppnir með niðurröðunina í Meistaradeildinni.
Leikmaður ársins
1. Mo Salah
2. Alexis MacAllister
3. Alisson Becker
Leikur ársins
Man.City – Liverpool = 0-2
Heildareinkunn tímabilsins
8,0. Stórkostlegt ár í deildinni og frábær deildarkeppni í CL. Fúlt að detta út í 32ja liða úrslitum CL og fyrir skítlélegu Plymouthliði. Smá dash af pirringi með spilamennskuna á almanaksárinu 2025
Ívar Spáði LFC 3.sæti og City titlinum
Ég get ekki sagt að mínar væntingar fyrir tímabilið hafi verið eitthvað rosalegar. Ég var að vonast eftir 3.-4.sæti, ég átti von á Arsenal sterkari og sá alls ekki fyrir að Man City myndi hrynja eins og þeir gerðu, þannig að efstu tvö sætin voru í mínum huga nokkuð frágengin fyrir tímabilið. En ástæðan fyrir því að við elskum öll fótbolta er akkúrat þessi, við sjáum yfirleitt ekki fyrir hvernig hlutirnir þróast, eða a.m.k. þannig að stundum verður þróunin önnur en gert var ráð fyrir. Enda kom það í ljós með vorinu að fáir ef einhverjir gátu séð fyrir sér að Liverpool, með nýjan þjálfara og sama hóp myndi eiga þetta geggjaða tímabil.
Í fyrsta leik voru heldur ekki nein brjáluð teikn á lofti. Jú, seinni hálfleikurinn var betri – og það var kannski það sem koma skyldi á tímabilinu, smá tilfæringar og áherslubreytingar hjá afar snjöllu þjálfarateymi gerðu oftar en ekki gæfumuninn. Þrír sigrar í fyrstu þremur leikjunum, þar af 0-3 á Old Toilet gaf nú alveg smá von um að eitthvað gæti verið að gerast en þá komu helvítin í Nottingham Forest á Anfield og tóku öll þrjú stigin. En samt, 9 stig í 4 leikjum var ekki alslæmt.
En það sem gerðist eftir Nottingham Forest leikinn var eiginlega það sem skipti hvað mestu máli fyrir tímabilið í heild. Í öllum keppnum vann liðið 8 leiki í röð, þar af útileiki gegn Crystal Palace og Úlfunum, alls ekki eitthvað ofan á brauð. Ég held að trú á að titillinn myndi vinnast hafi komið bæði með þessu gengi, áframhaldinu – sem voru enn fleiri sigrar, m.a. gegn Man City en ekki síður sú staðreynd að þeir töpuðu fjórum leikjum í röð eftir meiðsli Rodri.
Arsenal voru svo víst eitthvað að vesenast nálægt toppnum en mér fannst einhvern veginn um áramótin að það væru allar líkur á því að Liverpool myndu vinna deildina því Arsenal voru í mínum huga alls ekki líklegir, unnu leiki mjög tæpt, oftast með marki eða mörkum úr föstum leikatriðum – sem ég var viss um að myndi á einhverjum tímapunkti þorna upp – og svo síðast en ekki síst, þeir voru bara með í kringum 2 stig á leik að meðaltali, sem dugar bara alls ekki til sigurs í deildinni. Það kom svo í ljós í lokin að þeir enda með 1,95 stig í leik.
Þannig að eftir áramót fannst mér liðið bara vera í cruise control, sigldu leikjunum heim nánast í 2.gír, Salah meira að segja þornaði upp en þá tóku bara aðrir við.
Leikmaður ársins
1. Mo Salah
Það var bara unun að fylgjast með honum fram að Ramadan. Maður beið bara eftir marki og stoðsendingu á tímabili pr. leik og maður hafði kannski litlar áhyggjur af liðinu á meðan hann var inni á vellinum. Megi það halda áfram næstu tvö árin.
