Best að æfa sig að skrifa þetta, “Arsenal á morgun”, “Arsenal á morgun”, “Arsenal á morgun”.
Það er oft ótrúlegt hvernig þessir bikardrættir geta þróast. Undanfarið höfum við oft dregist gegn Chelsea og menn hreinlega orðnir leiðir á að skrifa upphitanir fyrir slÃka leiki. Nú þegar hafa verið gerðar tvær upphitanir á þessu tÃmabili fyrir leiki gegn Arsenal, og lágmark þrjár eftir (með þessari). En hvað um það, alltaf gaman að mæta góðum liðum og þetta lið flokkast svo sannarlega à þann hóp. Ætli stuðningsmenn þeirra verði samt ekki orðnir dauðleiðir á að ferðast alltaf til Liverpool á tÃmabilinu. Þeir fóru þangað til að spila við Everton à deildarbikarnum à nóvember, fóru fýluferð þangað til að horfa á leikinn gegn okkar mönnum à desember. Fara núna tvisvar á nokkrum dögum til að sjá Arsenal sækja okkur heim à FA bikarnum og deildarbikarnum og fara svo tvisvar til borgarinnar à mars til að sjá deildarleikina gegn Liverpool og Everton. Þetta eru sem sagt að lágmarki 6 skipti sem þeir ferðast til þessarar frægu fótboltaborgar.
Það kæmi mér svo bara ekkert á óvart þótt liðin myndu svo dragast saman à Meistaradeild Evrópu á einhverjum tÃmapunkti (til þess að það geti gerst, þurfa þó bæði lið að komast áfram að sjálfsögðu). En hvað um það, nóg af þessu og best að snúa sér að sjálfri upphituninni.
Arsenal à heimsókn á Anfield. Menn eru ennþá sárir à botninum eftir viðureign þessara liða á Emirates Stadium. Nú hafa menn tækifæri til að leiðrétta þau mistök og sýna af hverju það var Liverpool sem stóð uppi sem bikarmeistari á sÃðasta tÃmabili, sæti ofar en Arsenal à deildinni það tÃmabilið og sú staða að liðið er fyrir ofan félaga sÃna frá London à deildinni á þessu tÃmabili. SÃðan við steinlágum gegn Arsenal hefur liðið fengið á sig heil 3 mörk à 12 leikjum. 2 af þeim komu à tilgangslausum leik gegn Galatasaray á útivelli à Meistaradeildinni. Eina markið à deildinni skoraði Blackburn á annan dag jóla. Það er þvà nokkuð ljóst að mikið hefur breyst hjá Liverpool sÃðan 12. nóvember. Vörnin hefur smollið saman og hefur sýnt að hún er ein sú albesta à Evrópu, Pepe Reina hefur öðlast sitt sjálfstraust að nýju og sÃðast en ekki sÃst þá hafa leikmennirnir fundið leið inn à mark andstæðinganna. Þetta hefur sem sagt skilað markatölunni 23-3 à þessum tólf leikjum.
Það er ekkert alltof traustvekjandi fyrir leikinn að sjá að Thierry Henry kom tilbaka um sÃðustu helgi með miklum krafti, úthvÃldur og à topp standi. Maður vill þó ávallt sjá liðið sitt sigra mótherja sÃna örugglega og það með sÃna bestu menn heila. En þó Henry sé kominn aftur, þá er ennþá eitthvað um meiðsli hjá Arsenal. Maður hefur nú svo sem séð það hjá Wenger blessuðum að hinir og þessir séu meiddir og verði svo og svo lengi frá vegna meiðsla og svo birtast þeir allt à einu inni á vellinum. Aðdragandinn að endurkomu Henry var ekki langur, en samt kom hann inn à tipp topp formi. Allavega, þá eru þeir Baptista, Walcott, Djourou, Adebayor, Eboue, Ljungberg, Gallas og Diaby skráðir meiddir. Sá sÃðast nefndi verður pottþétt ekki með, en ég myndi nú ekki útiloka neinn af hinum. Auðvitað koma þeir ekki allir tilbaka, en ég er sannfærður um að einhverjir þeirra verði à liðinu eða á bekknum. Talað er um à dag að Eboue sé orðinn leikfær, en allir hinir tæpir. Hvað verður, kemur einfaldlega à ljós. Það er samt alveg ljóst að þeir Van Persie og Fabregas verða ekki með á morgun. Þeir eru báðir à leikbanni og þvà morgunljóst að Arsenal verður án þeirra.
