Liðið okkar í leiknum gegn hr. Benitez í dag er komið og lítur svona út!
Reina
Johnson – Carragher – Agger – Enrique
Gerrard – Lucas – Henderson
Downing – Suarez – Coutinho
Bekkur: Jones, Skrtel, Coates, Shelvey, Coady, Assaidi, Sturridge
Coutinho heldur stöðunni, eina breytingin frá síðast er að Downing kemur inn fyrir Sturridge karlinn sem er örugglega ekki glaður með það…en þannig er þetta bara.
Til þess var tekið hjá “twitterliðinu” sem var á Anfield þegar útirútan mætti að Rafa fékk gríðarlegt fagn en Torres nær eingöngu baul hjá þeim sem eitthvað tjáðu sig um málið.
Allavega, treystum á að flottur leikur sé framundan…KOMA SVO!!!!!!
Vona eftir skemmtilegum leik og sigur okkar manna. Luis skorar markið eða mörkin 🙂
Byrjunarliðið hjá Chelsea
Cech (c); Azpili, Ivan, D Luiz, Bertrand;
Ramires, Mikel;
Hazard, Mata, Oscar;
Torres
Djöfull er ég orðinn spenntur. Vonandi fáum við góðan leik og 3 stig í hús.
KOMA SVO LIVERPOOL.
United bara búnir að vinna dolluna
Torres byrjar…
Þetta verður rosalegt!
http://www.firstrow1.eu/watch/182311/1/watch-liverpool-fc-vs-chelsea.html
Afh i andskotanum byrjar sturridge ekki “fokk”
Líst’áða !
Minnir mann á gamla snilld hjá flottasta dana ever:
http://www.youtube.com/watch?v=YflS479W9SM
Eigið góðan leik bræður
Ekkert út á þetta lið að setja. Sturridge hefur ekki spilað nógu vel undanfarið til að komast í byrjunarliðið, simple as that. Flott að eiga hann inni á bekknum og eins gaman að sjá Coady í hóp, núna gætum við farið að sjá meira af kjúklingum í hóp til loka þessa tímabils.
En mikið óskaplega vona ég að þetta verði í síðasta skipti sem Benitez kemur á Anfield sem stjóri gestana. Þetta bara passar ekki.
eruði með góð stream
Þetta er toppmiðja sem hann stillir upp í dag, líst vel á þetta. KOMA SVO
Úff, mér verður óglatt við að sjá Benitez með blátt bindi og Chelsea merki á jakkanum.
BR er eins og þýskur herforingi í þessum frakka með sorgarbandið á vinstri upphandlegg!
Koma svo Liverpool!!
flottur leikur en vá hvað ég get ekki beðið eftir næsta tímabili
Smella Suarez í takkaskó…
Frábær vörn Agger 🙁
Liverpool og föst leikatriði eru bara ekki að gera sig, held að ekkert lið sé jafn slakt að verjast föstum leikatriðum og svo kemur ekkert út úr föstum leikatriðum hjá Liverpool.
Af hverju i andskotanum er aldrei maður á stönginni!!!
Jæja þá er þessi leikur búinn. Hverstu margir leikir undir stjórn BR hafa tapast á marki úr hornspyrnum. Mitt mat er að BR er looser. Hann hefur aldrei unnið neitt og mun aldrei því hann hefur ekki það sem til þarf til að innprenta hugfar sigurvegara í mannskapinn. Þetta hefur oft komið í ljós í leikjum þegar menn hafa einfaldlega gefist upp alltof snemma.
Jæja þá byrjar gleðin.
WHERE THE FUCK IS ASSAIDI.
Sýnist Agger nú vera í svæðisvörn. Held að Oscar sé bara lúmskur þarna.
Mér finnst Heno ekki hafa fundið sig. Þetta verður lagað í hálfleik!
Koma svo LFC!
Þessi leikur er EKKI búinn – höfum smá trú á okkar mönnum…
Sturridge inn fyrir Henderson í hálfleik?
Suarez er alltof einmana þarna hefði byrjað sturridge hann er hungraður á móti sínum gömlu félögum, svo finnst mer lucas ekki eiga roð í ramires,oscar,hazard og er slakur framávið.