2. Virgil Van Dijk
Ég get nánast sagt það sama um Van Dijk og Salah þótt mér finnist hann örlítið vera farinn að láta á sjá. Mistök eru farin að sjást hjá honum þótt þau séu ekkert mörg. Hann á samt alveg nóg eftir og ég fagna mjög tveggja ára samningnum hans.
3. Alisson Becker
Það var oft ekkert mikið að gera hjá honum og eins og ég nefndi að ofan, oft eins og liðið sigldi sigrunum heim í 2.gír. Það breytir þó ekki því að hann á tugi markvarslna sem hjálpuðu liðinu til sigurs í vetur, oftar en ekki á mikilvægum augnablikum. Ég hef grun um að “enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur” muni eiga við um Alisson því við erum farin að líta á mistakalausan markmann sem sjálfsagðan hlut en staðreyndin er sú að það eru örfáir markmenn í heiminum sem gera svona fá mistök og enn færri sem eiga líka vörslur eins og hann að auki.
Leikur tímabilsins
6-3 gegn Tottenham. Á toppnum, geggjuð hefnd fyrir VAR-fíaskóið um árið og ekki síst fyrir Luis Diaz sem skoraði tvö. Ótrúleg frammistaða og kannski einn af þessum leikjum þar sem liðið var bara með dynjandi sóknarleik nánast allan tímann.
Heildareinkunn tímabilsins
9,0 – sigur í ensku deildinni, vonbrigði í bikarkeppnunum. En deildin er það sem skiptir mestu máli.
Einar Spáði LFC 3.sæti og Arsenal titlinum
Fór að hafa trú á því að Liverpool gæti í alvöru klárað þetta þegar Brighton vann Man City í nóvember, rétt fyrir kvöldleik á laugardegi gegn Aston Villa. Hjálpaði reyndar að vera á Taggy´s fyrir utan Anfield djúpt í góða heiminum. Tap Arsenal heima gegn West Ham í febrúar gaf svo fyrir alvöru trú á að þetta væri að gerast.
Leikmaður ársins
1. Salah – Markahæstur og með flestar stoðsendingar.
2. Van Dijk – Rétt á eftir Salah og líklega er hann ekki minna mikilvægur.
3. Gravenberch rétt á undan MacAllister. Það var rosaleg pressa á honum að leysa sexuna sem hann gerði þannig að hann var valinn besti ungi leikmaður tímabilsins og tilnefndur sem besti leikmaður tímabilsins.
Besti leikur
Ótrúlega flugeldasýningalaust tímabil, Liverpool mallaði bara á díselvélinni í gegnum mótið og vann þetta sannfærandi á stöðugleika. Oft verið fleiri afgerandi leikir í deild úr að velja en sama hvað United er lélegt er alltaf hressandi að vinna 0-3 á Old Trafford og það gaf gott boozt í byrjun september eftir að hafa farið í mikilli óvissu inn í tímabilið með hvaða Liverpool lið við fengjum.
2-0 sigur á City fær líka mention auk þess sem Tottenham var tvisvar pakkað saman.
Besti leikur tímabilsins í öllum keppnum var samt klárlega Bayer Leverkusen, kennslustund fyrir Xabi Alonso og ósigrandi þýsku meistarana.
Heildareinkunn tímabilsins
10.0 – Liverpool vann deildina eftir að hafa í besta falli verið spáð 3.sæti. Það eitt og sér gerir þetta tímabil allaf að tíu.
Man City og Arsenal unnu ekki neitt, extra sætt eftir allt trashtalk-ið frá stuðningsmönnum og þjálfara Arsenal. Man Utd er í 15.sæti, já ég sagði 15.sæti. Þeim var jafnvel spáð ofar en Liverpool. Everton er svo í 13.sæti sem blessunarlega er orðið meira norm en samt, vel fyrir neðan miðja deild!
Þetta er eins nálægt því að vera fullkomið tímabil í deild frá sjónarhóli Liverpool og hægt er.
Pirrandi að tapa úrslitaleik í deildarbikar auðvitað en sigur í deild vinnur léttilega upp tap í fjórðu mikilvægustu keppninni og bikar sem er ekki einu sinni til í flestum öðrum löndum.
