Nauj! Harry Kewell er í byrjunarliðinu í dag gegn Fulham!
Liðið er svona:
Josemi – Carra – Hyypiä – Traoré
Kewell – Sissoko – Alonso – Riise
Cissé – Morientes
BEKKUR: Carson, Hamann, Warnock, García, Crouch.
Sem sagt, Stevie Gerrard er ennþá meiddur og Harry Kewell kemur í liðið. Crouch er enn á bekknum, Cissé heldur áfram í byrjunarliðinu og Nando Morientes fær séns í dag.
Mig grunar að Rafa muni byrja varfærnislega, kannski með Cissé úti hægra megin og Kewell inná miðjunni, í ‘holunni’ svokölluðu fyrir aftan Morientes sem verður sennilega einn uppi til að byrja með. En þetta er engu að síður mjög sókndjörf uppstilling, af fjórum miðjumönnum og tveim framherjum er í raun bara Alonso ekkert sérstaklega sókndjarfur, þannig að við ættum að geta pressað þetta Fulham-lið í dag.
Núna hlakkar mig sko til að horfa á leikinn á eftir. 🙂
Þetta líst mér vel á, var hræddur um það yrði total 4-5-1 en þetta er flott :biggrin:
Varfærnislega á móti Fulham? 1-0 undir, við eigum sko LANGT í land skal ég segja ykkur!
Það er eitthvað ALVARLEGT að!!! Af hverju er svona erfitt að skora?
Ég spyr bara, hvenær er næsti Evrópuleikur!? 😡