Xabi Alonso er maður helgarinnar hjá okkur. Hann er sá eini, sem kemst í lið vikunnar hjá fjölmiðlum.
[Sky](http://home.skysports.com/list.asp?hlid=377914) – þar er Xabi
[Á BBC](http://news.bbc.co.uk/sport1/shared/spl/hi/football/squad_selector/team_of_the_week/html/ss_team.stm) er enginn úr Liverpool liðinu.
[Á ESPN](http://soccernet.espn.go.com/columns/story?id=364365&root=england&cc=5739) er Xabi svo í liðinu.
Ég veit að þessi lið helgarinnar eru bara álit eins manns á einhverjum fréttamiðli, en …
Þessi Garth Crooks (þílíkt nafn!) hjá BBC hlýtur að vera blindur. Ég hefði valið Fowler í lið helgarinnar fram yfir Drogba, og sennilega Kevin Davies líka. Og svo er Alonso ekki í liðinu hjá honum? Missti hann af leiknum okkar?
Oh jæja, mitt lið helgarinnar væri svona: Reina, Finnan, Carra, Hyypiä, Riise, Kewell, Alonso, Gerrard, García, Crouch, Fowler.
En það er bara ég … 🙂
Ég held að þessi BBC maður hafi bara séð 2 leiki um helgina. 4 Chelsea menn og 4 manutd menn er bara grín…eða eru öll önnur lið bara svona léleg?
Drogba átti reyndar svakalegan leik og algerlega verðugur í lið vikunar.
Já, og af hverju í ANDSKOTANUM er Van der Saar í liðinu? David James átti umtalsvert betri dag.
Garth Crooks er gríðarlega vafasamur gaur, sem virðist á stundum vera með eitthvað agenda. Þó hann hafi verið hetja á White Hart Lane sem leikmaður, þá er eins og hann geti aldrei fallist á að liðið geri neitt vel/rétt í dag.
Og fyrst hann getur ekki gætt sanngirni í garð eins liðs, af hverju ætti maður þá eitthvað að gera ráð fyrir því að hann geri það gagnvart öðrum? Algjör höfðingjasleikja sem ber að sneiða hjá í umræðu um fótbolta.