Liðið gegn Everton

Ein breyting á liðinu frá leiknum gegn Wolves, Kuyt kemur inn fyrir Henderson og því erum við að tala um 4-4-2.

Reina

Kelly – Carragher – Skrtel – Enrique

Kuyt – Lucas – Adam – Downing

Carroll – Suarez

 

Bekkur: Doni, Coates, Gerrard, Henderson, Bellamy, Flanagan, Spearing.

Steven Gerrard er á bekknum og kemur pottþétt inná síðustu 20-30 mínúturnar.

Liðið hjá Everton er svona:

Howard

Hibbert – Distin – Jagielka – Baines

Coleman – Fellaini – Rodwell – Osman

Cahill

Saha

Bekkur: Mucha, Vellios, Neville, Bilyaletdinov, Barkley, Drenthe, Stracqualursi.

Saha og Cahill eru með í dag frá byrjun þannig að þeir eru a.m.k. með sóknarmenn inná. Sæmilega sterkt Everton lið og þeir verða klárlega tilbúnir í þennan leik.

89 Comments

  1. Nákvæmlega liðið sem ég vildi sjá stillt upp í dag! 🙂 Nú er bara að flengja þá bláu og bitru 🙂 YNWA

  2. Flott lið og nauðsunlegt að fá Kuyt í liðið. En hérna er svo everton liðið.
     
    Everton: Howard, Hibbert, Baines, Jagielka, Saha, Distin, Cahill, Osman, Coleman, Fellaini, Rodwell.
    Subs: Mucha, Vellios, Neville, Bilyaletdinov, Barkley, Drenthe, Stracqualursi.

  3. Við verðum að vinna, ég er búinn að setja 2 á leikinn og mikið undir : )

  4. Spái því fyrirfram að Kuyt verði maður leiksins, hann er glorhungraður

  5. 6, Róbert
     
    Ég myndi halda að sófinn heima hjá þér væri besti kosturinn, en ef þú ert að deyja úr þynnku mæli ég með rúminu með hátt undir höfði og smá treo á rúmborðinu 😛

  6. Maður skilur baul Nevertonmanna mætavel þessa stundina, þetta rauða spjald var algjört grín.

    En það var kominn tími til að lélegur dómur félli okkur í vil og nú er bara að nýta það, það er ekki við okkur að sakast heldur dómarannn. 

  7. Þessi dómari er með áráttu fyrir rauðum spjöldum, þetta var engan veginn rautt, samt þoli ég ekki Everton. Held samt að leikurinn verði jafn þrátt fyrir þetta (lesist: það verður annað rautt og þá á okkur).

  8. Ef við náum sigri í dag, setur thetta spjald leidinlegan blett a thad ad minu mati …

  9. Ef þetta var rautt spjald þá verða þau 10 í þessum leik áður en yfir lýkur. Þetta var ekki merkilegt brot. Algjörlega glórulaust spjald.

  10. Brotið á Adam verðskuldaði mun frekar rautt heldur en brotið á Cahill að mínu mati, glórulaust hjá honum

  11. Vá hvað þessi þlur hlítur að vera góður í fótbolta, hann veit og getur allt betur en aðrir. Hver er þetta ?

  12. Aldrei rautt spjald en áttum við þetta ekki bara inni?

    Stöð 2 er svo til skammar að bjóða uppá Kristinn Kjærnested í lýsingum og hvað þá í svona veislu eins og þessum leik.

    Mæli með að við allir hringjum og kvörtum eftir helgi og fáum þennan mann úr lýsingum, ohh hvað hann fer agalega í mig     

      

  13. þessi þulur er bara að kritisera leikmenn útí eitt, ömurlega pirrandi og nú er hann farin að skipta sér af hverjir koma inná hjá Liverpool. Ég þoli þetta ekki !

  14. held að þulurinn sé í bláum evertonnærbuxum og búin að gera í þær

  15. 2 víti á tímabilinu og 0 mörk? ekki satt? 

    Mikið hlakkar mér til þegar Gerrard fer að taka víti 

  16. Öll þau ljótu blótsyrði sem ykkur detta í hug, falla nú af mínum munni! En vel varið samt.

  17. Ætlar Liverpool ekki að fara að byrja að nýta vítin á þessu tímabili?

  18. Kristinn er held ég púllari en það breytir því ekki að hann er ekki hæfur til þess að lýsa knattspyrnuleikjum, hann fer ekkert meira í mig þegar hann lýsir Liverpool leik eða Wigan – Sunderland..

    Maður borgar fyrir þetta stórfé og það er bara lágmark að Stöð 2 láti mann þá hafa eitthvað fyrir peninginn, hafa td smá upphitun fyrir svona leik og kannski hæfan lýsanda  

  19. Þess vegna á hann ekki að lýsa liverpool leikjum, álíka góð hugmynd og láta Hödda magg lýsa liverpool leikjum.

  20. Það er svo allt annað mál, en að kalla hann Everton mann hreinlega rangt

  21. Ég hef svolitlar áhyggjur af hversu ragir við erum við að klára sóknirnar okkar, skorum ekki einusinni úr víti!

    Adam var nálægt því og vonandi heldur hann áfram að dúndra.

  22. Djöfull er Carroll á hvínandi rassgatinu! Taka hann út af veliinum í einum grænum logandi hvelli og skella Fantastic inná! Sláni þarf að hugsa sinn gang! Ef maður kemst ekki í gang í derby slag þá verður það aldrei. 

