Það er ögn sterkara lið sem mætir út á völlinn núna kl. 19 í seinni æfingaleik dagsins, en svona stillir Slot upp á eftir:
Frimpong – Konate – Endo – Kerkez
Grav – Szoboszlai
Salah – Wirtz – Gakpo
Ekitike
Bekkur: Pesci, Nallo, Morrison, Davidson, Wright, Chiesa
Þeir Alisson, van Dijk, Gomez og Bradley eru allir frá af ýmsum orsökum: persónuleg mál heima fyrir hjá Alisson (líklega aðgerð sem konan hans þurfti að fara í), veikindi hjá VVD, og Gomez og Bradley eru að glíma við smávægileg meiðsli, sem þó gætu orðið til þess að þeir tveir síðastnefndu nái ekki góðgerðarskildinum næsta sunnudag gegn Palace. Gott að vera með breiðan hóp til að höndla slíkt.
Skýrslan verður væntanlega uppfærð í lok dags með úrslitum, aldrei seinna en í fyrramálið, max annað kvöld. Alveg örugglega komið á miðvikudag-fimmtudag í allra síðasta lagi. Geirneglt að þetta verður komið í lok vikunnar, aldrei seinna en í næstu viku.
Uppfært: leik lokið með 3-2 sigri okkar manna. Nokkuð sanngjarnt en andstæðingurinn klárlega sterkari í kvöld en fyrr í dag. Sóknarlínan okkar hefði reyndar alveg mátt skora fleiri mörk, vonum að þetta sé bara forsmekkurinn að því sem koma skal. Samvinnan hjá Wirtz og Salah hefur alla burði til að verða ógnvænleg fyrir andstæðingana, Frimpong var að koma með mikla orku inn í leikinn, og já spáið í hvernig Mac Allister á svo eftir að koma inn í þessa jöfnu! En það má alveg æfa betur varnarvinnuna í föstum leikatriðum.
Næst: góðgerðarskjöldurinn á sunnudag eftir viku.
Hvar er hægt að sjá?
LFCTV fyrst og fremst.
Flott hlaup hjá Ekitike og markið hjá Salah
Asskoti er nýi aðalbúningurinn fallegur! Minnir á gamla góða daga…
Mér finnst sóknarleikurinn algjör unun að horfa á. Florian Wirtz virðist alltaf ná að koma með 100% nákvæma sendingu, oft í fyrstu snertingu og svo eru Frimpong og Kerkez þvílík orkubúnt. Og svo þarf ekkert að tala um sendingarnar hjá Salah, orkunaní Szobo og svo framvegis. Ekitike lofar líka massagóðu og á eftir að komast í enn betri takt.
“His name is Rio and he dances on the pitch”
(með lagi Duran Duran)
‘nuf said…
Sælir félagar
Ég er nú ekki eins hrifin af frammistöðu Wirtz og aðrir hér. Hann byrjaði vel og var mjög góður fyrsta korterið eða svo. Eftir það fjaraði undan honum verulega, sendingar of lausar og hittu ekki á samherja, hlaupin hæg og fyrirsjáanleg og frammistaðan frekar slök. Sobo var langbesti maður vallarins og Salah, Gagpo og Marmarinn fínir en aðrir fanst mér á pari. Frimpong hefur gríðarlegan hraða og þegar hann fer að hafa vald á boltanum þá verður hann óviðráðanlegur. Kerkes fínn fyrst og fremst varnarlega og Ekitike flottur. Liðið virðist vera að smella saman ogg þegar það er búið að ná fullri samhæfingu stenst því ekkert lið snúning. Sem sagt gott 😉
Þa’ er nú þannig
YNWA
Sammála þér með Wirtz, ég átti einhvern veginn vona á meira frá honum, Sobo langbesti leikmaður okkar og flestir hinna nokkuð góðir.
Það búast margir við að þessir nýju leikmenn munu blómstra frá fyrsta degi.
Þó að væntingarnar í garð Wirtz séu miklar þá verður að hafa í huga að hann er jafnaldri Elliott og væntanlega 2 til 4 ár í að hann toppi sem knattspyrnumaður.
Svipað má segja um Ekitike.