Jæja loksins er þetta orðið klárt mál. Dýrasti leikmaður í sögu félagsins og deildarinnar. Florian Wirtz er orðinn leikmaður Liverpool.
Í tilkynningunni kemur fram að skyrtunúmerið sem Wirtz fær verði ekki kynnt fyrr en síðar í sumar. Sem segir okkur að það sé verið að bíða og sjá hvaða leikmenn fara, og hvaða númer losna í framhaldinu. Spá: hann mun fá númer fyrir neðan 11, líklega ekki tíuna samt.
Gleðilegan Florian föstudag!
Frábærar fréttir! Ótrúlega spennandi.
#9 er alveg að losna
Geggjað, velkominn..
Vúhúúúú!!!!!!
Vertu innilega velkominn og sigursæll elsku drengurinn!
YNWA
Ber miklar væntingar til þessa drengs, vonandi stendur hann undir þeim. Verðmiðin segir ýmislegt. Það sem gerir mig tilhlökkunarfullan fyrir næsta tímabili er að FSG er yfirleitt með alla tölfræði á hreinu þegar þeir gera stórkaup eins og þessi og leikmnnakaupin ganga því yfirleitt upp. Því bindi ég vonir við að Florian Wirtz rísi undir nafni og verði einn af máttarstópum liðsins og goðsögn á Anfield.