Þá er komið að okkar fyrsta verkefni í ansi langan tíma sem Englandsmeistarar, ekki er það lítið. Man City á Ethiad eftir rétt tæpan klukkutíma og stillir Klopp þessu svona upp í dag, sama lið og gegn Palace plús Milner kemur inn á bekkinn!
Man City er svona:
Koma svo – erum ekki bara komnir til að njóta þess að láta City klappa fyrir okkur, skulum gera alvöru atlögu að þessu stigameti!
Þetta er það sem ég var að vona Sterling í heiðursverðinum.
Sterling í heiðursverðinum já, en þvílíkt hvað hann er að leika sér að Joe Gomez, úff
Sterling er nú reyndar bara að niðurlægja okkar menn. Sérstaklega Gomez sem er bara ekki nógu góður.
En fokk this. Okkar menn eru þunnir og þurfa aðeins að jafna sig eftir fögnuð síðustu daga.
Það er bara sturlað að hugsa til þess að maður sé að horfa á leik á móti City og þegar búnir að vinna deildina. Maður er ekki að meðtaka þetta.
Áfram Liverpool í blíðu og stríðu. Meistarar og besta fótboltalið heims!
Hvað í andsk er í gangi?
Ok.. svona er þetta..
Núna á Klopp bara að senda einhverja krakka inn á og leyfa þeim að spreyta sig.
3-0. Hvað er i gangi? Hvar er sóknarlina Liverpool? FSG skulu hætta vera svona nískir og skulu styrkja liðið fyrir næstu leiktið. Þurfum varnarmann, skapandi miðjumann og sóknarmann.
Hahahaha ?
Ertu búinn að kíkja á töfluna?
Ha sóknarlínan.
Við erum englands, evropu og heimsmeistarar.
Allt þessum “nísku” eigendum að kenna.
Shitty að leika sér að Englandsmeisturunum. Allir þunnir, og gomez bara skelfilegur. Það er mikið spennufall hjá okkar mönnum. Vonandi fáum við ekki á okkur fleiri mörk. Þetta er bara vandræðalegt !
Staðann er 4-0 Guðjón og algjör niðurlæging. Jú þeir eru nískir ef þeir styrkja ekki Liverpool fyrir næsta leiktíð. Þurfum varnarmann, semja við Coutinho og Mbappe komi næsta sumar.
Gomez gerir mistök og allir kenna honum um, en robertson er búinn að kosta okkur tvö mörk og enginn talar um það.
Jamm fáir af okkar mönnum eru sjálfir sér líkir.
Gómezinn – þurfum ekki að ræða það
Salah – óheppinn að skjóta í stöng en oft mistækur. Fullt af sendingum beint á hann – mætti gera betur .
Mané – klaufskur
Hendó – óhittinn
Robbó – skrýtnar sendingar beint á andstæðinga
Fabinho – góður í varnarvinnunni en mætti gera betur í sókn
Van Dyke – bestur – ljósið í myrkrinu – stórbrotnar framsendingar, ákveðinn og flottur.
Alison – þrjú mörk…
Firmino – svona lala
Gini – svo sem ekki hægt að kvarta
TAA – oft lunkinn
Já, svo mörg voru þau orð. Jesus skelfilegur hjá City en de Bruyne, Stering og þessi Foden – baneitraðir. Nú þarf bara að koma öðru spjaldi á Mendy og þá er aldrei að vita hvað gerist.
oh… komnir með titilinn það er frábært en kannski ekki ástæða til að láta ManCity niðurlægja okkur 🙁
Þarf að geta mætt í vinnu á morgun 🙂
Var of mikill djús þegar titilinn var klár.
Tja, Múslímska bræðralagið hefur nú varla þá afsökun að hafa þambað brennivín!
Það hlýtur bara að vera eitthvað veðmálasvindl í gangi. Er Mane búin að veðja á að hann sjálfur skori ekki eða ?
Robo tíndur í vörn og sókn
Leiðinlegt að tilkynna að ég er hættur að horfa. Það jákvæða við þennan leik að Klopp þarf að velta fyrir sér framhaldinu.
Mér er óglatt
Ja hérna hér.
En við erum nú samt heims, evrópu og englandsmeistarar og því engin ástæða til að grenja mjög lengi yfir þessari rassskellingu þótt leiðinleg sé.
YNWA
Skellur
Þvilik sköm
?????? ??????? ?????? ????????7|?????????? ??????? ?????? ????????7|??????? ?????? ??????? ???????? ????????7|
[url=https://sweetmoda7.ru/hit[/url]
Og Henderson frá út tímabilið og líklega eitthvað lengur 🙁