Við höfum farið yfir uppgjör kvennaliðsins okkar og hjá leikmönnum í láni og við ljúkum þessum uppgjörsþráðum með að skoða niðurstöðu tveggja elstu unglingaliðanna okkar, U18 og U21s árs liðanna.
Fínt að fara yfir það meðan við bíðum leikmannafrétta og svo auðvitað kemur leikjaniðurröðunin fyrir næsta tímabil núna næsta miðvikudag.
Lesturinn er kannski ekki mjög upprifinn og jákvæður en það þarf líka að fara yfir þegar illa gengur. Þeir sem vilja smella á meira hér að neðan og við skoðum hvað veturinn bar í skauti sér hjá þessum liðum okkar veturinn 2024 – 2025.
U21s árs liðið
Stóra verkefni liðsins er PremierLeague2 þar sem 26 lið leika í það heila 20 leiki og 16 efstu liðin fara í útsláttarkeppni þar til sigurvegari er krýndur. Eins og ég fór yfir í lánsmannauppgjörinu var það svo að margir leikmenn voru lánaðir út sem hefðu verið lyklar að þessu liði og síðasta sumar voru líka seldir frá félaginu leikmenn sem höfðu spilað stórt hlutverk í fínum árangri liðins árs.
Það þýddi það að leikmannahópurinn var mjög ungur og því miður var árangurinn í samræmi við það. Liðið strögglaði allan veturinn og skriðu að lokum í 16.sæti eftir að lengi leit út fyrir að þeir yrðu ekki með í lokakeppninni. Á leiðinni voru mörg slæm úrslit, verst klárlega 0-5 heimatap fyrir WBA en 0-3 heimatap fyrir Chelsea og 0-2 fyrir Everton voru líka býsna sár. Það voru líka góð úrslit eins og 0-3 sigur á Arsenal og 0-1 gegn United en þar voru leikmenn eins og Tyler Morton og Harvey Davies úr aðalhópnum hafðir með í liðinu.
Það að lenda í 16.sæti þýddi að í úrslitakeppninni fórum við á útivöll gegn Manchester City sem voru efstir. Þar náði stjórinn Barry Levitas að stilla upp sterku liði sem kom leiknum í framlengingu þar sem að City skoruðu sigurmark á leið sinni til sigurs í deildinni, í raun betri endir heldur en deildarkeppnin hafði sýnt.
Auk PL2 tók liðið þátt í tveimur öðrum keppnum. U21s árs lið stóru liðanna fá þátttökurétt í bikarkeppni neðri deilda sem hér Bristol Street Motors cup í ár. Sú keppni hefst með riðlakeppni og okkar lið var í riðli með Crewe og Harrogate úr LeagueTwo og Blackpool úr LeagueOne í riðli. Skellur gegn Crewe setti okkur strax í ákveðinn vanda og í kjölfarið komu tvö jafntefli þar sem við svo töpuðum vítakeppnum sem gátu gefið aukastig. Því komumst við ekki áfram í útsláttarkeppnina, nokkuð sem reyndar hefur aldrei tekist.
Liðið fékk þátttökurétt í Evrópuverkefni sem heitir Premier League International Cup. Þar spila 16 lið úr Englandi við 16 lið úr öðrum Evrópulöndum, fyrst í átta 4ra liða riðlum og síðan útsláttarkeppni þar sem tvö efstu hvers riðils fara í 16 liða úrslit. Skemmst frá því að segja fór þessi keppni á sama veg og hinar, þrjú heimatöp við Hertha Berlín, Nordsjælland og Sparta Prag þýddu að við fórum ekki áfram í 16 liða úrslit keppninnar sem Nottingham Forest að lokum vann eftir að sigra Lyon í úrslitaleik.
Varðandi eftirmann þá hefur þessi staða oft verið færð milli manna sem hafa náð árangri í akademíunni en eins og við munum komast að á eftir þá tók stjóri U18 ára liðsins líka þá ákvörðun að yfirgefa félagið svo að sú leið verður ekki farin núna. Helst hefur verið horft til Jay Spearing sem innanfélagsráðningu en hann var Levitas til aðstoðar í vetur og spilaði nokkra leiki sem eldri leikmaður. Það koma oft upp nöfn eldri leikmanna þegar þessi staða er laus, Robbie Fowler helst núna en það er þó harla ólíklegt.