FA Cup var bara fyrir í vetur en aðal svekkelsið er auðvitað að fara ekki lengra í Meistaradeildinni. Þetta lið er á fyrsta ári Slot, það er alveg tími til að vinna bara deild og Meistaradeild á næsta ári 🙂
Ingimar Spáði LFC 3.sæti og Arsenal titlinum
Ég var nokkuð öruggur um að Liverpool myndi enda í þriðja til fjórða sæti, byggt á að hópurinn var að miklu leyti sá sami og í fyrra en trúði að liðið myndi ekki lenda í sama meiðslahruni undir lok tímabilsins og árið á undan. Ég taldi að það tæki Slot smá tíma að aðlagast deildinni, það yrðu þó nokkrir leikir eins Forest leikurinn í byrjun tímabils, en að gæðin væru næg til að fleyta liðinu öruggt í sirka 75 stig þegar á leið. Að sama skapi hélt ég að Arsenal væru loksins komnir með reynsluna í hópinn til að klára tímabilið, en að City hlytu bara að fara að brotna eftir hálfan áratug af stanslausum bikarlyftum.
Trúin um að eitthvað sérstakt væri í vændum vaknaði í Real-City vikunni fyrir jól. Að taka þessi tvö h****** lið og sundurspila bæði var ansi stór vísbending um að eitthvað magnað væri að gerast. Ég þorði ekki að vera sigurviss fyrr en um miðjan febrúar. Liðið átti hrúgu af erfiðum leikjum í deild á stuttum tíma, en þrátt fyrir að hafa misstígið sig í sumum þeirra tapaði það ekki niður forystunni á toppnum.
Leikmaður ársins
Það er hrikalega freistandi að vera sniðugur að velja Gravenberch, jafnvel MacAllister en það er bara eitt rétt svar: Mo Salah. Þeim mun ruglaðra því að hann skoraði megnið af mörkums sínum og átt flest allar stoðsendingarnar fyrir Ramadan.
Leikur tímabilsins
Liverpool 2 – 0 Manchester City. Algjörir yfirburðir gegn ríkjandi meisturunum, Pep að reita hárið og trúin vaknaði.
Heildareinkunn tímabilsins
9.9 af 10.
Hvernig liðið datt útúr bikarnum og Meistaradeild, ásamt því að tapa í úrslitum deildarbikarnum svíður allt, en sá sviði hverfur í bjarma númer 20. Dregur líka tímabilið upp að sjá hvernig fór hjá öllum helstu keppinatum Liverpool með tölu.
Daníel Spáði LFC 2.sæti og Arsenal titlinum
Ég var sá sem spáði því að City yrði dæmt niður um deild og setti spána í algjört uppnám hjá Magga. Ég trúi því enn að þetta geti gerst! Það bara gerðist ekki á þessu tímabili. En svo var ég eins og svo margir aðrir sem hugsaði með mér að Slot þyrfti alltaf svolítinn tíma til að venjast deildinni, leikmannahópnum og ákefðinni í deildinni.
Slot þurfti vissulega tíma til að venjast öllu þessu nýja, og ég er viss um að hann mun taka öðruvísi á ýmsu á næsta tímabili, t.d. varðandi róteringu, og það hvernig hann fer inn í tiltekna leiki. Semsagt, þetta var vissulega lærdómstímabil, en hann vann bara samt deildina.
Hvað þýðir þetta fyrir næsta tímabil? Ég ætla kannski ekki að fara að setja fram spá fyrir næsta tímabil alveg strax, leyfum sumarglugganum að klárast áður en við förum í það. En ég yrði samt mjög hissa ef deildin vinnst jafn “létt” eins og hún gerðist núna, og held að þetta verði meiri barningur fram á síðustu umferð.
