Frábærir sigrar í tveimur síðustu leikjum og Kop.is verður með sína fulltrúa á svæðinu í næstu tveimur leikum sem báðir eru af stærri gerðinni. Þetta var umræðuefni kvöldsins ásamt svo mörgu fleiru að danshæfileikar Magga fengu meira að segja að njóta sín!
Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: SSteinn, Maggi og Hrafn Kristjáns þjálfari Stjörnunnar í körfubolta.
MP3: Þáttur 173
Ég hlustaði á kjaftæðið í ykkur og aldrei þessu vant hafði ég gaman af ykkur.
Sennilega kominn í jólaskap.
Ég er ykkur hjartanlega sammála um Firminio,,það er eitthvað ótrúlegt við drenginn,það er eins og það sé einhver ára í kringum manninn.
Nú hefur mynd af honum verið hengd upp á vegg hjá okkur í eldhúsinu þar sem hann brosir til okkar og fólk sem kemur í heimsókn getur ekki látið vera að skjóta til hans auonum ,bæði konur og menn.
Ég hef ekki haldið eins mikið upp á neinn leikmann síðan Kevin Keegan fékk mig sem barn til að halda með Liverpool.
Sælir félagar.
Er Kristján Atli alveg kominn með nóg í bili?
Sé hann hefur ekki verið með í margar vikur…
Nr. 2
KAR hefur aðeins dregið sig í hlé og einbeitir sér t.a.m. að annarri skáldsögu. Fáum hann þó vonandi inn í podcast á næstunni.
Unglingaliðið er að spila núna, finn hvergi link. Getur einhver hjálpað?
http://sportyly.cf/live.php?v=Liverpool+U19+vs+Spartak+Moscow+U19&c=UEFA+Youth+League
Hér er linkur
Takk Doremí en þeir biðja um VISA upplýsingar þarna:(
Liðið komið spái 5-0 fyrir okkur ég á afmæli og ég vil fá góða leik frá þeim takk.
Liverpool: Karius, Gomez, Klavan, Lovren, Moreno, Can, Wijnaldum, Coutinho, Mane, Salah, Firmino.
Subs: Mignolet, Milner, Henderson, Sturridge, Oxlade-Chamberlain, Solanke, Alexander-Arnold.
Hver er fyrirliði?