Ef við svo skoðum hvaða leikmenn það eru sem að voru helst að standa sig í vetur þá er nafn Kieran Morrison oftast nefnt. Þessi Norður-írski strákur kom frá Manchester United og var samkvæmt flestum miðlum besti leikmaður U21s árs liðsins, lék í falskri níu og úti á vængjum en líka í framherjastöðu. Hann verður 19 ára á árinu og spurning hvert næsta skref verður. Hann var í leikmannahópi Liverpool FC í leiknum við PSV í Meistaradeildinni og gæti fengið mínútur í fyrstu sumarleikjunum áður en ákvörðun verður tekin um framhaldið. Það hefur verið spurt um hann bæði á lán og til kaups á þessu ári.
Heilt yfir vont ár þegar kemur að úrslitum og satt að segja enginn þarna að banka á dyr leikmannahóps Liverpool FC. Það er í fyrsta sinn í nokkurn tíma en vissulega stóra málið þar hversu margir “löggiltir” leikmenn þessa liðs fóru frá félaginu á lán eða varanlega síðasta sumar.
U18 ára liðið
Þegar við horfum til keppnisfyrirkomulags U18 ára liðsins er það svipað U21s árs liðsins. Á landsvísu er þó liðunum 26 skipt í tvo riðla, norður og suður, og þar keppa liðin tvöfalda umferð allir við alla sem þýðir þá 24ra leikja deildakeppni þar svo svo sigurvegarar hvors riðils leika til úrslita í keppninni.
Í stuttu máli sagt þá gaf fyrsti leikurinn fyrirheit um framhaldið. Við fórum til Derby í ágúst og liðið steinlá 5-1 fyrir heimamönnum. Það sem eftir fylgdi í deildinni var einfaldlega arfaslakur árangur, að lokum stóðu eftir 5 sigrar af leikjunum 24 og lágpunktar auk Derby voru 0-5 heimatap fyrir meisturum Man City, 6-1 tap fyrir Sunderland og 5-0 fyrir Reading. Markatala upp á -29 sýndi fram á veikleikann sem llá sannarlega í ferlegum varnarleik liðsins.
Enska U18 ára bikarkeppnin (FA youth cup) er sannarlega keppni sem þykir merkilegt að vinna en við féllum úr á fyrstu hindrun þegar við steinlágum 4-1 fyrir Preston en bikarkeppni PL-U18 liðanna gekk miklu betur, þar fór liðið alla leið í undanúrslit en töpuðum þar 0-3 fyrir Reading – sannarlega það lið að stríða drengjunum töluvert þetta tímabilið.
Með þátttöku í Meistaradeildinni fengu okkar pjakkar líka þátttökurétt í UEFA Youth League. Þar voru 36 lið í riðlum sem gáfu 22 sæti auk þess sem að 10 sæti í lokakeppninni fóru fram í útsláttakeppni “minni” deilda Evrópu (Ísland á þátttökurétt þar). Leikirnir fylgdu aðalliðinu að hluta, 0-0 jafntefli varð gegn AC Milan, 2-1 sigur á Bologna, 3-1 tap fyrir Leipzig, 4-1 sigur á Leverkusen, 0-1 tap fyrir Real og 2-2 jafntefli við Girona þýddi að við fengum pláss í 32ja liða úrslitum þar sem liðið var dregið á útivöll gegn Stuttgart. Þar varð um hörkuleik að ræða, Stuttgart komst í 2-0 en áðurnefndu Morrison og Kane-Doherty jöfnuðu sem varð til að við fórum í vítakeppni þar sem Amara Nallo klikkaði á sínu víti og við duttum úr fyrir hörkugóðu Stuttgartliði sem féll úr í 8 liða úrslitum gegn Barcelona sem vann keppnina. Í þessari keppni léku mjög margir þeirra leikmanna sem að voru kjarninn í U21s árs liðinu og sennilega má segja að það útskýri hversu sterkara liðið var þarna en heimafyrir.