Þetta tímabil kenndi okkur eitthvað um það hvernig stjóri Arne Slot er. Hann er “ruthless” þegar þess þarf, hreinskilinn og beinskeyttur, ég held að hugtakið meðvirkni sé varla til í hans orðabók. Ef þú ert ekki nógu góður þá ertu ekki í hóp. Ef þú spilar illa þá ertu tekinn útaf. En hann er heldur ekki ósanngjarn. Í raun er hann bæði mjög líkur Klopp að því leyti að hann er frábær stjóri, en á sama tíma mjög ólíkur honum varðandi leiðirnar sem hann fer.
Á hvaða tímapunkti fékk ég á tilfinninguna að Liverpool myndi vinna?
Þegar við í kop.is hittumst og horfðum á Brighton leikinn saman, þá endaði kvöldið á því að Ingimar spurði okkur hver myndi vinna deildina (eða mig minnir að það hafi verið hann). Ég svaraði Liverpool. Var 100% sannfæring í því svari? Nei, en hún var alveg nítíu og eitthvað prósent. Það var bara eitthvað við sigurviljann í liðinu sem var farið að heilla mig. Þetta var n.b. mánuði áður en liðið vann City og Real í sömu vikunni.
Leikmaður ársins
Mo Salah er augljóslega nr. 1, ég ætla að setja MacAllister í 2. sætið og Gravenberch í það þriðja. Kannski svolítið gróft að ganga framhjá Virgil og Alisson, engar áhyggjur því þeir eru ekki langt undan. Er annars of mikið að biðja um að Alisson fari að haldast heill yfir heilt tímabil eða tvö?
Leikur tímabilsins
Hér ætla ég aðeins að misnota aðstöðu mina og velja 3-1 sigur kvennaliðsins á United á Anfield. Fyrstu 40 voru vissulega alls ekkert merkilegar, en svo komu 5 mínútur með tveim frábærum mörkum, og seinni hálfleikurinn fór bara í að njóta þess að sjá United engjast á Anfield. Hjá strákunum? Við skulum segja 0-5 sigurinn gegn West Ham á útivelli í lok árs þegar Salah dansaði fram hjá varnarmönnum með einhverjum ballettsporum og klobbaði tvo áður en Gakpo skoraði.
Heildareinkunn tímabilsins
Deildin? 10.0
Tímabilið í heild sinni? 9.0, sigurinn í deildinni vegur það þungt.
SSteinn Spáði LFC 2.sæti og Man.City titlinum
Ég var alveg sannfærður að Liverpool yrði þarna uppi, en hafði ekki hugmyndaflug í að við yrðum meistarar. Af hverju? Maður er bara orðinn skaddaður af þessu City liði, einhvern veginn virtust þeir alltaf finna leið til að klára þessa deild og hafði ég bara trú á því. En af hverju spáði ég Liverpool öðru sætinu þegar Klopp var nýfarinn og Slot tekinn við, nokkuð óskrifað blað. Jú, ég var sannfærður um gæði liðsins, sást svo vel á tímabilinu á undan þegar við vorum í alvöru meiðslakrísuH allt tímabilið en duttum samt ekki úr titilbaráttunni fyrr en alveg í restina. Var líka nokkuð vongóður um að það kæmi smá meiri yfirvegun í þessa gæða leikmenn, minna rock and roll og meira control, sem ætti að skila okkur áfram í baráttu.
Vonin byrjaði að vakna þegar ég var sjálfur staddur á Anfield og fylgdist með Brighton vinna Man.City og stuttu seinna tókum við góðan sigur á Aston Villa. Þá sá maður að það var allt hægt, þó svo að trúin hafi ekki verið beint geðveik þarna, þá kviknaði hún engu að síður.
Leikmaður ársins
1. Salah – Bara einfaldlega lang bestur í deildinni þetta tímabilið þótt hægst hafi verulega á honum í lokin.
2. Van Dijk – Okkar stærsti leiðtogi og besti varnarmaðurinn í veröldinni.
3. Gravenberch – Óvæntasta innkoma tímabilsins. Erfitt að horfa framhjá Macca og Ali, en engu að síður algjörlega frábær leiktíð hjá Grav.
