Salif Diao er [ennþá Liverpool leikmaður](http://www.liverpoolfc.tv/news/drilldown/N153715061009-1127.htm) þrátt fyrir að allnokkuð sé síðan hann spilaði leik fyrir félagið. Hann hefur m.a. verið í láni hjá Birmingham og Portsmouth en aðallega verið meiddur. Skv. official síðunni þá gæti hann verið á leið í lán til Stoke City og er það vel. Vonandi að hann nái að hrífa Tony “íslandsvin” Pulis uppúr skónum og þeir semji við drenginn. Samningur Diao við Liverpool rennur úr næsta sumar.
Diao á eftir að enda á bekknum hjá Þrótti.
Er ekki óþarfi að móðga þrótt með svona óþarfa commentum?
Hann væri flottur á miðjunni hjá Africa United.
samkvæmt liverpool.is er það staðfest að Diao er farinn á lán til Stoke City og eru það góðar fréttar, vonandi að hann heilli Stoke-ara það mikið að þeir kaupi hann í janúar glugganum 🙂