Úff, það er víst komið að Liverpool leik í deildinni aftur eftir 8 daga hvíld eftir hörmungina gegn Arsenal. Það eru ekki nema 2 deildarleikir síðan að við vorum að horfa á möguleikann á öðru sætinu í deildnni og allt var í góðu lagi. En þessir tveir leikir gegn Man U og Arsenal hafa rifið okkur allsvakalega niður á jörðina. Í raun er smá erfitt að peppa sig upp fyrir þennan leik gegn Newcastle því það virðast vera litlar líkur á að fjórða sætið verði okkar. Til þess þurfa liðin fyrir okkur að klúðra málunum hroðalega.
En það er gott fyrir geðheilsu okkar og leikmanna að klára þetta tímabil í deildinni með sæmd og vonandi endar þessi taphrina í kvöld.
Rodgers stillir liðinu upp svona:
Mignolet
Johnson – Can – Lovren – Moreno
Henderson – Allen – Lucas
Coutinho – Sterling – Ibe
Bekkur: Jones, Toure, Lambert, Manquillo, Borini, Brannagan, Markovic
Ég verð að viðurkenna að ég veit ekki hvernig þessu er stillt upp en ég giska á þetta svona. Gæti svo sem líka verið þriggja manna vörn með Johnson, Can og Lovren. Við sjáum hvað gerist. En þetta lið á að klára Newcastle á heimavelli.
Koma svo!
Hvar er Sturridge?
lýst ekkert á þetta lið því miður var að vonast eftir 2 centerum í dag.. er sturridge meiddur ?
Var búinn að henda í 3-0 spá ætla að breyta yfir í 1-0 sigur með rottu marki í lokin frá ibe 🙂
hélt að að væri fullreynt að hafa Lucas og Allen saman á miðjunni,,Can á miðjuna!!!
Verðum að vinna í kvöld!! Mikið sést hvað okkur vantar tvo ef ekki þrjá miðjumenn í liðið okkar.
2-0 koma svo!!
#3 jonas.
Fullreynt að hafa Lucas og Allen saman á miðjunni?
Þeir eru búnir að fá tvo leiki saman.
Allen + Lucas er ekki ávísun á góða skemmtun!
Balotelli e-d hálfslappur í dag?
Ibe verður pottþétt hægra megin frammi en ekki vinstra megin.
Lucas verður fyrir framan vörnina og Henderson/Allen munu sjá um pressuna og ég er ótrúlega bjartsýn fyrir þessum leik.
Gaman að sjá Ibe aftur.
Við erum á heimavelli og hann stillir upp tveimur varnarsinnuðum miðjumönnum. Hefði viljað burt með Lucas.
#9
Og annar þeirra er að spila í miðverðinum.
Sjálfu sér ekkert sem kemur á óvart, Sturridge hefur greinilega verið langt frá sínu besta undanfarið og virkar langt frá því að hann sé að spilast í form.
Fróðlegt verður að sjá Sterling á topp sérstaklega í ljósi þess eftir viðtalið fræga, ætli hann verði ekki að skora annars fær hann að heyra það frá stúkunni.
Andskotinn þetta byrjunarlið á að vinna þetta Newcastle lið komasvo
Af BBC, m.a. um Sturridge:
Manager Brendan Rodgers: “There are still a lot of points – 21 – to play for and we still have plenty of work to do. Jordon Ibe is super-quick with great technique and made a big difference when we brought him back from his loan at Derby.
“He is a naturally fit boy and has been good in training so I had no qualms about putting him straight back in.
“Daniel Sturridge picked up an injury against Blackburn and is unavailable fitness wise. We will have to see how he gets on ahead of the weekend’s FA Cup semi-final.”
þessi meiðsli eru bara grín og núna er shako meiddur í mánuð í það minnsta.
erum með algjöra meiðslapésa
Sæl öll,
svona er maður hjátrúafullur. Mánudagsleikur + Arnar Björs að lýsa = Liverpool tapar
Lélegt hjá Lee Mason þögnin varði aðeins í 56 sekúndur
Bullandi séns a fjórða sætinu ennþá. Man sjittý er i frjálsu falli og þa er eins gott að við vinnum okkar leiki!
algjörlega undir því komið að við vinnum allt og city haldi áfram að skíta á sig en já það er séns.
Ekkert kjaftæði neitt!
Tökum þau stig sem í boði eru, spilum vel verum ekkert með neitt væl !
Kemur svo bara í ljós hvað önnur lið gera og hvar við endum.
Steeeerling! Fullkomlega gert allt frá móttökunni.
Svakalega vel gert hjá Sterling.
jæja sterling vel gert.
Henderson með mjög góða sendingu
Frábært mark, allt frá sendingunni hans Henderson til klárunina hans Sterling
Drullum aðeins meira yfir Sterling
Miðverðirnir eru ansi djarfir í að hlaupa fram á köflum, vonandi er Lucas á tánum í kvöld.
Þetta er átakanleg varnarvinna hjá Newcastle. Þessir varnarmenn hafa séð hver annan áður er það ekki?
