Þetta er kannski ekki merkilegasta frétt ársins en frétt enga síður (sem og ég nenni ekki að hafa þennan leik frá því í gær sem efstu frétt lengur).
Adam Hammill, 19 ára táningur frá Liverpool, er á samning út tímabilið hjá Liverpool. Hann fór á láni til Dunfermline í Skotlandi í janúar og hefur þótt standa sig einkar vel.Hann hefur m.a. hjálpað liðinu í Úrslit skoska bikarsins og tryggt liðinu sæti í UEFA bikarnum að ári. Hann spilar bæði sem vinstri kantmaður og framarlega á miðjunni.
Hann mun vera ánægður með dvöl sína hjá Dunfermline og mun [virða þá ákvörðun sem Rafa tekur](http://home.skysports.com/list.aspx?hlid=463425&CPID=8&clid=14&lid=&title=Hammill+waits+on+Rafa) um framtíð hans í vor.
“When it was decided I was going out on loan I could have stayed down south and played Championship, League One or League Two. But I don’t think I’d have got a cup final under my belt or secured a Uefa Cup place for the club.Coming here was the best move I could possibly have had.”
Hammill hefur ekki ennþá spilað fyrir aðallið Liverpool en hjá Dunfermline hefur hann spilað 14 leiki og skorað í þeim eitt mark. Hann er einnig fastamaður í U19 ára landsliði Englands.
Það er því ljóst í mínum huga að Hammill hefur haft mjög gott að því að vera lánaður og vonandi að hann nái að taka næsta skref og berjast um sæti í hópnum að ári.
Já það er gaman þegar leikmenn fara á lán og fá að spila almennilega. Vonandi kemur hann sterkur upp úr akademíunni því það er einhvernvegin alltaf skemmtilegra að þannig peyjum.
Unnu u-18 ára lið Liverpool ekki bikarinn í gær ! Tóku Man Utd í vítakeppni..