à góðum degi þá standast fá lið Arsenal snúning. Það sama er reyndar lÃka alveg hægt að segja um okkar menn. Mér finnst persónulega oft á tÃðum ákaflega skemmtilegt að fylgjast með þessu Arsenal liði, en stundum finnst mér þeir gera hlutina allt of flókna. Oft á tÃðum hefur maður á tilfinningunni að þeir ætli að spila tuðrunni inn à markið með 8.567 sendingum. Þeir eru hreint út sagt óútreiknanlegir. Þeir hafa verið að tapa fáránlegum leikjum og vinna sÃðan sannfærandi þess á milli. Það er annað hvort à ökkla eða eyra hjá þeim.
Varðandi okkar menn þá er lÃtið nýtt að frétta á þeim bænum. Enn eru það bara Kewell, Momo og Bolo sem eru fjarverandi vegna meiðsla. Bellamy er klár à slaginn á ný, eftir að hafa verið hvÃldur gegn Bolton og gefur það Rafa ákveðinn hausverk, þar sem Crouch var að koma sér à góð færi à sÃðasta leik og skoraði glæsilegt mark, ásamt þvà að Kuyt átti stórleik og skoraði lÃka. En eins og oft hefur verið sagt, þá er þetta ákaflega “góður” hausverkur.
Eitt fer ég þó fram á fyrir leikinn á morgun. Riise, láttu ekki fÃfla þig svona gjörsamlega upp úr skónum eins og à sÃðasta leik þessara liða. Hleb þurfti varla að gera neitt sérstakt til að láta Norðmanninn lÃta út eins og algjöran aula. Þannig kom einmitt fyrsta markið à þeim leik. Vörnin hefur þó tekið sér taki sÃðan og vonandi að það haldi áfram à næstu leikjum. Ég hef einmitt talsvert verið að velta þvà fyrir mér hvað nákvæmlega hafi breyst er varðar varnarleikinn undanfarið og hver sé à rauninni breytingin. Það eru reyndar nokkrar ástæður sem koma til. Reina er kominn á ný með sjálfstraustið à botn og skiptir það miklu máli. Önnur ástæða er sú að vegna meiðsla à upphafi tÃmabilsins, þá þurfti Rafa að rótera vörninni oftar en hann vildi. Agger, Riise, Finnan og Carra misstu allir úr leiki vegna meiðsla à byrjun. Ãkveðin ástæða, en ekki sú stærsta. Það sem mér finnst vera stærsta ástæðan er endurkoma Xabi Alonso. Það hefur verið hrein unun að sjá varnarvinnuna hans undanfarið. Hann er að loka svæðum frábærlega, hann er að tÃmasetja tæklingar vel og er að halda boltanum hjá sér. Hann er reyndar ekki jafn afgerandi þegar kemur að löngum hárnákvæmum sendingum, en hann hefur þess à stað byrjað að skýla vörninni betur og er meira à stutta spilinu. Þetta tel ég vera eina ástæðuna fyrir þessari bætingu á varnarleik liðsins. En auðvitað spila allir þessir þættir stóra rullu à þessu og einnig margir aðrir.
En hvernig verður liðinu stillt upp? Stóra spurningin er reyndar hvernig Rafa stillir upp kantmönnum og framherjum. Hann hefur ekki verið að rótera öðru mikið, nema kannski þeim Agger og Hyypia. Ég ætla að giska á að Agger verði à vörninni við hlið Carra, bara vegna þess að hann hefur mun meiri hraða en Sami og mun ekki veita af þvà à þessum leik. Ég ætla lÃka að giska á að Pennant fái tækifæri til að halda áfram á beinu brautinni og þar með að mæta sÃnum gömlu félögum. Þá kemur að vinstri kantinum og er ég eiginlega alveg á gati þar. Þrennt kemur til greina og allir kostir eitthvað sem Rafa gæti kýlt á. Hann gæti spilað svipað og à sÃðasta leik og stillt Aurelio upp þar. Finnst það samt ólÃklegast, vegna þess að hann á eftir að breyta liðinu eitthvað. Þá er það spurningin um þá Gonzalez og Garcia. Garcia er maður stórleikjanna og bikarleikja og þvà ætla ég að giska á að hann byrji á vinstri kantinum. Hvað framherjana varðar þá vona ég svo innilega að þeir Kuyt og Bellamy fái að halda áfram að þróa sitt samstarf. Þrátt fyrir frábært mark hjá Crouch à sÃðasta leik, og það að hafa komið sér à góð færi, þá einfaldlega vil ég sjá hina tvo byrja frammi. Simple as that. Svona ætla ég þvà að tippa á liðið:
Finnan – Carra – Agger – Riise
Pennant – Gerrard – Xabi – Garcia
Kuyt – Bellamy
Bekkurinn ætti þvà að vera á þessa leið: Dudek, Hyypia, Aurelio, Gonzalez og Crouch.