Annaðhvort er Liverpool orðið hrikalega gott allt í einu eða Newcastle skelfilegir….hallast að því fyrra hehe
Coutinho er ÆÐISLEGUR!
Omg, Coutinho getur gert svo rosalega hluti. Eins og diet Ronaldinho. 🙂
Henderson stoðsending nr 13 á tímabilinu hvernig væri nú að drullast til að klára samningamálin.
Sterling markahæstur með 7 mörk í PL, ekki furða að við séum í þessu strögli.
Okkur vantar síðasta elímentið, þennan síðasta þriðjung. Ef hann væri til staðar værum við komnir með 3 mörk í þetta.
Lucas er flottur en Coutinho er okkar besti madur so far. Meistari!
Hér er þessi snilldarsending hjá Coutinho, ef einhver ykkar misstu af: https://vine.co/v/eupqTaP56LA
Heppni að fá ekki á sig víti!!!
Ertu ekki að djóka hvað við vorum heppnir að fá ekki vítið á okkur. Við þurfum að fara að klára þennan leik. ALLT flott nema að við þurfum að skora fleiri. JARÐA ÞETTA
@Trausti #31:
Ef við hefðum síðasta elementið, þennan síðasta þriðjung, þá værum við ekki bara komnir með 3 mörk í þessum leik, við værum líklegast í baráttu um titilinn.
Verðum að skora annað mark til að slökkva í þeim.
Gæti átt eftir að bíta okkur í rassinn ef við bætum ekki við marki/mörkum!!!
WOW þarna var Lovren heppinn.
https://twitter.com/anfieldonline/status/587702377215557632
Fyndið þar sem að Paul Tomkins tvítaði þessu örstuttu fyrir þessa tæklingu:
“Lovren looking very solid so far. Has he started to settle or is it because we’re playing Newcastle?”
Migno með frábært save þarna
Skemmtilegur fyrri hálfleikur en við heppnir að fara inn í klefa með 1-0.
Erum alls ekki að nýta þessa yfirspilun nógu vel. Kemur vonandi í seinni.
Sæl öll,
G. Johnson er að spila sinn síðasta leik fyrir Liverpool.
Frábær varsla undir lokin hjá SM.
Newcastle voru einfaldlega hroðalega slakir í svona 25-30 mínútur – hræðilegir án bolta, en reyndar svolítið ógnandi með hann framarlega á vellinum. Ef Liverpool væri með þó ekki nema einn virkilega in form striker, gæti staðan auðveldlega hafa verið komin í 3-0 eftir þann kafla.
Newcastle eru svo loks byrjaðir að berjast almennilega fyrir sínu. Verð ekki í rónni fyrr en okkar menn skora annað mark…
Lucas er sennilega markóheppnasti leikmaður sem ég hef séð. Það kemur elding næst í boltann þegar hann er á leið yfir línuna.
Byrjuðum frábærlega. Liðið í hápressu og vann boltan trekk í trekk framarlega á vellinum og komst nokkrum sinnum í ákjósanleg færi til þess að gera eitthvað sniðugt.
Liði átti að vera búnir að bæta við 1-2 mörkum en 1-0 forskot er rauninn eftir flotta sendingu Henderson á Sterling sem gerði frábærlega í mótökuni og að klára.
Síðustu 20 mín þá var þetta galopið á báða bóga, Newcastle fóru að virka hættulegir en við vorum það líka. Mignolet með flotta markvörslu þar sem Glen Johnson var að drulla á sig með því að vera fyrir innan og ef hann ætlaði að vera fyrir innan þá ætti að minnstkosti að dekka manninn.
Lovren var heppinn að fá ekki dæmda á sig vítaspyrnu en annars hefur þetta verið ágætur leikur hjá okkar mönnum.
Endilega strákar og stelpur ef þið vitið um góðan hlekk fyrir ipad gaur. Hook me up!
Vonandi þurfum við ekki að naga handarbök í lok leiks yfir að hafa ekki nýtt yfirburðina í fyrri hálfleik!
ps ætli Balotelli sé með kvef í kvöld?
virkilega flottur fótbolti hjá okkar mönnum það vantar bara centerinn þa væri þetta 4-0 i hálfleik koma svo megum ekki slaka á í siðari hálfleik coutinho búinn að vera stórkostlegur og djöfull er gaman að sjá baráttuna og hörkuna hja henderson sign him up !
#47 Nei, hann hélt að það væri þriðjudagsleikur
Þarna sést vel í þessum leik að Liverpool er eitt sterkasta liðið um miðja deild, en við erum ekki enþá tilbúnir að keppa við topp fjóra í deildinni því þau lið eru bara sterkari en við.
Á síðasta ári vorum við með einn besta framherja í heimi og það var ástæðan fyrir góðu gengi á síðasta ári.
Ef Liverpool kaupir tvo sterka leikmenn sem eru betri en þeir leikmennirnir sem fyrir eru þá eigum við góðan möguleika að keppa um efstu sætin í þessari deild.
