Wirtz vikan?

Sumarglugginn 2025 er opinn frá 1.júní til 10.júní og svo aftur frá 16.júní út ágúst.

Þjóðverjar eru að spila og jafnframt halda úrslitaleikina í Þjóðardeildinni. Undanúrslit (Þýskaland – Portúgal) eru á fimmtudaginn 5.júní og Úrslitaleikurinn er svo á laugardaginn 8.júní.

Þannig að ef Liverpool ætlar að klára Florian Wirtz í þessari viku þarf það líklega að gerast í dag eða á morgun og ennþá eru allar fréttir þess efnis að stutt sé á milli í samningsviðræðum og allir aðilar bjartsýnir á að ná saman. Wirtz hefur tekið ákvörðun um að hann ætlar til Liverpool.

Ekki að svo stór viðskipti geta léttilega dregist eitthvað áfram inn í sumarið en eftir morgundaginn getum við líklega hætt að refresh-a í bili.

Ungverjar eru sömuleiðis að spila 6.júní (föstudaginn) og 10.júní sem setur pressu á að klára kaupin á Kerkez núna næstu 1-2 daga eða bíða með það meira inn í sumarið.

Það er a.m.k. enginn James Perace búinn að koma ennþá og slökkva á þessum spennandi transfer sögum sem við höfum fengið núna í upphafi sumargluggans

4 Comments

Skildu eftir athugasemd
  1. Kerkez hefur mig langað að fá í allan vetur.

    Frimpong hef ég horft á annað slagið og kom það skemmtilega á óvart að fá hann eftir að TAA ákvað að fara

    Wirtz er gæi sem maður hefur heyrt um og náttla aðeins séð með landsliðinu.
    maður er bara að verða spenntari fyrir honum. þótt það sé eitthvað lengst þarna aftast sem segir að þetta sé galin upphæð og við gætum verið að kaupa umræðu vandræði í fjölmiðlum ef hann stendur sig svo ekki. en Jú ég er kominn á það að vilja fá hann og það er nánast bara útaf eitthverri þráhyggju.
    ef þetta er en eitt stóra nafnið sem á að kosta fúlgu fjár sem við klikkum svo á að fá, þá er þetta orðið eins og eitthver taktík þarna að vera með svona dæmi í gangi og svo klikkar alltaf eitthvað.
    Og ég hreinlega nenni því ekki en eitt sumarið!

    2
  2. Vona að þeir klári wirtz sem fyrst, okkur sárvantar þessi gæði á miðjuna, höfum ekki haft þetta frá því coutinho fór.

    Ofur verðmiði en sömuleiðis statement kaup að fá hann sem mun eflaust auðvelda okkur að fá leikmenn í aðrar stöður í liðinu í framtíðinni.

    Mín skoðun er sú að ef liverpool er komið með 130m evra á borðið og þeir vilja 150, bæta þessum 20m við og klára þetta.

    1
    • Hér er verið að tala um að Liverpool hafi boðið €130 milljónir í leikmanninn eða 18,8 milljarðar í ISK sem myndi gera hann að lang langdýrasta leikmanni í í sögu klúbbsins, Leverkusenhafna því og vilja €20 milljónir til viðbótar, fullkomlega eðlilegt að mínu viti að staldra við, væri óábyrgt og skrítin skilaboð ef félagið samþykkti slíkt hugsunarlaust

      2

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Frimpong kominn (Staðfest)

Uppgjör tímabilsins – Kop.is