Næsta verst geymda leyndarmálið hefur nú verið staðfest, þ.e. að Milos Kerkez sé orðinn leikmaður Liverpool. Við tökum því fagnandi að sjálfsögðu.
Rétt eins og með Wirtz þá verður treyjunúmerið hans kynnt síðar. Hvaða númer spáið þið að þeir félagar fái?
Ívar ætlar að henda í ítarlegri færslu um bakverðina nýju, bíðið spennt!
Veislan heldur áfram….
Snilld. Tekur hann ekki bara #23 úr hillunni?
Sælir félagar
Þá er það staðfest sem er bíð að vera ljóst í uþb. mánuð að Milos Kerkez er kominn til Liverpool. Eins og Kjartan segir hér fyrir ofan “veizlan heldur áfram”. Velkominn Kerkes til Liverpool og á Anfield.
Það er nú þannig
YNWA
Virkilega góð kaup ánægður með metnaðinn.
Núna Guehi takk fyrir
Frábært sæn.
Þjóðasamsetningin er skemmtileg.
Fyrstu 11:
Þjóðverji
Þrír hollendingar
Tveir ungverjar
Brassi
Kólumbíumaður
Argentínumaður
Egypti
Frakki
Svo veit maður ekki með bekkinn hvernig hann þróast. Núna erum við með amk tvo enska á bekk, skota og N-íra.
Þá er þetta orðið einn besti gluggi sem ég man eftir. Ótrúlega létt að þessir þrír séu búnir að skrifa undir.
Persónulega vil ég sjá Konate næst. Hann var mjög góður á síðasta tímabili undir stjórn Slot og það er ekki gott að gera of margar breytingar.
Ef Nunez fer þá væri gaman að sjá Liverpool kaupa markaskorara.
Frábærar fréttir.
Þvílíka gleðin sem þessi gluggi er að verða!
Frábærar fréttir, er samt alveg hættur að skilja þessar reglur með lágmark Englendinga í hóp