Það eru margir að tala um ef að við vinnum þennan leik þá munar bara 4 stigum og það er alveg rétt en ef við skoðum markatöluna á þeim liðum í topp fjórum þá eru þau bara að skora miklu meira af mörkum en Liverpool, það er að muna einhverjum 20 mörkum sem er of mikil munur.
Æi come on Lovren. Þurftirðu að meiða Can loksins þegar þú ert að gera allt annað rétt
Er ekki kominn tími til að mæta í seinni hálfleikinn?
sterling lol
hvernig fór hann að þessu
Ég hefði sett þennan…
150 þús punda finish !?
Það VERÐUR að nýta svona færi!!!
ef að við fáum mark á okkur verð eg MAD
Borini er enn á lífi. Vonandi gerir hann eitthvað viti.
jæja, vonandi nýtir Borini sénsin
Óútskýranlegt klúður!
Hvar er hápressan í seinni hálfleik eiginlega? Um leið og Newcastle fær boltann þá detta allir fyrir aftan miðlínu
gaman að sjá coutinho labba í gegn um 5-6 menn og svo fer boltin á samherja og næsta sending frá þeim er bara prump.
Hefur G.Johnson farið í heppnaða tæklingu í seinni hálfleik?
Johnson er ekki góður í fótbolta!!!
Er til lýsingarorð yfir slúttið hjá Sterling??
Ætlum við að senda okkur inn í markið? eða kannski ná að skjóta
1~1 skrifað í skýin, kíkið út
Af hverju verð ég ekki hissa ef Newcastle jafna og ná stigi út úr þessum leik?
Ég missti af.. afhverju stóð gjörvallur völlurinn upp og klappaði í skiptingunni hjá Newcastle?
Auðvitað Joe Allen, hver annar? haha
jiiiha
#70 Hlynur þetta var bara respect fyrir Gutierrez sem er að koma til baka eftir að hafa barist við krabbamein.
#70,
Þetta er fyrsta skipti sem Jonás Gutiérrez kemur við sögu hjá Newcastle eftir að undirgangast meðferð við krabbameini í eistum.
Djók ????
Ekki oft sem maður segir þetta : Joe Allen þrumar boltanum í samúel !!
AAAALLLLEEENNNNNN!!!!!!!
Loksins kom seinna markið
Liverpool eru drullulélegir eins og vanalega
# 70,var verið að klappa fyrir jonas gutierez,hann var að koma til baka úr krabbameinsmeðfeð,rosalega flott hjá stuðningsmönnum Liverpool!!!
Ógeðslega þurr og illa spilandi seinni hálfleikur en samt kom markið sem við þurftum, sem er ágætt!
Snilld! Takk f svörin, Liverpool hjartað slær aukaslag fyrir svona klassa 🙂
Joe Allen betri en enginn!
Hvað er Allen með á viku?
45.000
Sissoko að reyna að ökklabrjóta lucas, réttilegt rautt
Inná með Markovic!..koma drengnum í gang
Heheh, vá hvað þetta átti að vera beint rautt. Fékk annað gult og þar með rautt.
Djöfull vantar framherja.
Jónsson ekki alslæmur.
Er Allen ekki búinn að nýta sín færi betur en Sterling?
Hvaðþarf Sterling eiginlega mörg færi?
spurning með rítalín handa Sterling?
#86 mér fannst þetta nú vera óvart hjá Sissoko sérð það á viðbrögðum hans, hittir ekki boltann.
King Lambert að koma inn, setur eitt, klárt mál
Jæja silence of Lambert
Ekkert á þetta
Ég erfarinn að sjá glitta eitthvað í þessi gæði sem Lovren býr yfir Hann er t.d rosalega góður á boltann og mjög sterkur varnarlega. Fyrir utan nokkur klaufa mistök þá er henn heilt yfir verið mjög góður í þessum leik. Ég skil sífellt betur afhverju hann var keyptur því við erum að leytast eftir varnarmönnum sem búa yfir góðri boltatækni og það hefur hann svo sannarlega. Hann er klárlega Brendan Rogers týpan af varnarmanni sem vill hafa sem flesta leikmenn þátakendur í spilinu – því takmarkið er að líkjast spilamennsku Barcelona eins mikið og raunhæft er.
Ég trúi því að hann muni aðlagast leikstíl Liverpool betur og betur.
Hitt er að þetta var fínt leikur að mörgu leiti. Vörnin var ekki eins góð og þegar við vorum með rétt mannaða 3ja manna vörn með Lucas fyrir framan hana, en varnarlega var Liverpool samt miklu betri en þeir voru í fyrra og í byrjun tímabilsins. Greinilega framfarir. Mjög mikilvægt að getað búað yfir tveimur til þremur leikkerfum sem hægt er að skipta á milli.
Sóknarlega er greinilega búið að fara mikið yfir hreifingar án bolta og sýndist mér það hafa borið ávöxt þar sem liðið komst mjög oft upp kantana og gat sent fyrir.
Ef Sterling hefði 50% af skotgetu Suarez eða Sturridge hefðum við unnið stórsigur í dag.