Einar Matthías stýrði þættinum og að þessu sinni voru þeir Einar Örn, Maggi og SSteinn á línunni.
Umræðuefnið var að sjálfsögðu frábær leikur okkar manna gegn Man City, heimaleikjaformið það sem af er móti og vangaveltur um framhaldið.
MP3: Þáttur 103
En hvar er download hnappurinn
Download-hnappurinn er kominn. 🙂
Búinn að skrá niður spárnar.
Haha flott
Er ekki lífið ljúft 😀
Glæsilegt, frábært að sjá líka síðuna eftir flutninginn, lítur mjög vel út, hægt að ‘reita’ hverja færslu og svo eru commenta-atkvæðin mjög töff líka, loksins hægt að fara að ‘flame-a’ bauli á einhver glötuð comment frá ManU-mönnum 🙂
Ein spurning, eru menn eitthvað farnir að bollaleggja með leikannagluggann í janúar? Hvað finnst mönnum líklegt að gerist þá? Nýr markmaður? Nýr miðjumaður / menn? Skerpa á sókninni? Fá inn ferska karla- og kvennakór í The Kop? Nýtt gras á Melwood til þess að lágmarka meiðsli hjá mönnum? Hverjir eru líklegir kandídatar inn hjá okkur í janúar?
Hvað er í kortunum haldið þið?
Magnús Viðar ég er alveg viss um að Klopp okkar mun kaupa markmann, annað mun koma mér. 🙂
Elska þetta lið!!!!
@6
Ég myndi nú skjóta á að það yrði ekki verslað nema í mesta lagi einn bakvörður eða svo. Erum óþægilega þunnskipaðir þar.
Upphitun fyrir leikinn annað kvöld?