Þá er búið að gefa út hver næstu kaup félagsins í sumar verða, en það er tvítugur markvörður frá Ungverjalandi sem heitir Armin Pesci, þykir ansi efnilegur, en er nú væntanlega keyptur með það í huga að byrja í akademíunni a.m.k. svona að mestu leyti. Semsagt; einn markvörður út, annar inn (og svo einn að koma sem var keyptur síðasta sumar). Alltaf nóg að gera í markvarðadeildinni hjá Liverpool.
Við vonum auðvitað að þetta verði ekki eini ungverski leikmaðurinn sem verður keyptur í sumar…. *hóst*Kerkez*hóst*
Annars er orðið laust, er ekki eitthvað áhugavert slúður sem þið hafið rekist á?
Maggi er svo að vinna í pistli um gengi lánsmanna Liverpool á síðasta tímabili, þið getið beðið spennt!
Flott að fjárfesta í ungum og efnulegum leikmönnum.
En að öðru þá er okkar scouser Jones í hægri bakverðinum í dag og Trent á bekknum.
Mjög flott kaup. Fylgdist með kappa í allan vetur og hann stóð sig eins og algjör hetja. Ég vil sjá hann fá traustið strax í 1. umferð!
YNWA
Van Dijk, Gravenbergh, Gakpo og næst nýjasti leikmaðurinn okkar hann Frimpong byrja allir inná á eftir.
Það sem er mjòg athyglisvert er að bakvörðurinn okkar spilar sem kantsóknarmaður í stöðunni hans Salah 🙂
Sælir félagar
Mér finnst eðlilegt að Maggi taki þennan strák út þar sem hann er sérfræðingur í svoddan peysum ?
Það er nú þannig
YNWA
Eyddi ca. 2 klst í youtube sérfræðinga pælingar um hitt og þetta. Eitt af því var að Frimpong kemur úr liðum ársins í þessari stöðu. Bæði þeirri þýsku og meistaradeild. Salah var að spila í þessari sömu meistaradeild.
Er ekki bara alveg mögulegt að það sé ástæðan fyrir kaupunum. Ekki endilega í bakvörðinn.
Hitt er að Wirtz er ekki sóknarmaður og verði að spila vinstra megin á miðjunni.
Má vel vera að hann sé til í að prófa eitthvað nýtt.
Þeir tala jú allir við þjálfarann áður en þeir ákveða sig.
Hvað vitum við. Bara geðveikir báðir 2 meira svona takk.
“Hitt er að Wirtz er ekki sóknarmaður”
Er hann þá varnarmaður?
Hvers vegna ætlarðu að spila honum vinstra megin?
Síðustu tvö tímabil eða frá því hann var tvítugur, hefur Wirtz komið að 69 mörkum. Skorað 34, lagt upp 35. Harla gott fyrir leikmann sem er ekki sóknarmaður
Wirtz eða Cherki???
Wirtz