Ég vil sjá liðið byrja leikinn eins og það gerði gegn Bolton um sÃðustu helgi. Frá fyrstu mÃnútu þá settu menn à gÃr og gáfu andstæðingunum engan frið. SÃðari hálfleikur à þeim leik var frábær og það gegn sterku liði. Nú vil ég sjá svipað uppi á teningnum, sendum út skilaboð um að liðið sé komið á beinu brautina og stefnan sett á að vinna bikara à ár og að FA bikarinn sé heima hjá sér à dag og sé ekki á leiðinni neitt annað. Ekkert flókið eða hvað? 2-0 er það sem ég spái og það verða Kuyt og Pennant sem skora mörkin (spáið à þvà hvað það væri ljúft fyrir Pennant að skora sitt fyrsta mark fyrir Liverpool gegn sÃnum gömlu félögum à Arsenal)
Þetta verður rosalegur leikur, 1-0 fyrir okkur og Aggerinn setur hann stöngin inn á 84. mÃnútu eftir að Arsenalmenn voru að gera sig lÃklega til að stela sigrinum eftir einstefnu Liverpool manna…
Þetta verður erfiður leikur lÃkt og allir leikir gegn Arsenal. Við spilum við Arsenal á morgun og sÃðan aftur 9. janúar à deildarbikarnum. Ég leyfi mér efast um að við vinnum þá tvisvar à röð og vonast þvà frekar eftir sigri á morgun en à deildarbikarnum.
Sammála SStein með byrjunarliðið en ég tel alveg eins lÃklegt að Aurelio starti à vinstri bakverðinum (kannski óskhyggja…)
Sammála með að Agger komi inn fyrir Hyypia. Það var fullkomlega eðlilegt að Hyypia kæmi inn gegn set-piece liðinu Bolton og einnig frábært að fá Agger inn gegn Arsenal. Hyypia og Carra léku à fyrri leiknum og voru hræðilegir. Held að Agger passi miklu betur gegn Arsenal sókninni.
Svo varðandi Riise, þá hefur hann að vera að bæta sig à sÃðustu 2-3 leikjunum, en hann var gjörsamlega hræðilegur à tÃmabili à nóvember og desember. Vonandi að það tÃmabil sé búið.
Við vinnum þennan leik á miðjunni. VÃst að Fabregas er ekki með, þá er Arsenal (að mÃnu mati) ekki með neinn miðjumann, sem kæmist à lið hjá Liverpool. Og já, ég er að telja Gilberto à sÃnu góða formi með.
þetta verður hörku leikur og er ég farin að hlakkka mikið til að sjá þennan leik, Vona að Henry verði ekki à svaka stuði eins og um árið þegar hann lét carra lýta út eins og skólastelpu. En annarrs frábær upphitun hjá þér og vonandi mun liverpool vinna 2-0 og við munum halda þessari vörn áfram sem næst Heimsklassa.
Þessi leikur leggst einfaldlega mjög vel à mig, verð að viðurkenna það. Ég held að við verðum of sterkir á Anfield fyrir þetta Arsenal-lið, sérstaklega þar sem þeir eru án Van Persie og Fabregas.
Vonandi reynist hugboð mitt rétt, en við vinnum auðveldan sigur á morgun. Það held ég. 🙂
Ég vil skora á Friðgeir Ragnar vin minn til að spá fyrir um úrslit leiksins…. Feikilega sannspár.