  23. Væri gaman að sjá markahlutfall LFC þetta season ef markið væri 5 cm stærra.
    Það fer allt í stöng og slá

  24. Mikið er nú gott að vera með alvöru menn á bekknum, e-ð annað en í fyrra. Vera jákvæðir – við erum miklu betri.

  25. Finnst líklegt að Atkinson fái orð í eyra frá dómaranefndinni (svo ekki sé minnst á fjölmiðla og litla, bláa bróður) eftir þennan leik. Hreinlega sárt að horfa upp á aumingja manninn þarna inná vellinum, samræmið farið algerlega út um gluggann.

  26. Carroll er átakanlega lélegur og verður að fara útaf í hálfleik, ekki eftir neinu að bíða með það.
    Síðan er greinilega ekkert sjálfstraust í liðinu, útaf með Adam og inn með Gerrard til að fá einhverja trú og stemmingu í þetta.

    Aldrei rautt spjald en þetta var klárt víti.

    Koma svo og hundskast til að taka þetta.

  27. Já, ég er skít hræddur um Suárez, ef Neverton menn halda áfram að tækla svona eins og vitleysingar. En allavega þurfum við ekki mikið meira enn að klára sóknirnar okkar, eins og er altaf vandámál, og passa að fara ekki niður á þeirra level, það er að segja að fara ekki að tækla og fá spjöld.

  28. klikkaður leikur,heppnir með dómarann.tækum þetta 3-0 góður linkur

     sop://broker.sopcast.com:3912/106723

  29. Þetta liggur ekki alveg fyrir okkur. Vorum heppnir með rauða spjaldið en við verðum að fara skora. Everton getur alveg sett eitt þótt þeir séu einum fleiri.

  30. Gummi er FAGMAÐUR og auðvitað væri best ef hann gæti lýst öllum leikjunum en svo gott er það ekki….

  31. Andy Carroll alls ekki tilbúinn í svona verkefni. Spilar með hálfum huga og engin barátta. Drengurinn verður að fara að hugsa sinn gang. 

  32. Við skulum ekki gleyma því að dómarinn sér þetta bara einu sinni, klárlega rangur dómur þrátt fyrir að dómarinn hafi verið vel staðsettur.
    Ég ætla ekki að kvarta.
     
    Vil fá mörk !

  33. Sælir félagar
     
    Þulurinn er gegnsýrður Muari og lýsingin í samræmi við það.  Rauða spjaldið var RÉTT, tveggja fóta tækling og takkarnir á lofti og ekki vafi á rauðu spjaldi þó Suarez hafi stokkið upp úr brotinu og sloppið við meiðsli.
     
    Það er nú þannig.
     
    YNWA

  34. Það er bara vandræðalegt að horfa á “sóknarleikinn” hjá okkur!

  35. Haha að menn skuli þræta fyrir það að þetta sé ekki rautt spjald sýnir bara fáfræði sumra manna

  36. Frábær málflutningur Fannar. Ég er sannfærður og klárlega sammála þér eftir þennan rökstuðning.

  37. Alveg átakanlegt að sjá Kuyt og Carroll og svo Adam að ekki verjast…. Fá Gerrard og Bellamy inn strax

  38. Það verður bara að segjast eins og er að við erum alls, alls ekki sannfærandi fram á við.

  39. Halló hvar eru skiptingarnar…

    Bellamy og Gerrard inn NÚNA 

  40. LFC á ekki góðan dag í dag.   Þeir eru staðir og seinir.  Eins og þeir nenni þessu ekki. 
    Ég er ferlega fúll með þetta áhugaleysi.  

  41. Everton er bara að ná undirtökunum í leiknum, það er átakanlegt að sjá.

  42. Þetta er horror, vantar alla sköpun, erum 1 fleiri og ekkert a ð gerast. Inná með Gerrard!!!!!!

  43. Ég sagði þetta herna a kop fyrir leik að ég hefði góða tilfinningu fyrir því að Carroll mundi gera eitt ef ekki 2 í dag..

    kemur ekki bara annað frá honum 

  44. Þetta er ástæðan fyrir því að Kenny er stjóri en ekki ég… ég væri búin að taka Carrol útaf:) Flott sókn og gott mark.

  45. Andy Carroll!! Vonandi verður þetta til þess að koma stráknum í gang 🙂 Núna gæti ég trúað að vörn Everton manna fari að opnast og okkar menn læði inn eins og tveim mörkum í viðbót, panta eitt í viðbót frá Carrol takk.

  46. Vá, það átti að standa þarna að sjálfsögðu EKKI með einu eLLi 🙂

  47. Mikið vona ég að þetta mark Carroll þaggi niður í mönnum sem þykjast vita betur en Dalglish. 

  48. Grýta leikmann með peningum, lýsir skítlegu eðli toffíógeða ágætlega.

  49. Góður sigur hjá okkar mönnum, skiptingarnar gerðu gæfumuninn. Til hamingju.

  50. Everton menn mega hreint ekki við því að vera að henda peningum. Þeir eiga að spara þá til að geta kannski einhvern tíma í framtíðinni keypt eitt stykki leikmann.

  51. Snilldar sigur og stórkostlegt fyrra mark. Ótrúlega jákvætt að geta sett 2 leikmenn inná á ca 70. mínútu sem geta breytt leikjum! Það er gríðarleg framför frá síðustu árum!

    P.s. til hamingju allir sem vildu Kuyt og Carroll útaf í hálfleik 😉 

  52. Kuyt hafði ekkert útaf að gera en krafan um skiptingu á Carroll er skiljanlega, markið núllar ekki út slaka frammistöðu, þó svo að það skyggi á hana. Vonandi er þetta sprautan sem hann þurfti í óæðri endann og hann fari nú að sýna það sem virkilega í honum býr.
    Þrjú stig eru alltaf góð, enn betri ef þau vinnast á Goodison. YNWA
     

Neverton á morgun

Everton – Liverpool 0-2