Leikur tímabilsins
6-3 gegn Tottenham. Stórkostlegur fótboltaleikur. Hægt að minnast á marga aðra, til að mynda yfirspilun á Man.City og Real Madrid, en þessi leikur var bara eitthvað annað góður.
Heildareinkunn tímabilsins
10.0 – Deildin var alltaf í fyrsta til tíunda sæti, sér í lagi þar sem þetta var titill númer 20 og kom okkur aftur á stallinn fræga.
Það að Man.Utd hafi verið sögulega lélegir á alla mælikvarða, er svo ekkert að minnka þessa einkunn. Undursamlegt að fylgjast með þessu tímabili í deildinni. Er búinn að gleyma öllu öðru.
Hannes spáði Liverpool 2.sæti og Man City titlinum.
Sjálfur skildi ég ekki alveg svarsýni spekinga í okkar garð fyrir tímabil. Vissulega er það erfitt að missa jafnstóran karakter og Klopp er og Slot var algjörlega óskrifað blað en umræðan fyrir tímabil var skrýtinn og virtust margir gleyma hversu nálægt við vorum í fyrra.
Það er erfitt að segja með trúnna hún var sæmileg fyrir tímabil en eftir vikuna þar sem við yfirspiluðum City og Real varð ég nánast fullviss og í febrúar þegar við unnum City aftur og Arsenal tapaði gegn West Ham varð ég alveg 100% viss.
Leikmaður tímabilsins
- Mo Salah – Þvílíkt tímabil sem maðurinn átti og vá hvað maður er ánægður að fá að njóta hans aftur að ári. Kom að 47 mörkum í deildinni eftir að sumir byrjuðu að afskrifa hann eftir slakan enda á síðustu leiktíð, þvílíkur leikmaður.
- Van Dijk – Leiðtoginn stóð vaktina í vörninni og var nálægt sínu besta í ár.
- Mac Allister – Gera margir tilkall í þriðja sætið og kannski enginn sem var frábær frá upphafi til enda. Gravenberch var stórkostlegur lengst af á tímabilinu en dalaði undir lokinn og Macca fær að komast framúr honum að mínu mati.
Leikur tímabilsins
Koma nokkrir til greina hér en ég verð að velja 6-3 sigur á Tottenham, gríðarlega skemmtilegur knattspyrnuleikur.
Heildareinkunn tímabilsins
9,0 – ekki annað hægt en að gefa háa einkunn þar sem liðið endar afgerandi sem Englandsmeistari. Hinsvegar var vont að tapa gegn PSG í Meistaradeildinni, þó við höfum komist í vítaspyrnukeppni voru þeir hreinlega betra liðið yfir tvo leiki og mjög slakt ár í bikarkeppnunum. Vandræðanlegt tap gegn Plymouth í FA-bikarnum og ná í úrslitaleik í deildarbikar en mæta aldrei til leiks í úrslitaleiknum.
Óli spáði Liverpool 3.sætinu og Man City titlinum
Ég var alveg á því að Liverpool kom inn í leiktíðina sem vanmetið lið og fannst þeir alveg full auðveldlega afskrifaðir í titilbaráttu. Ég átti ekki von á því að myndu vinna deildina sér í lagi með stjórabreytinguna og litlar sem engar viðbætur í hópinn. Hins vegar átti ég alveg von á því að Liverpool yrði í titilbaráttunni og þá líklega enda hálfu skrefi á eftir hinum tveimur liðunum.
Mjög snemma á leiktíðinni fór ég að fá mikla trú á því að Liverpool myndi takast að klára þetta, það var bara mikill meistarabragur á þessu liði og hvernig það leysti sín mál – sérstaklega með alla þessa utan að komandi pressu á samningsmál lykilmanna.
Leikmaður ársins
1 – Augljóslega Mo Salah. Hann átti eina af eða jafnvel sína bestu leiktíð hjá Liverpool og þá er nú mikið sagt. Var nær óaðfinnanlegur í vetur og aðlagar sinn leik svo vel að breyttum áherslum og þörfum liðsins.