18 snake talandi um ad gefast fljott upp , er ekki otarfi ad gefast upp i fyrrihalfleik ?
ok 4-4-2 ég vona að liðið verði svona i seinni
suarez sturridge
coutinho gerrard lucas downing
enrique agger carra johnson
reina
17. Mér sýntist Lucas vera við stöngina enn af einhverjum ástæðum fer hann frá henni þegar sendinginn kom fyrir. Frekar klauflegt. Annars var dekkinginn léleg.
Ut með henderson. Allt of margar feilsendingar. Einnig ma skipta lucasi ut.
Þetta er dapurt.
Chelsea er einfaldlega með sterkara lið..
Alveg möguleiki að snúa þessu við…ef það verða stjóraskipti í hálfleik.
Já, finnst Henderson vera að eiga fremur slakann leik, touchið hjá Suarez ekki alveg top, og gengur ekki nógu vel að finna Coutinho.
Væri alveg til í að sjá smá breytingar í seinni.
Liverpool er einfaldlega ekki eins sterkir og Chelsea og ekki hægt að búast við sigri gegn þeim.
Lucas leit ekki vel út þarna í markinu, hann stóð nálægt stönginni fyrst en þegar boltinn kom í teiginn þá hljóp hann eftir línunni í átt að fjærstönginni.Heilt galið og ótrúlegt að sjá frá atvinnumanni! En ég hef trú á að þetta skáni í seinni ef markið kemur fljótt annars tapast þetta eins og oftast þegar ekki tekst að skora snemma.
Liðið er engan veginn að spila sem lið djöfull þoli ég þetta ekki!##”
taka skot úr engum færum geta ekki fokkings varist hornspyrnum!?!?! hvað er það. bæ
Sturridge fyrir Coutinho í hálfleik!
KOMA SVO!!!
8 Snake eg vil byrja à því að hrósa þér fyrr að þora að tjá þig undir nafni.
Að öðru þá skil ég ekki þessa gagnrýni þína. Miðað við hana þá er BR looser fyrir að hafa ekki unnið bikar í fyrra með Swansea á fyrsta ári sínu i PL. Það er auðvitað ekkert eðlilegra en að vera með slíkar væntingar.
Það er engum blöðum það að fletta að vörnin hefur ekki verið nægilega sterk í ár. Þetta mark undirstrikar það en Agger gerir ekki vel i þessari spyrnu.
Svo er RB buinn að lesa BR eins og morgunblaðið. BR þarf þvi að syna nuna að hann hafi plan B. Einnig þurfa margir leikmenn að stiga upp eins og Coutinho, Henderson, Gerrard og fleiri.
Afram Liverpool.
wow sturridge skorar 2
FOOOOKKK!!!
3 dauðafæri á einni mínútu en ekki mark!
fékk Sturridge sér kippu af Redbull áður en hann kom inná?
Hvað er í gangi í hornspyrnum… liðið verður bara að gera allt sem þeir geta til að fá ekki á sig horn. Þetta er vandræðalegt.
sko eitt komið
STUUURRRIDDDGGGE!!
Það hlaut að koma að þessu – flott mark og frábær frammistaða so far í seinni. Vinnum svo þetta gerviplastpappakassalið….KOMASSO!
Super Sturridge?
Jæja það er vonandi að maður þurfi að éta þetta ofan í sig
hann er að verja andlitið sitt for fucks sake
þetta var heimskulegt af Suarez!
Suarez skuldar mark – og hann borgar skuldir sínar.
Púra víti. En ég er algjörlega ósammála Hödda Magg að þetta hafi verið svakalega öruggt víti. Reina hefði ekki þurft að hafa mikið fyrir því að verja þetta ef hann hefði valið rétt horn… Ef!
Eru ekki öll víti örugg ef það er skorað úr þeim? Hef aldrei fattað þessa umræðu, ef Reina hefði valið rétt horn og varið þetta þá hefði Höddi talað um arfaslakt víti.
Alltof spjald glaður þessi friend
þetta chel$kí lið er alveg svakalega leiðinlegt lið! Leggja meira upp úr því að fiska gul spjöld en að láta boltann ganga. Gjörsamlega óþolandi drogba-taktar í þessu drasli ennþá!
Kemur ekki til greina að tapa á móti þessu hyski!