Eins og ég hef áður nefnt tók stjóri U18 ára liðsins, Marc Bridge-Wilkinson ákvörðun um að yfirgefa Liverpool í vor eftir 10 ára starf. Eins og Levitas hefur hann verið lykilmaður í Akademíunni og komið að uppbyggingu hennar og auðvitað þeirra leikmanna sem hafa skilað sér upp. Hann fékk boð um að verða aðstoðarstjóri Huddersfield Town í LeagueOne hjá öðrum fyrrum unglingaþjálfara Liverpool, Lee Grant, og taldi kominn tíma á að fara annað. Á sínum tíma var hann yfirmaður U11 – U15 liðanna og var því færður upp í U18 ára liðið en þeir sem nú eru að þjálfa í yngri liðunum hafa þó ekki langa starfsreynslu og viðbúið er að liðið horfi út fyrir klúbbinn með næstu ráðningu. Eins og með U21s árs liðið er ætlunin að ná lengra í keppnum næsta vetur en þó er enn frekar horft til þess í U18 ára liðinu að menn fái tíma til að þróast án þess að ofuráhersla sé á úrslit.
Þegar horft er til lykilleikmanna U18 þá auðvitað voru bæði Nallo og Morrison gjaldgengir í liðið en sökum þess að þeir voru mikið með eldra liðinu er ekki hægt að segja þá hafa spilað stórt hlutverk. Stóru nöfnin tvö á þessu aldurstigi eru auðvitað Trey Nyoni sem hefur verið að daðra við aðalliðið síðustu tvö tímabil og fengið mínútur og svo ungstirnið Rio Ngumoha sem kom frá Chelsea síðasta sumar. Nyoni átti erfiðan vetur sem líklega helst má tengja við að hann var á svolitlu flakki milli liðanna okkar, setti met þegar hann varð yngstur í sögu Liverpool FC til að spila í Evrópukeppni í leiknum við PSV, átti fína leiki með unglingaliðunum en líka töluvert af leikjum þar sem farið var yfir það að hann hafi ollið vonbrigðum. Strákurinn er náttúrulega fæddur 2007 og á fullt eftir, við munum pottþétt sjá hann fá fullt af sumarmínútum.
Ngumoha setti líka met þegar hann varð yngstur í sögu Liverpool FC til að byrja í FA bikarkeppninni. Hann hefur ólíkt Nyoni verið ljósið í starfi yngri liðanna. Hann spilaði mikið með báðum ungu liðunum og var besti leikmaður akademíunnar þennan vetur. Hann verður 17 ára nú í ágúst og klárt mál að við munum sjá hann fá fullt af mínútum í sumar, Slot hefur sagt hann verða amk hluta af æfingahóp liðsins á næsta ári og sá langlíklegasti nú til að eiga framtíð í alrauðu.
Samantekt yngri liðanna
Í stuttu máli klárt mál að veturinn var erfiður hjá yngri liðunum. Bæði þegar kemur að frammistöðu í keppnum og varðandi framþróun leikmanna.
Alex Inglethorpe, yfirmaður Akademíunnar, hefur farið yfir það í vor að með breytingum í þjálfaraliðinu verði líka rýnt í hvernig hægt er að ná betri árangri til framtíðar. Það virðist vera hugmyndin að senda ekki eins marga út á lán og þannig styrkja leikmannahóp U21s árs liðsins og gera það verkefni meira spennandi. Við nýtum það mjög lítið fyrir eldri leikmenn að fá mínútur (sem sum önnur lið eru að gera mun meirar af) og í ljósi þess að allmargir sem lánaðir voru út síðasta vetur fengu ekki margar mínútur hefur verið rætt að fleiri slíkir “minni spámenn” gætu aðstoðað við aukinn gæði U21s árs liðsins.
Það verður forvitnilegt að sjá hvaða þjálfarar verða fyrir valinu til að leiða þessi tvö lið, það er mikill metnaður hjá LFC að halda áfram flæðilínu yngri manna upp í aðalliðið og þar verða þessir tveir stjórar í lykilhlutverki.
Sælir félagar
Ég veit ekki alveg hvernig á að bregðast við þessum pistli Magga. Ekki að framsetningin og allt það er í góðu lagi en efnislega er maður frekar óviss í sinni sök. Mér virðist að frammistaða u21 og u18 sé afspyrnuléleg og ég veit bara ekki hvað ég á að halda. Er þetta eitthvað sem þarf að hafa áhyggjur af eða liggja skýringarnar í lánum og öðrum brotthvörfum góðra leikmanna – eða? En sem sagt; takk fyrir pistilinn Maggi og vonandi er betri tíð framundan hjá þessum hópum. Mér sýnist að allt sé að gerast hjá aðal liðinu og maður er farinn að hlakka til æfingaleikja og nýrrar leiktíðar.
Það er nú þannig
YNWA