2 – Van Dijk. Átti sömuleiðis frábæra leiktíð og leiddi þetta lið í átt að titlinum. Nú er hann orðinn “ódauðlegur” sem fyrirliði Liverpool og einn þeirra sem fékk að taka á móti Englandsmeistaratitlinum. Djöfull á hann það svo sannarlega skilið!
3 – Mac Allister. Hann var frábær í öllum þáttum Liverpool í vetur. Leiddi pressuna vel af miðjunni, stýrði upplegginu oft mjög vel og sýndi mikið fordæmi í baráttu og að stíga upp þegar liðið þurfti á því að halda.
Leikur tímabilsins
Þeir tveir sem koma líklega fyrst upp í hugann á mér er 5-0 gegn West Ham og 6-3 gegn Tottenham. Mér fannst 0-2 sigurinn á Etihad nokkuð öflugur líka, liðið var ekki með boltann neitt að ráði en refsaði vel og stýrði leiknum vel án bolta – það var einn þessara leikja sem ég man að hafa horft á og hugsað “já, þetta lið klárar þetta 100%”.
Heildareinkunn tímabilsins
10 – Það er vissulega svigrúm til bætinga í bikar og Meistaradeild en leiktíð þar sem Liverpool er Englandsmeistari og geta leyft sér að djamma og fíflast síðustu fimm umferðirnar er 10/10 tímabil!
SAMANTEKT
Leikmaður ársins:
1. Mo Salah – 24 stig (Fullt hús)
2. Virgil van Dijk – 12 stig
3. Ryan Gravenberch
Alexis MacAllister – 5 stig
5. Alisson – 2 stig
Heildareinkunn tímabilsins
Meðaltal allra pennanna: 9,4
Leikur ársins
Við erum fjórir sem nefnum Tottenham – Liverpool = 3-6
Hér er þá lokapunktur tímabilsins 2024 – 2025 upp runninn. Í dag eru 59 dagar þar til næsta tímabil hefst þegar Liverpool og Crystal Palace mætast á Wembley þann 10.ágúst í leiknum um Góðgerðarskjöldinn. Þangað til er fullt af slúðri og skemmtilegheitum framundan!
Sælir félagar
Ég spáði M.City titlinum og LFC í 2 sæti.
Bestir Mo Salah, VvDijk og Macalister. Macca fer fram fyrir Grav þar sem hann hélt fullum dampi alla leiktíðina.
Útisigurinn á M.City var sætari en nokkur annar fannst mér
Sælir aftur félagar
Mér leikur forvitni á að vita hvar kop-pennar settu M.United. Ég man að mér fannst ótrúlegt hvað þeir kop-arar settu þetta slaka miðlungslið ofarlega. Sjálfur setti ég það í 5 eða 6. sæti og fannst það vel í lagt.
Það er nú þannig
YNWA
Ég minnist þess ekki að hafa spáð fyrir um lokastöðuna. Er þó engu að síður upp með mér fyrir að hafa grísað á fyrsta mark þessa frábæra tímabils, þ.e. mínútuna og markaskorarann. Spáði því nebbnilega í leikhléi gegn Ipswich að Jota myndi setj’ann á 60. mínútu. Markmikðið var jú að blása smá gleði í brjóst kop-kommentara sem voru röflandi yfir þessari slöku byrjun gegn nýliðunum. Þetta gekk eftir og fyrstu þrjú stigin komu þarna í hús.
Hef ekki lagt í svona spár eftir það!
Man ekki eftir að hafa spað þvi hvar LFC myndi enda, sennilega vonast eftir þvi að enda i 4 efstu. Það var svo margr oraðið, gott sem engin keyptur, nytt þjalfarateymi og stjori. Það ma segja að þess vegna er sigurinn i deildini ennþa stærri og sætari, og kom ekki fram i minum villtusu draumum.
YNWA
Sammála Magnúsi mestu.
Tímabilið fær 8 með sömu rökum.
Taldi okkur góða ef við næðun topp 4, niðurstaðan langt umfram væntingar
Liðið var slakt eftir áramót, stundum argaslakt, en kom ekki að sök, sem betur fer.