HAHAHA hann suarez mannæta
Guð minn góður Suarez, ekki segja mér að hann hafi verið að bíta Ivanovic. Lærir hann ekki af mistökum???
Jæja þá er Suarez búinn að fokka þessu upp hjá sér eina ferðina enn.
Var Suarez að reyna að bíta hann?? Ef svo er þá hljótum við að íhuga hvort það borgi sig að halda honum, hæfileikar eða ekki.
var suarez ad bita ivanovich? ansi taep hegdun
guð eg held að hann er að reyna að fá hvíld
Haha Suarez var bara svangur, chill out
Jæja þá verður Suarez ekki með okkur næstu 5-10 leiki
Afhverju gefa menn ekki boltann á menn í góðum hlaupum og færum? Við erum með 10 maradona í liðinu okkar oft á tíðum. Gjörsamlega óþolandi.
assaidi takk
Sidasta timabil Suarez i enska boltanum……
Eigum við ekki að bíta frá okkur?? Annars er þetta frekar pirrandi vinkill á annars frábærum leikmanni ef hann hefur bitið hann.
Koma, það er nóg eftir til að jafna og vinna!!
Þetta er með því fyndnara sem ég hef séð. Suarez var eins og eitthvað risa nagdýr á hendinni á Ivan. Ég skellti uppúr í endursýningunni.
Sjáumst. Þetta er búið
Hann beit hann ekkert…aðeins að naga í hann. 3 leikja bann búið.
Suarez halfviti burt með hann
Frabær leikmadur…en djøfull er hann heimskur…20 myndavelar a vellinum… 🙂
26 😉
Ivanovic kleip hann og það ofhitnaði aðeins á katlinum hjá Suarez 🙂 Þetta verður blásið upp eins og hann hafi étið hann upp til agna…
Sem hann hefði reyndar alveg mátt gera fyrir mér 😀
YYYYYYYYYEEEESSSSS!!!!!!!
Jæja Suarez – spurning hvort þú sért skuldlaus samt…
…og þess vegna elskum við hann.
Hhahahahhaha kalllinn – elska þennan dreng 🙂
Sorry,,,,en það er engan veginn hægt að verja þetta.
http://www.101greatgoals.com/gvideos/best-angle-yet-luis-suarez-bites-branislav-ivanovic-gif/
Greinilegt að menn eru komnir í sumarfrí á Anfield og sumir greinilega ákafari að komast í frí á undan öðrum.
Spurning hvort að maður taki líka snemmbúið sumarfrí frá enska boltanum þetta tímabilið.
Eg vona að manni hafi missýnst en annars er þetta algerlega óverjandi…
Sueraz er fáviti
úff,
Leitt að segja það en þetta var líklega síðasta mark Suarez fyrir Liverpool 🙁
Skúrkurinn, Fólið og Hetjan! Suarez með þrennu.
maður leiksins: Kevin f****** Friend
Suarez á eftir að fara í dýrlingatölu eftir þetta bit. Verst að hann fær örugglega langt bann miðað við 9 leikja bannið sem hann fékk fyrir að kalla Evra svertingja.
En fuck it, maðurinn vill vinna og þessir aumingjar sem eru með honum í liði verða að fara gera betur heldur en 7.sætið.
hættið þessu væli ..hann datt á hendina á honum
Fékk Aguerro bann fyrir tveggja fóta tæklinguna ?
fékk hann ekki tiltal frá dómaranum strax eftir þetta atvik þannig að það er ekki hægt að setja hann í bann því dómarinn tók á málinu á vellinum
BR ad gera upp a bak i vidtali eftir leikinn….
Stundarbrjálæði hjá Suarez og afar heimskuleg mistök. Óverjandi hegðun á fótboltavelli og gefur hatursmönnum hans byr undir báða vængi.
Það verður samt athyglisvert að sjá hvort hann fær bann fyrir þetta, auðvitað er þetta ekki sams konar brot en ásetningurinn var ekki minni hjá Aguero þegar hann henti sér í tveggjafótatæklingu í óæðri endann á Luiz.
Nú fáum við að sjá hvort menn sitja við sama borð þegar aganefndin er annars vegar. Hef “lúmskan” grun um að svo verði ekki og Suarez fái langt langt bann fyrir þetta í dag. Takk fyrir seasonið Luis, sjáumst vonandi á því næsta líka.